Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 13.12.1978, Blaðsíða 7
FÉLAGSTÍÐINDI
7
Björn Arnórsson:
KJARA-
BARÁTTAN
Þær eru orðnar æði margar samþykktir
verkalýsðfélaga, sem skýrskota til fjár-
festinga, sem orsök verðbólgu. Hve oft
hefur þess verið krafist af fjárfestingar-
nar í landinu verði teknar föstum tökum?
Það hefur margoft verið fullyrt að orsakir
efnahagsvandans á íslandi sá að finna í
því sem nefnt hefur verið fjárfestingar-
bruðl. Lítum á nokkur atriði í ’yessu sam-
bandi.
Eftirfarandi tafla ár margnefndri
"verðbólgunefndarskýrslu" er þess virði að
hún sé athuguð nánar.
Hlutur fjármunamyndunar og sparnaðar
1 vergri þjoðarframleiðslu.
Ærsmeðalt'ö3~
Fjármuna-
myndun 1960-1964, 1965-1969, 1970-1976.
Is- Nor- Finn- V-þýsk- - Sví- Dan- Bret-
land % egur % land % land 0. 0 þjóð % mörk 0. 0 land 0, Q
26.7 29.0 26.6 25.7 23.2 21.9 16.9
28.2 27.7 24.4 24.7 23.9 21.7 18.6
30.0 30.6 27.9 24.9 21.9 21.5 19.1
28.5 29.3 26.5 25.0 , 22.9 21.7 18.3
Spamaður. í Sömu ár.
25.8 27.0 28.4 28.8 24.8 21.0 18.0
25.2 28.6 28.2 28.2 24.1 20.8 19.3
25.5 29.7 32.3 27.7 23.7 20.3 18.1
25.5 28.6 30.0 28.2 24.1 20.7 18.4
í síðasta tbl. Félagstíðinda sýndum við
fram á að ekki er unnt að sjá að þau þjóð-
félög, þar sem laun eru vísitölutryggð
byggju við meiri verðbólgu en hin. Taflan
hér fyrir ofan sýnir okkur hins vegar
Hokkra sérstöðu íslands, þ.e, annars vegar
er hlutfall fjármyndunar á Islandi óhemju
hátt og hins vegar er það töluvert meira en
sparnaði nemur. Mismunurinn felst í lánum,
en skuldasöfnunin hefur aukist uggvænlega
að undanfömu eins og eftirfarandi tafla
sýnir:
Erlendar skuldir í árslok í hlutfalli við
þjóðarframleiðslu á gengi hvers árs.
1953-59 1960-64 1965-69 1970-74 1975-77
9.2 25.5 23.6 25.5 36.5
Við upplifum bráðabirgðaráðstafanir í
september og aðrar 1. des. Spumingin sem
launafólk veltir fyrir sér þessa dagana er
hvort við fáum að upplifa enn eina bráða-
birgðalausn núna l.mars? Eða eigum við
eftir að sjá stjórnmálamenn snúa sér að
fjárfestingarbruðlinu með sömu festu og
beitt hefur verið gegn okkur?.
A meðan getum við huggað okkur við eftir-
farandi tilvitnum úr skýrslu Þjóðhags-
stofnunar: "Ör þjóðarbúskapnum. Framvindan
1977 og horfur 1979", sem gefur okkur
dálítið aðra mynd en málið hefur verið
fyrir okkur að undanförnu:
"Sé eingöngu horft á framleiðslu, atvinnu
og viðskiptajöfnuð, virðist allt með
kyrrum kjörum. Framleiðsla hefur farið
vaxandi, að vísu hægar en árið 1977. At-
vinna hefur verið yfrið nóg. Viðskipti við
önnur lönd eru nær hallalaus. Að vísu ber
þann skugga á þessa hagstríðu mynd, að við-
skiptakjör gagnvart útlöndum hafa heldur
rýrnað á árinu andstætt fyrri vonum, þar .
er þó ekki um neinn búskell að ræða og
kann að reynast tímabundin breyting.LÍfs-
kjör almennings eru á árinu með besta móti".
Aðalfundur Fanga-
varðafélags íslands
Fangavarðafélag Islands hélt aðalfund
sinn 28. nóvember s.l. í fundarsal Félags-
miðstöðvarinnar að Grettisgötu 89, R.
Formaður félagins Sigurjón Bjamason
flutti skýrslu stjórnarinnar og gerði
grein fyrir störfum stjórnarinnar á liðnu
ári. Kom fram í máli hans að starfið hefði
verið mjög þrottmikið, - og kjaramál sett
mikið mark á það, enda náðist fram nokkur
áfangi.
I skýrslu formanns greindi frá starfi
innanNorrænu fangavarðasamtakanna og nú
nýverið tók hann þátt I formannafundi sam-
takanna í Osló. Flutti hann þar skýrslu um
gang kjarasamninga og stöðu þeirra hér á
landi. Þátttakendum var boðið til veglegs
hófs er Norska fangavarðafélagið bauð til
I tilefni af 60 ára afmæli félagsins. Af-
henti formaður gjöf frá Islandi, ágrafna
hvaltönn með merki félagsins, með vinar-
kveðjum.
Gjaldkeri félagsins gerði grein fyrir
afkomu félagsins, kom þar fram að hún er
nokkuð góð. Félagsgjöld voru ákveðin kr.
5.000 fyrir næsta ár.
Stjórn skipa nú:
Sigurjón Bjamason, Litla-Hrauni, form.
Gunnar Marinósson, Síðumúla
Björk Bjarkardóttir, Fangag. lögregl.
Jón Sigurðsson, Litla-Hrauni
Jóna Sigurjónsd. Skólavörðust. 9
Vauastjórn:
Klemens Erlingsson, Litla-Hrauni
Ari Ingimundarson, Síðumúla
Trúnaðarmaður deildarinnar hjá SFR var
kosinn Klemens Erlingsson.