Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 13.12.1978, Blaðsíða 2

Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 13.12.1978, Blaðsíða 2
2 FÉLAGSTÍÐINDI Guðjón B. Baldvinsson PISTLAR ÚR SÖGU SFR Hva6 gerði BSRB? Á Alþi:igi báru þau ólaf- ur Björnsson og Rannveig Þorsteinsdóttir fram till. sem fól í sér aö ákvse&i um lengingu vinnutímans félli niður. Tillagan var felld með þorra atkvæða gegn 11. Bandalagsstjórn leitaði álits ísleifs Árnasonar, fv. prófessors um lögmæti þessa skilyrðis og svar barst frá honum og ölafi JÓhannessyni, prófessor, sem var á þá leið að þessi samþykkt Alþingis bryti . ekki í bága við gildandi lög. Rétt þykir að birta hér eftirfarandi till. sem sam- þykkt var á almennum fundi x Iðnó 5.júní 1950. Fund- urinn var boðaður af stjóm BSRB, en meginþunginn í mótmælum samtakanna var vakandi starf SFR og ein- dregin andstaða þess við gerræði löggjafans. "Fundurinn mótnœlir þeirri ákvörðun meiri hluta Alþingis að bjóða með ákvæði í 19.grein fjárlaga þessa árs, að vinnutími skrifstofufólks og fleiri starfshópa opinberra starfs- manna skuli lengdur, svo og þeirri skýringu ríkis- stjórnarinnar, að lenging vinnutíma sé skilyrði fyrir greiðslu launauppbóta, sem ákveðnar eru í sömu grein. I því sambandi bendir fundurinn á, að samkvæmt tillögum launalaganefndar var hækkun launastigans engu slíku skilyrði háð, en þó hefir verið látið í veðri vaka, að tillögur nefndarinnar hafi að öðru leyti legið til grund- vallar þeim uppbótum, sem rxkisstarfsmönnum voru ákveðnar. Fundurinn lítur svo á, að með setningu þessa ákvæðis um vinnutxma skrif- Réttindakaup í lífeyrissjóðnum: Mikilvæg breyt- ing um áramótin Um ármótin verða mikilvægar breytingar á átreikningi réttindakaupa í Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins vegna starfstxma fyrir 1. janúar 1970. Sams konar breytingar verða hjá Lífeyrissjóði bamakennara og Lífeyrissjóði hjúkrunarkvenna. Breytingin hefur í för með sér, að eftir áramótin verða þessi réttindakaup margfalt dýrari en þau eru nú, Þeir, sem hafa hug á slíkum réttindakaupum, ættu því að snúa sér til Lífeyrissjóðs starfsmanna rxkisins sem allra fyrst, og alla vega fyrir áramót. Félagstíðindi snéru sér til Einars Kr. ísfelds, deildar- stjóra hjá Tryggingastofnun ríkisins og báðu hann að úr- skýra þessar breytingar nánar. Gildir aðeins um starfs- tíma fyri'r Í. jan. 1970~ Einar sagði, að hér væri um að ræða ákvörðun stjómar lífeyrissjóðanna um breytta reikningsaðferð þegar ákveðin væru iðgjöld vegna réttindakaupa fyrir starfstxma, sem væri- fyrir l.janúar 1970. Reglur um starfstxma eftir l.janúar 'væru óbreyttar. Eins væri afstaða sjóðsstjórnar til rétt- indakaupa óbreytt. Nýja reglan er sú, að þegar um er að rse&a réttindakaup fyrir starfstxma fyrir 1. janúar 1970, reiknast iðgjöld ' ein^ og sjóðfélagi hefði allan txmann haft sömu laun og hann hefur þegar réttindakaupin eru gerð og greidd. Vextir reiknast ekki á iðgjöldin. Hvað þýðir þetta í reynd? Tökum sem dæmi sjóðfélaga sem ætlar að kaupa réttindi fyrir txmabilið 1. janúar 1940 til 31. desember 1943, 1. janúar 1950 til 31. desember 1953 og 1. janúar 1960 til 31. desember 1963. Þetta eru samtals 12 ár. Segjum að þessi maður hafi sótt um og greitt réttinda- kaup í maxmánuði síðastliðnum og að nýju reglurjiar hafi þá verið í gildi. Hann hefur laun skv. B 16. Við rétt- indakaupin samkvæmt nýju reglunum greiðir hann því 4.25% af mánaðarlaunum í B 16, sem þá voru 214.692 kronur, eða 9.124 krónur í iðgjald fyrir mánuðinn. Fyrir eitt ár þarf hann þá að greiða tólf sinnum þá upp- hæð, eða 109.488 krónur eða fyrir 12 ár samtals 1.313.856 krónur. Réttindakaup þessa sjóðfélaga kosta hann því rúmlega 1.3 milljónir króna samkvæmt nýju reglunum. Gömlu^reglurnar - sem^gilda áfram við réttindakaup fyrir starfstíma eftir 1. janúar 1970 - kveða á um, að miða skuli iðgjaldagreiðslur við laun eins og sjóðfélaginn fékk greidd á þeim tíma, sem hann kaupir, en ofan á þau iðgjöld skal síðan relkna vexti til þess dags, sem réttindin eru uppgerð. Samkværvt þeim reglum hefði sjóðfélaginn, sem dænið hér að ofan, aðeins þurft að greiða 52.931 krónur fyrir 12 ára réttindi.

x

Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana
https://timarit.is/publication/1544

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.