Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 13.12.1978, Blaðsíða 3
FÉLAGSTÍÐINDI
3
Skýrt var frá því í síÖ-
asta tölublaöi Félags-
tíðinda, aö kjaranefnd
hefði úrskurðað að störf-
um "uppeldisfulltrúa"
skuli raðað í nxunda
launaflokk, og að b\/rjend-
ur í starfi skuli taka
laun samkvæmt áttunda
launaflokki fyrstu tvö
ár starfstxmans. Her
var um verulega hækkun
að ræða.
Einnig var þess getið,
að óvíst væri hvort úr-
skurður þessi næði til
uppeldisfulltrúa við
Öskjuhlíðarskóla, Hlíða-
skóla og í Kjarvalshúsi.
NÚ hefur kjaranefnd hins
vegar úrskurðað um þetta
efni á þann veg að hinn
upphaflegi úrskurður nái
til "allra þeirra starfa
og stofnana, sem málið
varðaði", en það er rétt
túlkað á þann veg, að
úrskurðurinn nái einnig
til áðumefndra stofnana.
NEFND TIL VIÐ-
RÆÐNA VIÐ SÖKN
Ákveðið hefur verið að
sérstök viðræðunefnd ræði
við fulltrúa Starfsstúlkna-
félagsins Sóknar um ýmis
samráðs- og samskiptamál
félaganna varðandi kaup,
kjör og ráðningar, þar
sem félögin eigi sameigin-
legra hagsmuna að gæta.
í nefndinni eru Einar
ölafsson, Sigurfinnur
Sigurðsson og Guðrún
Árnadóttir, en varamaður
er ólafur Jóhannesson.
FULLTRÚAR í
LANDVERND
SFR á aðild að samtök-
unum Landvemd, og hefur
skipað í fulltrúaráð
þess. Fulltrúar SFR
þar eru Valborg Bents-
dóttir, Veðurstofu
íslands og Páll Hafstað,
Orkustofnun, en til vara
Sigurfinnur Sigurðsson,
Vegagerð ríkisins á
Selfossi.
Fulltrúar félagsins
sátu fulltrúafund Land-
vemdar, sem nýlega var
haldinn í Hveragerði.
Sú breyting, sem verður um áramótin, þýðir því að marg-
falt dýrara verður að kaupa réttindi vegna starfstxma fyrir
l.janúar 1970 en verið hefur til þessa.
Þeir, sem hyggjast gera slíkt, eru því enn á ný hvattir
til þess að hafa samband við stjórn lífeyrissjóðsins sem
allra fyrst.
Einróma ákvörðun
Það kom fram hjá Einari Kr. ísfeld, að þessi breyting
var ákveðin einróma í stjórnum lífeyrissjóðanna, og að
hún hefur verið kynnt beeði í f jölmiðlum og á vinnustöðum.
Með breytingunni er verið að færa iðgjöld vegna réttinda-
kaupa nær núgildandi verðlagi.
Hann sagði, að mikið hefði verið um réttindakaup hjá
sjóðnum, og væri þessi breyting á útreikningi iðgjalda
mikilvæg.
Þessi breyting snertir á engan hátt réttindafluþning úr
öðrum lífeyrissjóðum yfir í lífeyrissjóði opinberra starfs-
manna.
"Hins vegar má geta þess hér, að nú er verið að endur-
skoða reikningsaðferðina við réttindaflutning úr öðrum
sjóðum. Sú endurskoðun er á byrjunarstigi, en væntanlega
yrði niðurstða hennar til hækkunar fyrir þá,sem vilja
flytja réttindi yfir í ríkisstarfsmannasjóðina", sagði
Einar.
stofufólks og fleiri, hafi
verið brotið ákvæði 35.
greinar launalaganna, og
þar með virt að vettugi
lagaákvæði, sem veitir '
BSRB rett til þess að
fylgjast með fyrirætlunum
rikisvaldsins, og hafi sam-
tökum opinberra starfs-
manna með þessu verið ~sýnd
litilsvirðing.
Fundurinn vill og vekja
athygli á því, að með
þeirri réttindaskerðingu,
sem felst í lengingu vinnu-
txmans, er um öfugþróun að
ræða, gagnstæða því, sem
gerist hjá öðrum stéttum
þjóðfélagsins, auk þess
sem lagalegur grundvöllur
fyrir þessari ákvörðun er
hæpinn, þar sem áðurnefnd
vinnutxmaákvæði fjárlag-
anna virðast brjóta í
bága við launalög.
Fundurinn telur því, að
stefnt sé í fyllsta óefni
hvað snertir sambúð rxkis-
valdsins og ríkisstarfs-
manna með framkvæmd svo
hæpinna ráðstafana, og
felur stjórn bandalagsins
að gera enn eina tilraun
til þess að ná samkomulagi
um lausn málsins í samráði
við stjórnir þeirra félaga,
sem þetta mál varðar.
Fundurinn skorar eindreg-
ið á samtök opinberra
starfsmanna að veita þeim,
er ákvæðum þessum er ætlað
að ná til, allan þann
stuðning í þessu máli, er
þau mega".
FÉLAGSGJÖLD
TIL BSRB
Á síðasta ári greiddi
SFR í félagsgjöld til
heildarsamtakanna, BSRB,
14 milljónir 72 þúsund og
842 krónur.
Fyrstu 10 mánuði þessa
árs hafa þessar greiðslur
numið 17.822.858 krónum.