Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 13.12.1978, Blaðsíða 6

Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 13.12.1978, Blaðsíða 6
6 FÉLAGSTÍÐINDI Svipmynd frá trúnaöarmannaráðsfundi RÆTT VIÐ EINAR Franhald af bls. 5 Viö fögnum því sárstaklega aö hafa flutt inn í nýtt húsnaeÖi á árinu. Það, að kom- ast inn í þetta húsnæöi, gjörbreytir allri aöstöðu okkar til starfa. Nú geta vinnu- hápar fundaö fleiri en einn í einu. Viö höfum rúmgóðan fundasal, þótt hann sá ekki enn fullfrágenginn. Einnig höfum við sár- staka aöstööu fyrir þær ýmsu deildir, sem eru í fálaginu. Hver deild á hár í sárstöku herbergi sína hirslu, og þar er fundarhorð, sími og annaö, sem til þarf, og það er ánægjulegt að sjá hversu þessi aðstaða er vel notuð. Á þessu ári höfum viö eins og áöur sinnt fræðslumClum verulega og ber þar að þakka þeirri nefnd, sem um fræðslumálin hefur fjallað. Auk þess hefur það reynst okkur styrkur, aö BSRB hefur sárstakan fræðslu- fulltrúa. Rátt er að hvetja fálagsmenn til að nýta þá aðstöðu, sem fálagið og heildarsamtökin bjóða upp á varðandi fræðslustarf. Þátt- takan í frceðslustarfi á vegum SFR hefur verið góð, og við munum halda þeirri starf- semi áfram á næsta ári eins og verið hefur. En fyrst farið er að ræða fræðslustarf- semi þá vil ág nota tækifærið til að lýsa óánægju okkar með einn þátt þeirrar starf- semi á árinu. Þar á ág við námskeið, sem haldið var fyrir starfsfólk á skattstofum. Við teljum, að ekki hafi verið rátt á málum haldið. Við prófúrslit á því námskeiði kom í ljós, að megnið af því fólki, sem fengið hefur mikla reynslu í starfi á skattstofunum, stóðst ekki prófið. Okkur finnst, að það sá einhver hrekkjalómur, sem þar hafi eyðilagt góða meiningu. Fyrir skömmu háldum við fyrsta fundinn ' með nýkjörnu trúnaðarmannaráði, og eins og áður fjölmenntu þeir á þann fund. Trúnaðar- menn okkar hafa alltaf verið mjög fálagslega virkir og sinna vel sínum málum. Ég held að stjóm fálagsins megi vera ánægð með, hversu vel gengur að fá fólk til að vinna að málum fálagsins á breiðum grundvelli. Sjónarmiðin innan fálagsins eru auðvitað mörg, því hóparinir eru margir, en málin eru leyst málefnalega, og við eigum í því efni von á góðu samstarfi með nýkjömu trúnaðarmannaráði. Að öðru leyti hefur starfsemi fálagins gengið sinn vanagang. Við höfum mjög góðan vinnukraft á skrifstofunni. Þeir vinnuhóp- ar, sem starfa innan fálagsins, eru mjög samstæðir. Þar er dre'iglundin í fvr.ir- rúmi og málin yfirleitt leyst á fálagslegum gmndvelli. HORFUR Á NÆSTA ÁRI - En hvað viltu segja um komandi ár. Verður það mikilvægt ár kjaralega seö fyrir fálagsmenn SFR? - Það fer ekkert á milli mála. Það á mikið eftir að gerast á næsta ári í kjara- og efnahagsmálum. Einu sinni var mönnum lofað öllu góðu í eilífðinni, og þar er einmitt það sama, sem maður horfir fram á núna. í samráðsviðræðunum er verið að lofa ekki aðeins launþegum heldur öllum almenn- ingi í landinu ýmsum fálagslegum umbótum, sem ekki verða framkvæmdar á einni skammri stundu heldur taka tíma. Þess vegna er spurningin nú eiginlega sú: hvað mun ei- lífðin gefa, þótt hún sá ekki nema næsta árið. Og þrátt fyrir góðar meiningar og vilja til samráðs fer ekki á milli mála, að allt er í tvísýnu. Það er ekki búið að leysa öll vandamál. Jú, ág vil að síðustu þakka öllum trúnað- amönnum fálagsins og starfsfólki gott samstarf á árinu um leið og ág óska þeim og öllum fálagsmönnum velfamaðar og friðar á næsta ári. Rætt við Kristínu FramJiald af bLs. 8 Þá hefur verið gert samkomulag við Menningar- og fnæðslusamband alþýðu um leið- beinendanámskeið á minni stöðum úti á landi, og eins námskeið um blaðaútgáfu og samskipti við fjölmiðla. BSRB-námskeiðin verða síðar auglýst sár- staklega í Ásgarði. Veita hópum aðstoð "Við höfum sárstaklega hvatt til þess að hópar starfsmanna taki sig til og efni til námskeiðs um eitthvert ákveðið efni, sem hópurinn hefur sárstakíir áhuga á, og við munum þá veita alla þá aðstoð sem við getum við undirbúning og framkvæmd slíks nám- skeiðs", sagði Kristín.

x

Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana
https://timarit.is/publication/1544

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.