Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 13.12.1978, Blaðsíða 5

Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 13.12.1978, Blaðsíða 5
FÉLAGSTÍÐINDI 5 vegna hafa þeir leitaÖ eftir því, hvort hægt væri aö takaokkur launþega inn í spjall um málin og .veita okkur óbein áhrif á gang mála. Hvort þaÖ gerir okkur ábyrgari eða þjóöfélagiö betra skal ég ekki um segja, en hingai til hefur ekki komið mikiö út úr þessu. Að vísu voru geröar ráðstafanir í kringum mánaöarmotin, eins og kunnugt er, þar sem veröbætur til launþega voru rýrðar. A móti komu félagslegar ráÖstafanir, sem verkalýðshreyfingin hefur metiö jafngildi þess, sem af var tekið. Þaö er jú svo, aö fleira er matur en feitt kjöt, og ekki veröur allt irælt í krónum í lífinu. Það getur því verið réttmætt aö fórna til skamms tíma til þess aö koma félagslegum úrbótum í framkvæmd. - Sumir fullyröa, aö verkalýðshreyfingin sé miklu s'kilningsríkari viö núverandi ríkisstjórn en stjóm Geirs Hallgrímssonar. Er þaö rétt? - Ég held fyrst og fremst að þessi stjórn hafi sýnt launþegum mun meiri skilning held- ur en fyrri ríkisstjórnir. HÚn hefur tekið upp allt aðrar aðferðir í samskiptum við launþega. HAGSMUNASAMTÖKIN OG AIJ>INGI - Þú sagðir áöan, aö þaö væri stjómar- farslegt tómarúm x landinu. Hvemig er réttast að fylla þaö að þínu mati? - Stjórnmálaflokkamir hafa reynt að brúa bilið út til hagsmunahópanna með því að velja vissa menn úr þeirra röðum til fram- boðs. En einhvem veginn hefur þetta ekki gengið. Ég tel aö þaö, hversu stjómmála- flokkarnir eiga erfitt með að gegna hlut- verki sínu viö stjórn landsins, starfi af þvx, að hagsmunahópamir - hvort sem það eru launþegar, bændur eða aörir - ná ekki saman innan þeirra. Þaö vantar þá samábyrgö og tillitssemi, sem þarf að ríkja á milli hagsmunahópanna, ef vel á að fara um stjórn landsins. ÞaÖ eru allir að tala um prófkjör og hvemig kjördæmaskiptingin eigi að vera, en ég hefi lengi verið þeirrar skoöunar, að eina raunhæfa kjördænabreytingin, sem hægt væri að gera í þessu þjóðfélagi, vseri að afnema þá gönlu hefö að aöskilja kjördami við læki eða fjallatoppa. Þess í stað ætti aö flytja kjördæmin beint út í hagsmunahópa þjóðfélagsins. Ef þaö væri gert væri kannski von til þess, að ekki yrði jafn sterkur svipur fræöimennsku á Alþingi og nú er, heldur sæti þar almenningur, sem gerði sér grein fyrir því,hvemig taka ætti á ábyrgan hátt á málum til almannaheilla. En í þessum efnum búum við auðvitað viö gamlar hefðir, og menn eiga erfitt með að hugsa sér að fara aðrar leiðir, því miöur. En nýjar leiðir og tilraunir meö aðrar aö- feröir en reyndar hafa veriö, eru nauösyn- legar ef árangur á að nást. MIKILVÆG RÉTTINDAMáL - I þessum samráðsviðræðum hafa ýmis fram- faramál borið á góma, er ekki svo? - Jú, það hefur verið fjallaö um ýmis mál, sem geta skipt miklu máli fyrir launafólk. Sem dæmi get ég nefnt, að við höfum rætt þar um fulla aðild okkar aö Atvinnuleysis- tryggingasjóöi. Sem kunnugt er hefur sí- fellt rýmað réttarstaöa okkar að því er æviráðninguna varöar. Hins vegar höfum við ekki aðgang aö Atvinnuleysistryggingasjóði. Við sjáum þess iðilega dæmi innan félagsins, að félagar okkar standa höllum fæti ef þeir missa vinnuna, miðað viö það, sem gildir um félaga í almennu verkalýösfélögunum. Viö höfum einnig viújað fá aðild að hús- næöisframkvæmdum ríkisins, og þaö hefur veriö tekið vel í það. Þá hefur verið rætt um lífeyrissjóðsmál og sérstaklega ósk okkar um, að aðild ríkis- starfsmanna að Biðreikningi verði afnumin. Til þess aö svo megi verða þarf laga- breytingu til aö lækka aldursmarkiö í Lífeyrissjóði ríkisstarfsmanna úr 20 árum í 16. Það hefur einnig verið tekiö nokkuö vel í þetta. Þá hefur verið rætt um stöðu hálfopinberra stofnana, en starfsfólk þeirra er í okkar félagi, tekur laun samkvænt okkar samningum og hefur sömu réttindi og skyldur og ríkis- starfsmenn. Samkvamt samningsréttarlögunum er þetta fólk hins vegar ekki fullgildir aðilar að BSRB þegar t.d. til atkvæðagreiðlu um sáttatillögu og annars slxks kemur í kjaradeilu. ðsk okkar um breytingar á þessu í J?á átt að þetta fólk fái að taka fullan þátt í öllum ákvöröunum til jafns við aðra félagsmenn í BSRB, hefur fengið jákvæðar undirtektir, hver svo sem endanlega niður- staðan verður. STARFSEMI SFR A ÁRINU SEM ER AÐ LÍÐA - Nú er áriö 1978 brátt á enda. Hvað er þér efst í huga úr starfi SFRc á þessu ári? - SFR er svo til búiö að ljúka sínum sér- s^mningum. Strax og rammasamningur BSRB var undirritaður varð það okkur mikið áhyggjuefni, hvernig útkoma okkar yrði í sérkjarasamningum. Rainmasamningurinn var að mínu áliti góður. Hann gaf opinberum starfsmönnum mikið í aðra hönd, auk þess sem mun meira réttlæti hefur ríkt á milli hins almenna vinnumarkaðar og rxkiskerfis- ins eftir að þessi samningur var gerður. En að því er sérkjarasamninginn varðar, þá er það nú svo, að margt annað en réttlæti getur haft áhrif á útkomuna, og þaö er eins og menn sitji ekki ætíð við sama borð gagnvart mótaðilanum. Almennt held ég þó að við megum sæmilega við una í þessu efni, þótt við fengjum ekki neitt á silfurfati, og ekki heldur prívatafgreiðslu eins og sumir aðrir hafa fengið. Framhald á bls. 6

x

Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana
https://timarit.is/publication/1544

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.