Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 13.12.1978, Qupperneq 8
8
FÉLAGSTÍÐINDI
Rætt við Kristínu Tryggva-
dóttur, fræðslufulltrúa BSRB
Kristín Tryggvadóttir, fræðslufulltrúi BSRB.
Hargvíslegt námskeiðahald er fyrirhugað
á vegum SFR og BSRB á fyrstu mánuðum næsta
árs, bæði í Reykjavík og úti á landi.
Tíðindamaður Felagstíðinda ræddi á dögun-
um við Kristínu Tryggvadóttur, sem tók við
starfi sem fræðslufulltrúi hjá BSRB í sept-
ember sxðastliðinn. Krístín er kennari að
mennt og hefur kennt við Öldutúnsskóla í
Hafnarfirði og starfað hjá skólarannsóknar-
deild menntamálaráðuneytisins við námsbóka-
gerð. Hún er ritari í stjóm BSRB.
"Á vegum BSRB hafa þrír fræðslufundir
verið auglýstir", sagði Kristxn. "Hver
þeirra stendur eitt kvöld. 9. janúar, kl.
20.30, mun Kristján Thorlasíus, formaður
BSRB sitja fyrir svörum um kjaramál og bar-
áttu BSRB síðastliðið ár. Að kvöldi 25.
janúar mun sérfræðingur í skattamálum út-
skýra helstu ákvæði skattalaga og leiðbeina
varðandi skattaframtöl, og 12. febrúar
verður kvöldfundur í tilefni af alþjóðaári
bamsins um bamið og samfélagið.
SFR-námskeið
Ýmsar hugmyndir eru um námskeið á vegum
SFR fyrstu mánuði ársins, og verða þau öll
haldin ef áhugi reynist nægur meðal félags-
manna.
"Hugmyndir eru að halda námskeið um líf-
eyrismál, um aðbúnað á vinnustað, um
fundatækni og um bókmenntir og listir",
sagði Kristín. "Við viljum hvetja félags-
menn til að velta þessum hugmyndum fyrir
sér, og eins að koma með aðrar hugmyndir um
námskeiðsefni. Allar hugmyndir verða tekn-
ar til athugunar".
NOKKRAR HUGMYNDIR UM NÁMSKEIÐ SFR
1. Um lífeyrismál. 4-5 kvöld eða 2 dagar.
Erindi um: lanveitingar, lífeyrisþega, lög
um lífeyrissjóði, biðreikning o.fl. Panel-
umræður. Hópvinna til að semja spumingar
til panels og við lausn verkefna. Fyrir-
spurnir - umræður.
2. Um aðbúnað á vinnustað: Starfs umhverfið.
Traust og' 'samstarf vinnuf'élaga. Erindi: • •
Sjálfstæði og áhrif. Stjómun. Aðbúnað
(vinnumáti, skipulagning, öryggismál og
vélar). Tilbreyting og framhaldsnám. Fyrir-
spumir - umræður. Hópvinna um verkefni.
3. Námskeið í fundartækni. 4 kvöld.
1. kvöld. Fundarsetning: Skipun fundar-
stjóra og fundarritara. Kynning þátttakenda.
Kynning og dreifing gagna um samtals og ræðu-
tækni. Uirræður og fyrirspurnir. (Undir-
búningur næsta kvölds). Fundarslit.
2. kvöld. Fundarsetning: Skipun fundar-
stjóra og fundarritara. Erindi um fundar-
sköp og fundarstjóm. Umræður og fyrir-
spumir. Stuttar undirbúnar ræður þátttak-
enda. Gagnrýni. Undirbún. næsta kvölds.
Fundarslit.
3-4 kvöld. Æfingar í að stjórna fundi,
ræða mál og halda fram ákveðnum skoðunum.
Gagnrýni.
4. Um bótonenntir og listir. Nokkur kvöld.
Kynntar bokmenntir og ymsar listgreinar og
listastefnur.
Þessi SFR- námskeið verða nánar kynnt í
næsta tölublaði Félagstíðinda, sem kom út
eftir áramót.
Námskeið úti á landi
Kristín sagði, að BSRB væri að beita sér
fyrir almennum félagsmálanámskeiðum úti á
landi, og væri þar stefnt að því að öll
félög opinberra starfsmanna á staðnum stæðu
saman að námskeiðunum. Þegar væri ákveðið
að halda slxk námskeið á Siglufirði, Blöndu-
ósi, ísafirði, Akranesi, Neskaupstað og á
Akureyri, og væru SFR-menn aðilar að þeim.
Stefnt er að því að halda slxk námskeið á
10-15 stöðum £ vetur. Námskeiðin verða
sennilega flest haldin í mars.
Framhald á bls. 6