Skákblaðið - 01.11.1934, Page 16
Skákhlaðið ——— [M]
Þýzkir skákmeistarar efndu til skákþings £ Bad Niendorf dagana
24. júní —4. júlí þ. á, Ymsum af skákmeisturum Norðurlanda var
boðið á þingið. Sigurvegari varð Svíinn Stáhlberg, og tapaði hann
engri skák. Yfirleitt þóttu Norðurlandamenn standa E'jóðverjum fyili-
lega á sporði, t. d. náði Daninn Björn Nielsen 4. verðlaunum og
Svíinn Stoltz þeim 6.
Hið árlega enska skákþing var háð x Chester dagana 30. júlí —
11. ágúst. Þátttaka var mjög mikil. Skákkonungur Engíands varð
að þessu sinni sir G. Thomas, fékk 8!/2 vinning af 11 tefldum skák-
um og tapaði engri skák. Næstir urðu: 2.-3- W. A, Fairhurst, Glas-
gow, og R. P. Michell, Kingston, 7V2 v. 4.—5. C H. Alexander og
Rupert Cross (blindi drengurinn) 6!/s v. 6. H. Golombek 6 v. —
Meistaratignina fyrir konur vann ungfr. Gilchrist, Glasgow, fékk 9
vinninga af 11 tefldum skákum. 2. Frú Michell, Kingston, 8!/s v,
3. Frú Andrews, London, 8 vinninga.
Sfðari hluta ágústmánaðar var skákmeisturunum dr. Max Euwe
og Hans Kmoch boðið til Sovét-Rússlands, og tóku þeir þátt í skák-
þingi, sem háð var í Leningrad. Urslit þessa þings komu mönnuni
mjög á óvart, því að fimm af rússnesku meisturunum urðu fyrir ofan
dr. Euwe. Sigurvegari varð hinn ungi skákkonungur Rússa, Botwinn-
ik, 71/* vinning, síðan komu 2. — 3 Romanowsky og Rjumin 7. v.
4. Rabinowitsch 6Vs v. 5. Kan 6 v. 6, dr. Euwe 5!/2 v. 7.-8.
Kmoch og Judowitsch 5 v. 9 —10. Alatorzew og Lissitzin 4A/2 v.
11. Lövenfisch 4 v. 12. Tschechover 3!/2 vinning.
Þing norska skáksambandsins var háð að Hamri um mánaða-
mótin júlí—ágúst, Skákkonungur Norðmanna varð nú í annað sinn
T. Halvorsen frá Oslo. Urslit í meistaraflokki urðu að öðru leyti
þessi: 2. varð dr. Storm Herseth, Oslo. 3. G. Christiansen, sama
stað. 4. A. Krogdahl, s. st. í fyrsta flokki sigraði S. Alstad, Trond-
heim, 2. K. Stanes, Torshov, og 3. O. Kristiansen, Lilleström.
í maí-mánuði s. 1, var háð alþjóða skákmót í Budapest, Þátt-
takendur voru 16, Flestir yngstu og efnilegustu meistarar álfunnar
voru þarna saman kcmnir, Sigurvegari varð Albaninn Lilienthal.
Hann tapaði engri skák og þótti afbragðs vel gert. Annar varð