Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 24.06.1988, Page 1

Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 24.06.1988, Page 1
 STARFSMANNAFÉLAG RÍKISSTOFNANA AF EFNI BLAÐSINS MARGT ÓLJÓST UM FRAMKVÆMD SAMN- INGSRÉTTARLAGANNA - sjá bls. 2 GIFURLEGUR SAM- DRÁTTUR í lAnum LÍFEYRISSJÓÐA TIL SJÓÐFÉLAGA - sjá bls. 3 NIÐURSTÖÐUR NEFNDAR UM LAUNAJAFNRÉTTI HJA RÍKINU - sjá bls. 4-5 Alyktanir AÐAL- FUNDAR SFR 1988 - sjá bls. 6-7 MAT LAGT A KJARA- SAMNINGA VORSINS - sjá bls. 8 Ljósmyndir í Félagstíðindum: Pétur Óskarsson Aðför að lýð- réttindum Meó bx'áðbirgðalögum þeim, sem sett voru 20. maí síðast- liðinn, var samningsréttur launafólks í reynd afnuminn í allt að eitt ár. Samtök launafólks hafa eðlilega unað þessari árás á frjáslan samningsrétt illa. Stjórn Starfsmannafélags rxkisstofnana samþykkti á fundi sínum 25. maí síðastliðinn ályktun þar sem fram kom hörð andstaða við bráðabirgðalögin. Stjórn SFR "mótmælir harðlega aðför ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar að sjálfsögðum lýðréttindum launþega með afnámi samningsréttar þeirra", segir í ályktuninni. "Stjórn félagsins væntir þess að stjórn BSRB, í samstarfi við önnur samtök launþega, beiti sér fyrir aðgerðum til að endurheimta samningsréttinn, með undirskriftum, útifundum eða öðrum aðgerðum og láta með því stjórnvöld finna hvar Davíð keypti ölið". SFR tekur undir það sjónarmið, sem fram hefur komið hjá Alþýðusambandi íslands, að með setningu bráðabirgðalaga sem þrengja með þessum hætti lýðréttindi þegnanna, hafi ríkis- stjórnin misfarið með lögbundinn rétt sem hún hefur til útgáfu bráðabirgðalaga. í stjórnarskránni segir, að hægt sé að gefa úr slík lög "þegar brýna nauðsyn ber til". En jafnframt er tekið skýrt fram, að slík lög megi ekki brjóta í bága við stjórnarskrána. Alþýðusambandið hefur nú kært bráðabirgðalög rikisstjórnar- innar til Alþjóðavinnumálastofnunarinnar. 1 okkar lýðfrjálsa landi er það réttur launafólks að annast sín samningamál sjálft með frjálsum hætti. Það eru grund- vallar mannréttindi íslensks launafólks. Þau verður að vernda með því að snúast harkalega gegn öllum árásum á frjálsan samningsrétt. Ábyrgðarmaður: Einar Óiafsson Umsjónarmaður: Elías Snæland Jónsson Afgreiðsla: Grettisgata 89

x

Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana
https://timarit.is/publication/1544

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.