Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 25.01.1989, Síða 6
6
FÉLAGSTÍÐINDI
Mótmæli opinberra starfsmanna fyrir framan Karphúsió í verkfallinu 1984.
Málaferli gegn stéttarfélögum
SFR er eitt alstærsta félag launþega í
landinu og telur á sjötta þúsund félags-
manna í föstu starfi.
Ákvörðun Flugleiða um málshöfðun gegn einu
af minni verkalýðsfélögum landsins, er eins
og köld skvetta í andlit þeirra aðila
innan hennar, sem barist hafa fyrir kjör-
orðinu - kaupum íslenskt - notum íslenska
þjónustu.
Félagar innan BSRB sem tiltölulega nýlega
öðluðust samningsrétt, hafa á þeim fáu árum
sem liðin eru, ítrekað orðið fyrir hótunum
um málssókn eða verið stefnt fyrir rétt í
kjölfar þeirra tveggja verkfalla, er þeir
hafa tilneyddir stofnað til.
Til upprifjunar skulu nokkur þau helstu
rakin:
- íslenska Álfélagið okt. 1977, vegna
ágreinings um framkvæmd verkfallsvarða
BSRB er hindruðu losun úr risastóru
Líberíufari frá Ástralíu. HÓtaði félag-
ið lögbanni og síðan skaðabótamáli vegna
framkvæmdanna. Fallið var frá málshöfðun
á síðara stigi.
- Forsvarsmenn DV höfðuðu mál á hendur for-
ystumönnum Starfsmannafélags Sjónvarps
og Útvarps, að loknu verkfalli BSRB 1984.
Málið tapaðist fyrir Hæstarétti og for-
svarsmenn starfsmannafélaganna sýknaðir
af ákærum Frjálsrar fjölmiðlunar.
- Vinnuveitendasamband íslands hótaði for-
ystumönnum BSRB ítrekað með bréfum lög-
sókn í nafni Flugleiða, ístaks og fslensk-
ra aðalverktaka, þar sem lýst var fullri
ábyrgð með kröfur um bætur fyrir allt
tjón er þau urðu fyrir vegna verkfalls-
aðgerða BSRB 6. - 10. okt. 1984 á Kefla-
víkurflugvelli.
Eimskip vann málið í undirrétti og á
grundvelli þeirrar niðurstöðu var gerð
sátt í málinu.
- Háskóli íslands höfðaði mál á hendur BSRB
að loknu verkfalli 1984 vegna framkvæmda
við verkfallsvörslu á Háskólalóðinni.
BSRB var sýknað í undirrétti en málið
tapaðist síðan í Hæstarétti.
Her hafa verið rakin nokkur mál sem höfðuð
hafa verið á BSRB og forystu samtakanna á
þeim skamma tíma sem viðurkenndur verk-
fallsréttur eða fullur og óskoraður samn-
ingsréttur hefur verið í höndum samtakanna.
Viðhorf atvinnurekenda til launþega koma
glöggt í ljós með öllum þeim málatilbúnaði
sem hafður var í frammi á undangengnum
árum, í þeim tilgangi einum að hrella og
hrekkja samtök launþega frá því að standa
á rétti sínum.