Fréttablaðið - 24.03.2021, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 24.03.2021, Blaðsíða 6
Þegar gasið streym- ir hér frá kvikunni getur það verið hættulegt fyrir litla hunda. Ef þú ert að hósta, þá eru hundarnir að kafna. Soffía Sigurðar- dóttir, björg- unarsveitarkona í Björgunarfélagi Árborgar NÁTTÚRA „Við verðum með ferðir inn á svæðið um leið og það er heim- ilt,“ segir Helgi Már Gunnarsson hjá Ferðafélagi Íslands, sem hyggst bjóða skipulagðar gönguferðir að gosstöðvunum í Geldingadölum. Fyrirkomulagið verður þannig að fólk mætir að bílastæðunum austan við Festarfjall, við upphaf göngu- leiðar sem nú hefur verið stikuð. „Það verða leiðsögumaður og jarð- fræðingur með í för,“ segir Helgi. Varðandi hættu af gasi segir hann að fylgst verði náið með upplýsing- um frá Veðurstofunni og mælingum björgunarsveita á staðnum. Áætlað er að ferðirnar vari í um fimm klukkustundir frá bílastæð- inu og til baka. Gjaldið er fimm þúsund krónur. Á heimasíðu Ferða- félagsins verða nánari upplýsingar og þar eru einnig ábendingar um útbúnað fyrir gönguna. - gar Gönguferð með jarðfræðingiSkiltagerð og merkingar Inni og úti merkingar, spjöld og skilti. Kíktu á heimasíðuna okkar og skoðaðu þjónustuna sem er í boði. Xprent ehf. | Sundaborg 3 | 104 Reykjavík | 777 2700 | xprent@xprent.is SANDBLÁSTURSFILMUR BÍLAMERKINGAR SKILTAGERÐ www.xprent.is KYNNINGARSVÆÐI ✿ Ný gönguleið að Geldingadölum Bo rg ar fj. Gosstöðvar Nátthagakriki ↢ Grindavík Gönguleið Nátthagi Suðurstrandarvegur NÁTTÚRA „Við vorum nýkomin með fólk niður úr hlíðinni þegar ein rásin opnaðist með miklum látum og hraun streymdi niður svæðið þar sem fólkið hafði staðið einungis örfáum mínútum áður,“ segir Soffía Sigurðardóttir, björgunarsveitar- kona í Björgunarfélagi Árborgar, sem stóð vaktina í gær á gossvæðinu. Björgunarsveitin hafði varað fólk við að ný rás gæti opnast í miðri hlíðinni og stóra gígnum eða „turn- inum“ eins og margir eru farnir að kalla hann. Ofurhugarnir voru fljótir að átta sig á alvarleika málsins þegar hraunið flæddi yfir gamla útsýnis- staðinn. „Sama gerðist á Fimmvörðuhálsi, þegar menn voru næstum dottnir ofan í nýja gíginn þegar seinna eld- fjallið myndaðist,“ útskýrir Soffía. Aðspurð segir hún þetta ekki sitt fyrsta gos. Hún mætti sjálf með fjöl- skylduna þegar Hekla gaus árið 1980. „Sonur minn fylgdist þá með tveimur herþotum fljúga yfir fjallið. Hann hélt um stund að herinn hefði varpað sprengju þegar sveppaskýið steig upp frá Heklu en ég áttaði mig strax á því að nú væri farið að gjósa. Þá greip ég fjölskylduna og fór beint að hrauninu.“ Soffía hóstar svolítið líkt og aðrir sem hafa verið á svæðinu í langan tíma en eiturgufurnar geta ert slím- húðina og valdið hósta. Hætta staf- ar ekki einungis af þúsund gráða heitu fljótandi hrauninu, heldur af eiturgufunum sem stíga upp af því. „Ég er að beina fólki með lítil börn og hunda frá. Þegar gasið streymir hér frá kvikunni getur það verið hættulegt fyrir litla hunda. Ef þú ert að hósta, þá eru hundarnir að kafna. Það er allt í lagi að skjótast niður að ná sér í einn hraunmola úr kalda hlutanum en fólk verður að passa sig við heitu svæðin.“ ingunnlara@frettabladid.is Var forðað úr svimandi hita og eiturgufum Björgunarsveitir hafa staðið vaktina við gossvæðið í Geldingadölum og smalað fólki, sem hættir sér of nálægt 1.000 gráða heitu hrauninu, upp brekkuna. FJARSKIPTI „Það eru allir að vinna að því hörðum höndum að þetta geti gerst,“ segir Rögnvaldur Ólafs- son, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannavörnum, varðandi upp- setningu fjarskiptabúnaðar við gos- stöðvarnar í Geldingadölum. Rögnvaldur segir að unnið hafi verið að skipulagningu málsins frá því fyrir helgi. „Það skiptir máli að viðbragðsaðilar séu með gott fjarskiptasamband þarna upp frá og líka að almenningur sé í góðu símasambandi þannig að fólk geti látið vita af sér og kallað á aðstoð ef það lendir í einhverjum vandræð- um,“ segir Rögnvaldur sem kveður framkvæmdina hins vegar dálítið flókna. „Það er ekkert rafmagn á svæðinu og það þarf að vera varaafl og bún- aðurinn þarf að vera á þannig stað að það sé hægt að komast þangað reglulega af því að það þarf að bæta á olíu,“ segir Rögnvaldur. Niður- staðan virðist ætla að verða sú að nýi búnaðurinn verði settur niður ofan á Langahrygg, suðaustur af eld- stöðinni. – gar Koma á símasambandi við nýju gosstöðvarnar Rögnvaldur Ólafsson, að- stoðaryfirlög- regluþjónn hjá Almannavörnum Gosið í Geldingadölum var tignarlegt sem fyrr þegar Fréttablaðið bar þar að garði. Jöfn virkni var í kötlunum tveimur og er búist við að gosið standi í töluverðan tíma. Það liggur því ekki lífið á að kíkja á herlegheitin. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 2 4 . M A R S 2 0 2 1 M I Ð V I K U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.