Fréttablaðið - 24.03.2021, Síða 20

Fréttablaðið - 24.03.2021, Síða 20
Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@frettabladid.is Sigurður Egilsson, afi Arn-ars, sem er nýr stjórnar-formaður Marels, f jár-festi fyrst í Marel árið 1992 í kjölfar skráningar f yrirtækisins á hluta- bréfamarkað. „Hann keypti fyrst í Marel á genginu rúmlega einn. Það þótti merkilega hátt verð á þeim tíma og seljendur voru afar ánægðir með söluna,“ segir Arnar Másson, stjórnarformaður fyrirtækisins. Nú er gengi hlutabréfa Marels 830. „Afi var áhugaverður. Hann var einn af fyrstu fagfjárfestum Íslands. Afi sinnti ekki rekstri tiltekins fyr- irtækis frá degi til dags eins og tíðk- aðist hjá kaupsýslumönnum á þeim tíma, heldur sat hann í stjórnum fyrirtækja sem hann átti drjúgan hlut í. Fjölskyldan vissi lítið um umsvifin jafnvel þótt ég hafi fylgt honum á aðalfundi Marels þegar ég var yngri,“ segir Arnar. Sigurður, sem átti lengi vel tíu prósenta hlut í Marel, sat í stjórn fyrirtækisins frá árinu 1992 og fram að andláti árið 2000, þá 79 ára að aldri. Arnar settist í kjölfarið í stjórnina fyrir hönd fjölskyldunn- ar, þá 29 ára, í krafti eignarhlutar hennar á aðalfundi árið 2001. Arnar var kjörinn varaformaður árið 2013 og tók við sem stjórnarformaður á aðalfundi félagsins sem haldinn var 17. mars síðastliðinn. Nú eiga börn Sigurðar ríf lega tveggja prósenta hlut í fyrirtækinu. „Fjölskyldan hefur átt hluta- bréfin allar götur frá árinu 1992 og einungis selt hluta bréfanna. Systk- inin, börn Sigurðar, hafa haft mikla trú á Marel en segja má að þau hafi ekki lifað í vellystingum jafnvel þótt þau eigi þessa verðmætu eign í dag, enda er hún bundin í hlutabréfum og hlutabréfaverðið hefur farið upp og niður á þeim tíma sem þau hafa verið hluthafar. Þau stunduðu hefðbundna vinnu alla tíð en eru nú komin á eftirlaunaaldur. Hafa ber í huga að Marel greiddi hluthöfum lengi vel ekki arð enda var félagið í örum vexti. Á árunum fyrir hrun var systkin- unum ráðlagt af fjármálasérfræð- ingum að selja hlut sinn í Marel og fjárfesta í bönkum því þeir greiddu ríkulegan arð. Það var mikil gæfa að þau fóru ekki að þeim ráðum, ef til vill var það vegna þess að þau hugsa ekki eins og hefðbundnir fjárfestar til skamms tíma,“ segir Arnar. Eimskip, Hampiðjan og Hvalur Sigurður átti í fjölda fyrirtækja við andlátið. „Oft átti hann um tíu prósenta hlut í hverju fyrirtæki fyrir sig. Má nefna fyrirtæki eins og Hampiðjuna, Eimskip og Hval. Hann átti einnig í minni fyrir- tækjum eins og Límtré Vírneti og kom að stofnun Sigurplasts. Fjár- festingarnar voru af ýmsum toga en yfirleitt tengdar íslensku hug- viti eða iðnaði. Ég veit ekki til þess að hann hafi nokkurn tímann selt í þeim fyrirtækjum sem hann átti. Hann fjárfesti og átti hlutabréfin alla tíð. Margar af f jár festing unum heppnuðust býsna vel. Jafnvel þótt Marel sé f laggskipið núna var það ekki endilega raunin fyrir þremur áratugum. Á þessum tíma hefur Marel vaxið frá því að vera lítið sprotafyrirtæki sem framleiddi lausnir fyrir íslenskan sjávarútveg, í að vera leiðandi á heimsvísu í þróun og framleiðslu heildarlausna, hug- búnaðar og þjónustu fyrir matvæla- vinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Þegar hann fjárfesti í fyrirtækinu velti það um 6 milljónum evra og starfsmenn voru 45. Við andlát hans velti Marel um 100 milljónum evra og starfsmenn voru 700. Afi var mjög stoltur af fyrirtækinu. Nú veltir Marel um 1,2 milljörðum evra og starfsmenn eru tæplega 7.000 í yfir 30 löndum,“ segir Arnar. Hann segir að í kringum netból- una hafi margir boðið Sigurði að festa kaup á hlut í netfyrirtækjum og öðrum tæknifyrirtækjum eins og DeCode. „Afi sagðist ekki skilja þann rekstur og lét það eiga sig,“ segir Arnar. Sonur athafnamanns Sigurður var eitt þriggja barna Egils Vilhjálmssonar sem var áberandi í viðskiptalífinu á sínum tíma. Hann stóð meðal annars í bílainnf lutn- ingi á Willy‘s jeppum og rak bíla- verkstæði, var einn af stofnendum Hvals, leigubílastöðvarinnar Bif- reiðastöðvar Reykjavíkur og Stræt- isvagna Reykjavíkur, sem borgin keypti síðar. „Börn Egils erfðu fyrirtækið við andlát föður síns. Einhverju seinna selur afi minn hlut sinn og hefst handa við að fjárfesta,“ segir Arnar. Lengi embættismaður Víkur nú sögunni að nýjum stjórn- arformanni Marels, Arnari Más- syni, barnabarni Sigurðar. „Ég er Fjölskyldan stutt við Marel í áratugi Fjölskylda Arnars Mássonar, nýs stjórnarformanns Marels, hefur átt í fyrirtækinu í þrjá áratugi. Arnar tók sæti í stjórn Marels árið 2001 við fráfall afa síns, Sigurðar Egilssonar, sem hafði setið í stjórninni frá árinu 1992. Sigurður var umsvifamikill fjárfestir. „Við hjá Marel höfum litið svo á að það sé nauðsynlegt að stjórnarformaðurinn geti varið nægum tíma í starfið. Það er erfitt ef viðkomandi er í fullri vinnu,“ segir Arnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Djúp sérhæfing hjá stórum erlendum sjóðum „Stjórn á í góðu samtali við hlut- hafa. Áður fyrr hittum við alltaf þá allra stærstu en eftir að hlut- hafahópurinn varð fjölbreyttari hittum við nú allt að 20 hluthafa að máli. Meirihluti þeirra sem við hittum er erlendur, í kjölfar skráningar á hlutabréfamarkað í Amsterdam árið 2019,“ segir Arnar. Hann segir að stjórnin vilji fræðast um af hverju hluthaf- arnir fjárfestu í Marel og hvaða væntingar þeir hafi. „Við ræðum ekki um reksturinn, stjórnenda- teymið sér um það, heldur tökum við fyrir stjórnarhætti og stefnumótun á breiðum grunni. Við erum að vinna fyrir hlut- hafa og viljum heyra taktinn og þekkja þeirra áherslur.“ Hefur eitthvað komið á óvart í þeim samtölum? „Erlendu hluthafarnir unnu mikla undirbúningsvinnu áður en fjárfest var í Marel og þekkja því starfsemina aftur á bak og áfram. Stærri sjóðirnir eru einn- ig með sérhæfð teymi, meðal annars í stjórnarháttum og sjálf- bærni, sem stjórnin skeggræðir við. Þá var einnig áhugarvert að kynnast starfsemi sérhæfðra ráðgjafarfyrirtækja sem fara yfir tillögur stjórna til aðalfunda fyrirtækja eins og Marel, og gefa stofnanafjárfestum ráð um hvernig þeir eiga að kjósa á aðal- fundum. Þetta var eitthvað sem við höfðum ekki átt að venjast hér á landi.“ Afi sinnti ekki rekstri tiltekins fyrirtækis frá degi til dags eins og tíðkaðist hjá kaup- sýslumönnum á þeim tíma heldur sat hann í stjórnum fyrirtækja sem hann átti drjúgan hlut í. 2 4 . M A R S 2 0 2 1 M I Ð V I K U D A G U R6 MARKAÐURINN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.