Fréttablaðið - 24.03.2021, Blaðsíða 31
LEIKHÚS
Benedikt búálfur
Leikfélag Akureyrar og Sinfóníu-
hljómsveit Norðurlands
Leikstjóri: Vala Fannell
Leikarar: Árni Beinteinn Árna-
son, Þórdís Björk Þorfinnsdóttir,
Birna Pétursdóttir, Björgvin Franz
Gíslason, Valgerður Guðnadóttir,
Kristinn Óli Haraldsson og Hjalti
Rúnar Jónsson
Dansarar: Berglind Eva Ágústs-
dóttir, Elfa Rún Karlsdóttir, Molly
Carol Birna Mitchell og Helga
Ólafsdóttir
Höfundur: Ólafur Gunnar Guð-
laugsson
Tónlist: Þorvaldur Bjarni Þorvalds-
son
Leikgerð: Karl Ágúst Úlfsson og
Ólafur Gunnar Guðlaugsson
Söngtextar: Andrea Gylfadóttir og
Karl Ágúst Úlfsson
Búninga- og leikmyndahönnuður:
Auður Ösp Guðmundsdóttir
Hljóðmynd: Árni Sigurðsson
Ljósahönnun: Friðþjófur Þor-
steinsson
Danshreyfingar: Lee Proud
Ástandið í samfélaginu þessa stund-
ina býður svo sannarlega upp á að
hverfa um stund í bjarta ævintýra-
heima, þar sem gleðin ríkir og hið
góða sigrar að lokum. Benedikt
búálfur og hans föruneyti eru svo
sannarlega tilbúin til að bjóða upp
á þannig ferðalag í Samkomuhús-
inu á Akureyri. Sýningin er byggð
á bókum Ólafs Gunnars Guðlaugs-
sonar en leikgerðina gerði hann í
samvinnu við Karl Ágúst Úlfsson
fyrir um tuttugu árum. Leikstjóri er
Vala Fannell sem stýrir hér frækn-
um leikhópi þar sem unga fólkið
ræður för.
Birna stelur senunni
Árni Beinteinn Árnason fer með tit-
ilhlutverkið en hann hefur verið að
gera það gott á Akureyri frá útskrift
úr Listaháskóla Íslands. Fyrstu
skrefin í sýningunni voru svolítið
fálmkennd en hann fótaði sig betur
eftir því sem á leið. Nærvera hans í
hlutverki Benedikts er hlý og röddin
góð en hann þarf að stilla sig örlítið
betur af og þjóna sínu starfi sem
miðpunktur sýningarinnar. Þórdís
Björk Þorfinnsdóttir er sömuleiðis
að stíga sín fyrstu skref eftir útskrift
og er stöðugt að vinna á. Hún finnur
fókus í barnslegri kæti Dídí manna-
barns og fangar sakleysi hennar
skemmtilega. Vinaþrenninguna
fullkomnar Birna Pétursdóttir,
sem stelur senunni í hlutverki Daða
dreka. Hún er skreytt alveg frábæru
gervi, smjattar á setningum sínum
og fullnýtir hvert tækifæri til að
heilla áhorfendur upp úr sætunum.
Tilkomumikill heimur
Álfheimum er stjórnað af álfakon-
ungshjónunum Aðalsteini og Bryn-
hildi, leiknum af Björgvin Franz
Gíslasyni og Valgerði Guðnadóttur.
Björgvin Franz er í essinu sínu með
ýktum leik og stórum skapsveiflum
en Valgerður heillar með listilegum
söng, sannkölluð drottning í ríki
sínu. Hjalti Rúnar Jónsson leikur
myrkari verur Álf heima, hann
gleymir sér stundum í æsingnum í
hlutverki Jósafats mannahrellis en
brillerar í hlutverki Sölvars súra, þá
sérstaklega þegar hann er kynntur
til leiks. Kristinn Óli Haralds-
son, kannski betur þekktur undir
nafninu Króli, sýnir hér og sannar
að hann á fullt erindi á leiksviðið.
Raddbeiting hans er upp á tíu og
hann finnur sig vel í hlutverki Tóta
tannálfs, þrátt fyrir tiltölulega fá
atriði.
Þessari hersingu stýrir Vala
skynsamlega og finnur fjölmörg
tækifæri til að lauma inn leikhús-
töfrum. Hún leggur áherslu á að
koma þessum töfraheimi til skila,
ekki með f lóknum brellum og
skrauti heldur með glaðværum leik
og frumlegum lausnum. Búninga-
og leikmyndahönnuðurinn Auður
Ösp Guðmundsdóttir hefur svo
sannarlega stimplað sig rækilega
inn eftir heimkomu úr námi í Prag.
Vinna hennar við sýningar á Akur-
eyri síðustu árin hefur verið frábær,
vel úthugsuð og lifandi. Benedikt
búálfur er enn ein skrautfjöðurin í
hennar hatt. Heimurinn sem skap-
aður er á örfáum fermetrum er til-
komumikill og eftirminnilegur.
Traust á ungu listafólki
Reynsluboltinn og þúsundþjala-
smiðurinn Þorvaldur Bjarni Þor-
valdsson er höfundur tónlistarinn-
ar og stýrir henni einnig. Hann
skapar lifandi og f jölbreyttan
tónheim með hinni frábæru Sin-
fóníuhljómsveit Norðurlands. Þar
standa upp úr lögin „Þessi Aðal-
steinn“ og „Dreki í ham“, söngtextar
Andreu Gylfadóttur skemma sko
aldeilis ekki fyrir. Hljóðmyndin er
í höndum Árna Sigurðssonar, hann
vinnur nokkuð vel með tónlistinni
en er ekki alveg búinn að hitta á
rétta tóninn milli hennar og leikar-
anna. Stundum yfirgnæfir hljóðið
textaflutning og söng leikaranna.
Þrátt fyrir takmarkað pláss á litlu
sviði Samkomuhússins finnur Lee
Proud yfirleitt liprar leiðir fyrir
hreyfimynstur og danshreyfingar,
sem reka smiðshöggið á fantafína
fjölskyldusýningu.
Trú Mörtu Nordal á ungu lista-
fólki úr alls konar áttum er svo
sannarlega að skila sér. Benedikt
búálfur gefur vonir um bjarta
framtíð þar sem ungt listafólk getur
fengið að þróa list sína með fjöl-
breyttum verkefnum. Akureyringar
og áhorfendur úr öðrum lands-
hlutum eru hvattir til að skella sér í
Samkomuhúsið, hverfa tímabundið
inn í græna skóga Álfheima og á vit
ævintýranna.
Sigríður Jónsdóttir
NIÐURSTAÐA: Frábær fjölskyldu-
skemmtun þar sem unga fólkið
ræður ríkjum.
Hrífandi ferðalag um Álfheima
Gagnrýnandi segir Benedikt búálf vera frábæra fjölskylduskemmtun. MYND/AÐSEND
Ingibjörg Fríða og Sigurður Ingi stjórna söngstund í Hann-esarholti sunnudaginn 28. mars
kl.14. Ingibjörg Fríða er söngkona
með klassíska og rytmíska mennt-
un og Sigurður Ingi er menntaður
slagverksleikari.
Gestum er velkomið að taka þátt á
staðnum, en einnig verður streymt
frá stundinni á fésbókarsíðu Hann-
esarholts. Frítt fyrir börn í fylgd
með fullorðnum, sem greiða 1.000
króna aðgangseyri.
Söngstund í
Hannesarholti
BENEDIKT BÚÁLFUR
GEFUR VONIR UM
BJARTA FRAMTÍÐ ÞAR SEM
UNGT LISTAFÓLK GETUR
FENGIÐ AÐ ÞRÓA LIST SÍNA MEÐ
FJÖLBREYTTUM VERKEFNUM.
St reng jak var tett ar Josephs Haydn; Sjö orð Krists á kross-inum, verða leiknir á vegum
15:15 tónleikasyrpunnar í Breið-
holtskirkju laugardaginn 27. mars.
Flutningur er í höndum Skál-
holtskvartettsins, en hann skipa
fiðluleikararnir Rut Ingólfsdóttir og
Hildigunnur Halldórsdóttir, Svava
Bernharðsdóttir víóluleikari og Sig-
urður Halldórsson sellóleikari.
Ágóðanum verður varið til að
standa að útgáfu á óútgefnum hljóð-
ritunum Jaaps Schröder með kvar-
tettinum og Bachsveitinni í Skálholti.
Sjö orð Krists á krossinum
Laugardaginn 27. mars opnar Haraldur Ingi Haraldsson einkasýningu í Deigl-unni, Listsýningasal Gilfélagsins í
Listagilinu á Akureyri. Sýningunni lýkur
4. apríl.
Myndirnar eru allar frá vinnustofudvöl
listamannsins í Svarta pakkhúsinu í Reykja-
nesbæ á síðasta ári. Haraldur Ingi verður
að vinna við ýmiss konar dund og frágang
meðan á sýningunni stendur.
Haraldur Ingi er menntaður í myndlist
frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands og
frá AKI Akademie voor Beeldende Kunst,
Ensch ede, Hollandi og Vrije Academie Psyc-
hopolis, Den Haag, Hollandi.
Vinnustofusýning í Deiglunni
Úr seríunni Lýðskrumarar.
Rut spilar með félögum sínum í
Breiðholtskirkju. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
ER FERMING?
ÆTLAR ÞÚ AÐ KOMA
FERMINGARBARNI Á ÓVART?
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
20%
FERMINGAR
AFSLÆTTI
ALLAR
SÆNGUR,
ALLIR KODDAR
OG ÖLL RÚMFÖT MEÐ
GLÆSILEG VIÐBÓTARGJÖF TIL FERMINGARBARNSINS
Nú er 20% afsláttur af heilsurúmum frá Sealy. Auk þess
fylgir nú veglegur kaupauki — Aspen fjallahjól — að verðmæti
59.000 krónur* þegar keypt er PORTLAND eða SEATTLE
rúm (dýna og Classic botn) í stærðunum 120 eða 140 cm.
Fylgir
Sealy Portland og Seattle í
stærðunum 120 og 140 x 200 cm
á meðan birgðir endast
VERÐDÆMI:
120 x 200 cm m/Classic botni – Fullt verð: 145.900 kr.
Fermingartilboð aðeins 116.720 kr. með Aspen fjallahjóli
Sealy SEATTLE
FERMINGARTILBOÐ
* á meðan birgðir endast – athugið skilaskilmála.
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 15M I Ð V I K U D A G U R 2 4 . M A R S 2 0 2 1