Fréttablaðið - 24.03.2021, Qupperneq 12
Ástkær móðir mín, tengdamóðir,
amma og langamma,
Lovísa Hanna Gunnarsdóttir
frá Dilksnesi,
lést fimmtudaginn 18. mars á
hjúkrunarheimilinu Skjólgarði í
Hornafirði. Útförin fer fram frá Hafnarkirkju
27. mars klukkan 11.00. Vinir og aðstandendur velkomnir
á meðan húsrúm leyfir. Gestir eru vinsamlega beðnir um
að hafa með sér á blaði nafn, kennitölu og símanúmer.
Athöfninni verður einnig streymt á vef Hafnarkirkju.
Gunnar Þór Þórarnarson Guðný Björg Jensdóttir
Lovísa Þóra Gunnarsdóttir Finnur Eiríksson
Eyþór Jens Gunnarsson
Sævar Þór, Dagmar Hekla og Kolbrún Katla.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Valgerður Ólafsdóttir
frá Stakkadal, Rauðasandi,
lést á Hrafnistu í Laugarási
föstudaginn 19. mars síðastliðinn.
Útförin fer fram frá Laugarneskirkju
mánudaginn 29. mars kl. 13.00. Allir eru velkomnir á
meðan húsrúm og fjöldatakmarkanir leyfa.
Gestir eru beðnir að hafa með sér miða með nafni,
kennitölu og símanúmeri.
Magnús Sigurðsson Kristín B. K . Michaelsen
Anna G. Sigurðardóttir Ólafur B. Guðnason
Sigríður Sigurðardóttir
Halldór S. Sigurðsson Maria Lorena Rimpas Tolo
Esther Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn og faðir okkar,
Pálmi Erlingsson
Ásatúni 12,
lést þann 18. mars.
Jarðarförin mun fara fram í kyrrþey.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á
Heimahlynningu á Akureyri.
Gerður Kristjánsdóttir
Hafdís Pálmadóttir
Fjóla Pálmadóttir
Erlingur Pálmason
Ellen Dóra Guðbjargardóttir
Ólöf Pálmadóttir
Hörður Sigurðsson
og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Guðbjörn B. Bjarnason
Heiðarbraut 3c, Keflavík,
lést á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi, föstudaginn 19. mars.
Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sigurlaug Nanna Þráinsdóttir
Ingunn Guðbjörnsdóttir Þorlákur Jónsson
Þráinn Guðbjörnsson
Inga Fríða Guðbjörnsdóttir Anton Már Ólafsson
Bjarni Davíð Guðbjörnsson Tiara Rizkia
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir til ykkar allra sem
sýnduð okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærrar móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
Þorbjargar Pálsdóttur
(Bobbu)
Bakkastöðum 73, Reykjavík.
Kristjana Líndal Sigurður W. Egilsson
Páll Líndal
Ingdís Líndal Hallur Illugason
Unnsteinn Líndal Steinunn A. Guðmundsdóttir
Ævar Líndal
og ömmubörnin stór og smá.
Ástkær móðir, amma, dóttir,
systir og mágkona,
Guðmunda María
Guðmundsdóttir
Eskivöllum 9B,
Hafnarfirði,
lést í faðmi fjölskyldunnar þann
12. mars á líknardeild Landspítalans.
Útförin fer fram í Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn
24. mars kl. 13. Streymi frá jarðarförinni má finna á
https://youtu.be/32Kp8V4fl8E
Melkorka Jenný Gunnarsdóttir Elmar Eron Sindrason
Guðmundur Hjörleifsson Jenný Þórisdóttir
Helga Laufey Guðmundsdóttir Arnar Borgar Atlason
Róbert Atli Guðmundsson Valgerður María
Sigurðardóttir
Þetta er draumur sem ég hef gengið með lengi en ekki haft tækifæri til að láta ræt-ast fyrr en nú,“ segir Amor Joy Mantilla, um blóma- og gjafavöruverslun sem hún og
Bobby, eiginmaður hennar, voru að opna
á Höfn. Hún tekur fram að þau eigi góða
bakhjarla, Guðmund Nielsen og Jónu Sig-
ríði Gunnarsdóttur í Hverablómi í Hvera-
gerði. „Án þeirra hefðum við ekki getað
þetta,“ segir hún.
Amor og Bobby eru frá Filippseyjum.
Hún hefur búið á Höfn í sautján ár og
hann þrettán, þau eiga tvö börn, stelpu
og strák. „Ég skaut strax rótum hér. Hef
unnið á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði
sem sjúkraliði en ætla að minnka við
mig þar til að geta sinnt búðinni,“ segir
Amor sem heitir eftir ástarenglinum
því hún fæddist á Valentínusardag. „Ég
var umvafin blómum í æsku, bæði hjá
mömmu og ömmu, þaðan kemur grunn-
urinn,“ segir hún og kveðst hafa selt blóm
17, 18 ára, áður en hún flutti til Íslands.
„Um tíma vann ég í blómabúð hér sem
hætti rekstri, þá kynntist ég hjónunum
í Hverablómi því ég pantaði alltaf hjá
þeim. Nú datt mér í hug að endurnýja
kynnin við þau og Jóna sagði: „Farðu
bara að finna húsnæði – ég skal finna allt
hitt handa þér.“ Ég gat ekki sofið nóttina á
eftir fyrir spenningi. Manninum mínum
datt í hug að byrja á að selja vendi fyrir
bóndadaginn, ég dreifði auglýsingum í
hús, fékk yfir hundrað pantanir og fólk
var ánægt. Síðan komu Valentínusar-
dagur og konudagur, þá var ég búin að
finna húsnæði við Hafnarbraut 34,
þar sem fleiri líf leg fyrirtæki eru með
rekstur,“ lýsir Amor. „Nú get ég bjargað
skreytingum fyrir fermingar, jarðarfarir,
brúðkaup og önnur tækifæri, auk þess
að vera með pottaplöntur og gjafavöru,
þökk sé Hverablómi.“ gun@frettabladid.is
Umvafin blómum í æsku
Þar sem eitt sinn var vélsmiðja og í annan tíma líkamsræktarstöð angar nú allt af blóm-
um. Um er að ræða Amor – blóma- og gjafavöruverslun í hjarta Hafnar í Hornafirði.
Bobby og Amor horfa bjartsýn fram á spennandi tíma í nýju búðinni á Höfn í Hornafirði. MYND/GUÐNÝ SVAVARSDÓTTIR
Elskulegur sonur okkar og bróðir,
Ingvi Ástvaldsson
lést á Landspítalanum 19. mars sl.
Útför hans fer fram frá Langholtskirkju
mánudaginn 29. mars kl. 13.00.
Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir en
einnig verður útförinni streymt á vefsíðunni
mbl.is/andlat. Blóm og kransar eru vinsamlegast
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á að
styrkja Einstök börn.
Martha Jónasdóttir Ástvaldur Óskarsson
Margrét Björg Ástvaldsdóttir
Óskar Ástvaldsson
Svavar Freyr Ástvaldsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Jónína Salný Stefánsdóttir
(Didda)
frá Mýrum í Skriðdal,
verður jarðsungin frá Digraneskirkju
fimmtudaginn 25. mars klukkan 15.
Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hennar er bent á minningarsjóð Sunnuhlíðar.
Streymt verður á slóðinni: www.exton.is/streymi
Stefán Þórarinn Ingólfsson Margrét B. Einarsdóttir
Páll Rúnar Ingólfsson Eydís G. Sigurðardóttir
Hafdís Odda Ingólfsdóttir Ingjaldur H. Ragnarsson
Ingvi Ingólfsson Stefanía L. Óladóttir
Fanney Ingólfsdóttir Birgir Vignisson
Sigurður K. Ragnarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Yndislega móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðrún Þorkelsdóttir
(Dúna)
Seglbúðum,
sem lést á hjúkrunarheimilinu
Klausturhólum þann 21. mars sl., verður
jarðsungin frá Prestsbakkakirkju á Síðu, laugardaginn
27. mars kl. 13.00. Vegna aðstæðna eru jarðarfarargestir
beðnir um að vera með nafn, kennitölu og símanúmer
á miða og afhenda við inngang. Þeim sem vilja minnast
Dúnu er bent á Velunnarasjóð Klausturhóla.
Helga Dúnu Jónsdóttir Þórarinn Bjarnason
Bjarni Þorkell Jónsson Gréta Rún Árnadóttir
Björn Sævar Einarsson Guðrún Marta Torfadóttir
barnabörn og langömmubörn.
2 4 . M A R S 2 0 2 1 M I Ð V I K U D A G U R12 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT