Fréttablaðið - 24.03.2021, Blaðsíða 27
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@
frettabladid.is
Hrafnhildur hefur starfað sem
einkaþjálfari hjá World Class í
um 17 ár. Hún þjáðist af ristil-
vandamálum og bakflæði í ára-
tugi vegna meðgönguógleði, sem
orsakaði sjö mánaða uppköst.
Fyrir þremur árum fór Hrafn-
hildur Hákonardóttir í ristil-
speglun vegna óþæginda í ristli og
meltingarvandamála. „Ristillinn
hafði verið til trafala í 25 ár frá því
ég var ólétt. Á meðgöngunni ældi
ég daglega í um sjö mánuði. Eins
eðlilegur hlutur og ólétta er fyrir
kvenlíkamann eru sjö mánuðir af
uppköstum ekkert grín fyrir lík-
amsstarfsemina. Ég hlaut af þessu
varanlegar skemmdir á vélinda
sem orsaka bakflæði. Einnig hafði
þetta slæm áhrif á ristilinn, sem
hafði þau áhrif að ég fór að finna
fyrir verkjum í baki og líkamanum
öllum. Ég hafði lengi tekið inn
ýmis magalyf og alltaf þurft að
passa hvað ég borðaði af hveiti- og
mjólkurvörum, en það tók mig
nokkur ár að átta mig á að þessar
matartegundir færu illa í mig.
Mér var ráðlagt að taka inn
magnesíum til þess að koma
jafnvægi á meltinguna og róa
ristilinn. Ég prufaði nokkrar
tegundir en þær hentuðu mér ekki.
Til allrar hamingju var mér bent
á magnesíum með fjallagrösum
frá ICEHERBS, en fjallagrös eru
mjög mýkjandi. Nú hef ég tekið
magnesíumblönduna í þrjú ár
og aldrei liðið betur. Ég er komin
með sléttan maga og meltingin er
komin í hið stakasta lag. Með því
að taka reglulega inn magnesíum
með fjallagrösum get ég jafnvel
leyft mér að svindla, því ég veit
fátt betra en að geta fengið mér
pasta og hvítlauksbrauð á góðum
degi. Við bakflæðinu tek ég hósta-
mixtúru með fjallagrösum frá ICE-
HERBS. Mixtúran er bragðgóð og
mjúk í hálsi og hjálpar mér að sofa
eins og engill,“ segir Hrafnhildur.
Einstök blanda
Magnesíumskortur er eitt stærsta
lýðheilsuvandamál sem við
glímum við í nútímanum. Magn-
esíum er eitt mikilvægasta stein-
efni í líkamanum og kemur við
sögu í yfir 300 efnaskiptum, allt frá
slökun vöðva- og taugakerfisins,
virkni hjarta- og æðakerfisins og
í upptöku steinefna. Magnesíum
blandan frá ICEHERBS er einstök á
heimsvísu og inniheldur magn-
esíum citrate og handtínd, íslensk
fjallagrös. Fjallagrösin og magn-
esíumið virkar saman á einstakan
hátt. Fjallagrösin mýkja melting-
una og magnesíum eykur upptöku
á steinefnum úr fjallagrösunum.
Magnesíum citrate er eitt fárra
bætiefna sem er gott að taka inn
að staðaldri, en það er mjög erfitt
að fá nægt magnesíum úr fæðunni.
Þá er mælt með að þeir sem stunda
líkamsrækt taki magnesíum reglu-
lega.
Áhrif magnesíums
Magnesíum stuðlar að eðlilegri
vöðvastarfsemi og er talið bæta
gæði svefns og draga úr fótapirr-
ingi og sinadrætti. Þá stuðlar
magnesíum að því að draga úr
þreytu og lúa.
Magnesíum er einnig notað í
meðhöndlun meltingarvanda-
mála. Það eykur vatnsinntöku
í meltingarkerfið sem auð-
veldar líkamanum að melta og losa
hægðir. Þá er magnesíum einnig
hreinsandi og hefur góð áhrif á
ristilinn. Það stuðlar líka að eðli-
legri starfsemi taugakerfisins.
Leyndarmál frá náttúrunni
Fjallagrösin hafa öldum saman
verið notuð sem náttúruleg
heilsujurt á Íslandi. Þau eru rík af
steinefnum og stuðla að heilbrigðri
þarmaflóru. Þá eru fjallagrös
vatnslosandi og minnka bjúg.
Fjallagrös innihalda einnig trefjar
sem mynda mýkjandi himnu á
slímhúð í maga sem bætir og mýkir
meltinguna.
Hrein náttúruafurð
Markmið ICEHERBS er að nýta
náttúruauðlindir sem tengjast
íslenskri hefð og sögu og vinna í
hreina neytendavæna vöru fyrir
viðskiptavini. „Við hjá ICEHERBS
leggjum áherslu á að framleiða
hrein og náttúruleg bætiefni sem
byggja á sjálfbærri nýtingu nátt-
úruauðlinda. Við viljum að vör-
urnar okkar nýtist viðskiptavinum
okkar, að virkni skili sér í réttum
blöndum og að eiginleikar efnanna
viðhaldi sér að fullu. Þá notum við
enn fremur engin óþörf fylliefni.“
ICEHERBS fæst í öllum betri mat-
vöruverslunum, apótekum og
heilsuvöruverslunum. Sjá nánar á
iceherbs.is.
Kemur ró á ristilinn
Magnesíum
með fjalla-
grösum frá
ICEHERBS hefur
hjálpað Hrafn-
hildi Hákonar-
dóttur mikið.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIG-
TRYGGUR ARI
Nú hef ég tekið
magnesíumblönd-
una í þrjú ár og aldrei
liðið betur. Ég er komin
með sléttan maga og
meltingin er komin í hið
stakasta lag.
Hrafnhildur Hákonardóttir
Það er algengt vandamál að
liggja andvaka en langvarandi
svefnleysi hefur verið tengt við
ýmis heilsufarsvandamál eins og
sykursýki, þunglyndi og hjarta-
vandamál. Hér eru nokkur góð
ráð til að fá góðan svefn.
Svefnleysi er vandamál sem hrjáir
mjög marga og getur haft afar
alvarleg áhrif á heilsuna, enda er
svefn algjör grundvöllur góðrar
heilsu. Hér eru nokkur margreynd
ráð sem ættu að hvetja Óla Lokbrá
til að kíkja í heimsókn.
Hafið dimmt
Þetta er ráð sem enginn á Íslandi
þarf yfir vetrarmánuðina, en nú
með vorinu er sólin að hækka á
lofti og mun skína sífellt lengur
næstu tvo mánuðina. Birta hægir
á framleiðslu melatóníns, sem
er hormón sem stjórnar líkams-
klukkunni og hjálpar okkur að
sofna. Því er mikilvægt að hafa
svefnherbergið eins dimmt og
hægt er til að tryggja sem bestan
svefn. Ef það er ekki hægt að setja
upp gardínur sem loka á ljósið er
hægt að prófa augngrímu.
Stundið hreyfingu
Með því að þreyta sig og fá útrás
með líkamsrækt fæst mun betri
svefn. Það þarf ekki að taka
mikinn tíma en hafið í huga að það
eru skiptar skoðanir á því hvort
það borgi sig að æfa stuttu fyrir
svefninn og margir segja að það
veki mann á röngum tíma.
Sólið ykkur
Sólskin í morgunsárið getur komið
að miklu gagni við að stilla líkams-
klukkuna rétt. Það er gott að fara
í göngutúr fyrir hádegi eða fá sér
morgunkaffið úti í garði til að stilla
sig af.
Góð ráð gegn svefnleysi
Svefnleysi er
mjög algengt
vandamál sem
getur haft sér-
lega slæm áhrif
á líkamlega og
andlega heilsu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Með
því að
þreyta sig
og fá útrás
með lík-
amsrækt
fæst mun
betri svefn.
Hafið réttu hljóðin
Á YouTube, Spotify og öðrum álíka
veitum er hægt að finna ógrynni af
suði og alls kyns hljóðum sem eru
sérstaklega hönnuð til að hjálpa
fólki að sofa.
Óregluleg eða mishá umhverfis-
hljóð geta auðveldlega truflað
svefn og því er gott að vera með
samfellt hljóð í gangi á meðan þú
sefur. Mörgum finnst líka auð-
veldara að sofna við rigningarhljóð
eða lækjarnið.
Passið drykkina
Koffín er í líkamanum í nokkrar
klukkustundir eftir neyslu þess
svo það er góð hugmynd að sleppa
því eftir hádegi. Sumum finnst
gott að neyta áfengis til að róa sig
eða hjálpa sér að sofna en það er
óhollt, minnkar gæði svefnsins og
getur valdið eirðarleysi og jafnvel
kæfisvefni.
Passið skjánotkun og lesið
Langflestir skjáir gefa frá sér
blátt ljós sem getur haldið fólki
vakandi. Það getur því hjálpað að
forðast skjánotkun í klukkustund
fyrir svefninn. Það er líka best að
slökkva á tilkynningum og öðru
pípi eða blikki frá símanum.
Til að forðast skjáinn er gott
ráð að taka upp bók og hún þarf
ekki einu sinni að vera góð til að
hjálpa þér að sofna. Margir verða
mjög f ljótt syfjaðir þegar þeir
byrja að einbeita sér að lestri seint
á kvöldin.
Haldið rútínu
Ef maður fer alltaf að sofa og á
fætur á svipuðum tíma er auð-
veldara að halda heilbrigðu svefn-
mynstri. Það borgar sig ekki að
vaka of lengi og sofa frameftir um
helgar, né að byggja upp svefn-
skuld á virkum dögum og reyna að
greiða hana um helgar.
Fáið aðstoð
Langvarandi svefnleysi getur
valdið ýmsum alvarlegum heilsu-
farsvandamálum, eins og kom
fram hér fyrir ofan. Ef svefnleysið
stafar af kvíða eða þunglyndi gæti
vel verið þörf á aðstoð frá fagað-
ilum, sem geta hjálpað fólki að
finna ný og betri verkfæri til að líta
á og mæta áskorunum lífsins.
ALLT kynningarblað 3MIÐVIKUDAGUR 24. mars 2021