Fréttablaðið - 24.03.2021, Page 38
ÉG HELD HANN HAFI
FALLIÐ. ÞETTA ER
NÁTTÚRLEGA SETT FRAM Í
SPURNARFORMI. FÉLL EKKI
JÓHANNES SÆMUNDSSON
AFTUR OG ENN? ÞETTA ER SVO
ENDALAUS DJÖFULSINS HARM-
UR. ÞAÐ ER ALVEG HRIKALEGT.
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
SVANSVOTTUN
Þriðjudaginn 30. ars gefur Fréttablaðið út sérblaðið Svansvottun.
Blaðið er gefið út í samstarfi við Umhverfisstofnun.
Hér gefst fyrirtækjum sem komin eru með Svansvottun
að vera með auglýsingu og/eða kynningu.
Þetta er frábær leið til að kynna fyrir neytendum hvað Svansvottun
ykkar fyrirtækis stendur fyrir og gera þá meðvitaðri um hvað hún
þýðir fyrir þá, framtíðina og fyrirtækin.
Áhugasamir auglýsendur geta haft samband við
Ruth Bergsdóttir, sölu- og markaðsfulltrúi
Sími: 694-4103/ruth@frettabladid.is
Bjarni Hafþór segir listmálarann hafa fengið alveg frjálsar hendur við að mála lögin hans. „Ég skipti mér hvergi af
neinu. Hann fékk bara lögin og textana og gerði síðan bara það sem kom upp í huga hans.“ FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
Hú s v í k i n g u r i n n B j a r n i H a f þ ó r Helga son hef u r komið v íða v ið en er í seinni tíð þek k t astur sem
afkastamikill dægurlagahöfundur
enda stóð heildarverk tónlistar
hans, Fuglar hugans, undir fimm
geisladiskum með 75 lögum þegar
hann gaf það út 2018.
Tólf þessara laga öðlast nýtt líf
og springa út í aðrar víddir í mál-
verkum, myndböndum og dansi á
tilraunakenndri listsýningu sem
hefst í dag. Bjarni heldur sýninguna
til styrktar Parkinsonsamtökunum
en hann greindist með sjúkdóminn
ári eftir að hann sleppti öllum Fugl-
um hugans lausum.
Tónlist á striga
„Þetta varð til upp úr samtali milli
mín og Kristjáns Kristjánssonar
kvikmyndagerðarmanns þegar
hann sagði mér frá því að hann
hefði lengi verið spenntur fyrir því
að fá listmálara til þess að mála
lag. Gera málverk við lag og texta,“
segir Bjarni Haf þór sem fékk hug-
myndina að sýningunni eftir að
hafa leitað til Kristjáns með gerð
tólf listrænna myndbanda við lög
af Fuglum hugans.
„Þegar ég síðan hugsa þetta
aðeins lengra fer ég út í þessa pæl-
ingu, að gera heila sýningu,“ segir
tónskáldið sem auk Kristjáns fékk
myndlistarmanninn Ingvar Þór
Gylfason og dansarann Kötu Vignis
með sér í tilraun til þess að skapa
nýstárlega heild tónlistar, málverks,
danslistar og kvikmyndagerðar.
„Þetta er svolítið öðruvísi. Við
erum að vona að þessi upplifun
verði mjög sterk og óvenjuleg. Það
er nýstárlegt að standa fyrir framan
málverkið, með tónlistina í eyr-
unum og sjá þetta verða til,“ segir
Bjarni Hafþór sem bíður spenntur
eftir að sjá útkomuna síðar í dag.
Ný upplifun
Bjarni Haf þór segir sýningargesti
geta horft á fullskapað verk á sýn-
ingarveggnum, hlustað samtímis á
lagið í heyrnartólum, horft á mynd-
band sem sýnir texta og sérstakan
dans hvers lags og séð síðan mál-
verkið verða til frá fyrstu pensil-
stroku til þeirrar síðustu.
„Og síðan ferðu bara í næsta verk
og næsta verk þannig að þetta er allt
öðruvísi en menn hafa séð áður,“
segir Bjarni Hafþór og fullyrðir að
um sé að ræða nýja upplifun á list-
sýningu á Íslandi og þótt víðar væri
leitað.
Eftir að Bjarni Haf þór fékk hug-
myndina að málverkasýningu laga
sinna ákvað hann að byrja á að leita
til Ingvars Þórs Gylfasonar.
„Hann var bara fyrsti myndlistar-
maðurinn sem ég ræddi við og hann
ákvað bara strax að mála öll verkin
fyrir sýninguna og gefa vinnu sína
til Parkinsonsamtakanna í þágu
þeirra góða starfs.
Tími til að tengja
Það er dálítið gaman að því að þessi
lög eiga sér mörg hver sögu. Eru
margra ára gömul og endurfæðast
síðan í þessu formi,“ segir Bjarni og
bendir á að elsta lagið sem er jafn-
framt stærsta málverkið á sýning-
unni heitir Tengja.
Féll ekki Jóhannes Sæmundsson
aftur og enn?
„Jú, það er nákvæmlega það,“
segir Bjarni Haf þór um lagið sem
Skriðjöklar gerðu ódauðlegt fyrir 35
árum. „Ég er búinn að sjá myndina
og hún er stór og hrikalega flott.“
En hvernig fór þetta hjá Jóhannesi
Sæmundssyni. Náði hann einhvern
tímann?
„Ég held hann hafi fallið. Þetta er
náttúrlega sett fram í spurnarformi.
Féll ekki Jóhannes Sæmundsson
aftur og enn? Þetta er svo endalaus
djöfulsins harmur. Það er alveg
hrikalegt.“
Tengja hvað?
Arnar Björnsson, mágur Bjarna
Haf þórs, samdi textann við Tengja
en þeir gerðu mikið af því að semja
saman lög og texta á námsárunum.
„Og textarnir hjá honum voru yfir-
leitt alveg samhengislausir. Þess
vegna er Tengja þannig að fólk
hefur spurt mig alla tíð: Tengja
hvað?“ Því segist hann aldrei hafa
getað svarað. „Arnar ekki heldur.
Hann hefur ennþá minni hugmynd
um það.“
Bjarni Haf þór hlær þegar hann
bætir við að Ingvar haf i lengi
brotið höfuðið yfir laginu þangað
til eitthvað hafi allt í einu gerst og
hann náði að tengja. „Það er rosa-
lega gaman fyrir mig að sjá annan
mann taka svona nýja og öðruvísi
nálgun á þetta allt og ég fékk alveg
nýja upplifun á lögin og ljóðin.“
Draumur um Lífsgæðasetur
Bjarni Haf þór stendur straum af
öllum kostnaði við myndbanda-
gerðina og sýninguna sem hann
segir ljóst að muni skila Parkin-
sonsamtökunum umtalsverðri
styrktarfjárhæð sem verður kynnt
þegar hún liggur endanlega fyrir.
„Ég bara ákvað einhvern veginn
að gera eitthvað gott fyrir sam-
tökin,“ segir hann og bætir við að
samtökin hafi í nokkur ár unnið að
stofnun miðstöðvar fyrir fólk með
Parkinson og skylda sjúkdóma og
í haust rætist langþráður draumur
með opnun Lífsgæðaseturs á St. Jós-
efsspítala í Hafnarfirði.
Hann segist sjálfur hafa notið
þess þegar hann greindist með
sjúkdóminn fyrir tveimur árum að
persónulegur vinur hans, sem fékk
sjúkdóminn nokkrum árum áður,
hafi tekið hann í fangið. „Síðan segi
ég alltaf að vera mín í AA-samtök-
unum í tuttugu ár hafi bara gert
rosalega mikið fyrir mig.“
Óvissa um framtíðina
„Við erum öll undir það seld að vita
ekki hver framtíð okkar verður
varðandi skerðingu á lífsgæðum
vegna þess að engir tveir Parkinson-
sjúklingar eru eins. Meginmyndin
er nokkuð þekkt en svo er bara að
glíma við þessa óvissu á þann hátt
að maður lifi góðu lífi í gegnum
þetta. Það er eiginlega galdurinn.“
Sýningin verður opnuð klukkan
16 í dag við hliðina á Nova á 2.
hæð í Kringlunni en ráðgert er að
henni ljúki 11. apríl, á fæðingardegi
læknisins James Parkinson. Hann
fæddist 1755 og var fyrstur manna
til að skilgreina þennan ólæknandi
taugahrörnunarsjúkdóm sem hrjáir
rúmlega eitt þúsund Íslendinga.
toti@frettabladid.is.
Tími til að tengja fugla hugans
Tólf lög Bjarna Hafþórs Helgasonar springa út í nýjar víddir á listsýningu sem er kennd við Fugla hugans með
beinni tengingu við heildarsafn laga hans sem kom út ári áður en hann greindist með Parkinsonsjúkdóminn.
Parkinsonsamtökin
Parkinsonsamtökin á Íslandi
voru stofnuð 3. desember 1983
og er markmið þeirra að:
• Aðstoða sjúklinga og aðstand-
endur við að leysa úr þeim
vanda og erfiðleikum sem
sjúkdómnum fylgja.
• Dreifa upplýsingum, veita
fræðslu og styðja við rann-
sóknir vegna parkinsonveiki.
• Vera vettvangur umræðu um
sameiginleg vandamál félags-
manna.
• Halda reglulega félagsfundi til
skemmtunar og fræðslu.
• Gefa út rit félagsins og halda
úti vefsíðu til að miðla upp-
lýsingum og fræðslu.
Heimild: parkinson.is
2 4 . M A R S 2 0 2 1 M I Ð V I K U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð