Fréttablaðið - 01.04.2021, Qupperneq 24
1 . A P R Í L 2 0 2 1 F I M M T U D A G U R18 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
GOLF „Þetta voru mjög ólík mót,
hvað varðar spilamennskuna mína.
Fyrra mótið sem ég vann var nánast
fullkomið á öllum sviðum framan
af en það seinna hafðist með frá
bærum lokaspretti,“ segir Ragn
hildur Kristinsdóttir, kylfingur úr
GR, aðspurð hvernig hafi verið að
vinna tvö mót á tveimur vikum í
bandaríska háskólagolfinu. Með
því er Ragnhildur samtals unnið
þrjú mót í bandarísku háskólagolfi
en hún leikur fyrir hönd Eastern
Kentucky háskólans.
„Það var þvílíkur léttir að vinna
fyrra mótið. Ég byrjaði lokahring
inn skelfilega og hugsaði aftur til
Íslandsmótsins í höggleik, að sú
staða væri ekki að endurtaka sig.
Síðan fann ég taktinn og komst
aftur af stað og vissi á leiðinni á
lokaflötina að staðan væri góð. Það
var samt eins og hundrað kíló hefðu
farið að bakinu þegar sigurinn var í
höfn enda langt síðan ég vann mót
hérna úti, á fyrsta árinu mínu.“
Þegar litið er yfir úrslitin á Col
onel Classic, seinna mótinu sem
Ragnhildur vann í þessari viku,
sést að hún lék best allra á loka
hringnum og var eini kylfingurinn
sem lék völlinn á undir sjötíu högg
um. Heilt yfir tókst Ragnhildi að ná
níu höggum á Katie Hallinan sem
leiddi fyrir lokahringinn. Hún segir
að aðstæður á vellinum hafi átt sinn
þátt í því að henni tókst að skjótast
fram úr Katie á lokadegi mótsins í
Kentucky.
„Þetta mót fór fram á heimavell
inum okkar og veðrið var í raun
eins íslenskt og hægt er að fá hér
sem hjálpaði mér vissulega. Það
var góður hiti en tíu til ellefu metra
vindur. Ég sá veðurspána kvöldið
fyrir og hugsaði strax að þetta gæti
hentað mér. Þjálfarinn minn hafði
orð á því fyrir hringinn að þetta
væri forskot því það myndi enginn
annar leika undir pari sem stóðst.
Ég var ein undir pari,“ segir Ragn
hildur létt í lund.
„Þetta var bara eins og að spila á
vindasömum velli á Íslandi, nema
hlýrra. Ég vissi að ef ég myndi halda
mínu striki gæti ég komið mér í
góða stöðu.“
Hún er að ljúka fjórða ári sínu
í Eastern Kentucky en er ekki á
heimleið strax. Heimsfaraldurinn
gerir það að verkum að hún fær
keppnisrétt eitt ár til viðbótar og
ætlar hún að hefja mastersnám
erlendis samhliða því að æfa og
keppa fyrir hönd skólans í golfi.
„Ég er á lokaári B.A.námsins en
vegna heimsfaraldursins á ég eitt ár
eftir af keppnisrétti. Það var ákveð
ið að síðasta tímabil myndi ekki
telja inn á keppnisréttinn okkar,
þótt að ég spilaði í fimm mótum
og ég fæ því aukaár af keppnisrétti
og byrja mastersnám hér í haust,“
segir Ragnhildur sem hefur tekið
stöðugum framförum vestanhafs.
„Það ótrúlegt hvað ég sé miklar
framfarir á leiknum mínum, sér
staklega síðustu tvö ár. Meðalskor
ið mitt búið að lækka á hverju ári.
Ég er of boðslega þakklát þjálfaran
um mínum hérna, hún lék á sínum
tíma í háskólagolfinu og reyndi við
atvinnumennsku og veit því hvað
þarf til þess. Hún hefur reynst mér
ómetanleg.“
Ragnhildur þarf því ekki að
ákveða næstu skref strax en stefnir
að því að gerast atvinnukylfingur
á næsta ári.
„Hugurinn leitar í atvinnu
mennsku og ég er aðeins farin að
undirbúa það. Það er á markmiða
listanum eftir háskólagolfið að fara
í úrtökumót. Það þarf að huga að
mörgu en ég er byrjuð að huga að
því hvað þarf til.“
Hún gerir ráð fyrir að gera aðra
atlögu að Íslandsmeistaratitlinum
í sumar eftir að hafa tapað í bráða
bana gegn Guðrúnu Brá Björgvins
dóttur á Íslandsmótinu í fyrra.
„Planið er allavegana að gera
aðra atlögu að Íslandsmeistara
titlinum og ég er búin að bóka her
bergi á Akureyri þá helgina. Svo er
fram undan hérna undankeppni
fyrir meistaramótið í bandaríska
háskólagolfinu (e. NCAA Cham
pionship) og ég er líka skráð í
úrtökumót fyrir opna bandaríska
meistaramótið,“ segir kylfingurinn
um framhaldið hjá sér.
kristinnpall@frettabladid.is
Strekkingsvindurinn hjálpaði
Kylfingurinn Ragnhildur Kristinsdóttir vann annað háskólagolfmótið á stuttum tíma í aðstæðum sem
hentuðu íslenska kylfingnum afar vel. Hún á eitt ár eftir af háskólagolfi en stefnir svo á atvinnumennsku.
Ragnhildur á lokaholunni á Íslandsmótinu í fyrra. MYND/GSÍMYNDIR.NET/SETH
Þjálfarinn minn
hafði orð á því fyrir
hringinn að þetta væri
forskot því það myndi
enginn annar leika undir
pari, sem stóðst. Ég var ein
undir pari.
Ragnhildur Kristinsdóttir, kylfingur
FÓTBOLTI KSÍ tilkynnti í gær að
kvennalandsliðið myndi mæta
Ítölum tvisvar í æfingaleik í lands
leikjaglugganum sem er fram
undan. Áður var búið að staðfesta
einn æfingaleik gegn Ítölum en nú
er komið á hreint að þeir verða tveir.
Um leið var staðfest að leikirnir
fari fram á Enzo Bearzotvellinum í
Coverciano, en þar er æfingasvæði
ítölsku landsliðanna staðsett.
Þetta verður fyrsta verkefni
landsliðsins undir stjórn Þorsteins
Halldórssonar og eru þrír nýliðar í
hópnum. Sara Björk Gunnarsdóttir,
fyrirliði landsliðsins, gat ekki gefið
kost á sér en hún er að ná sér af
meiðslum.
Þetta verða sjötta og sjöunda
viðureign Íslands og Ítalíu í kvenna
flokki. Til þessa hefur Ísland unnið
einn leik, tveimur leikjum lokið
með jafntef li og Ítalir unnið tvo
leiki. – kpt
Mæta Ítölum
tvisvar ytra
Agla María er á sínum stað í hóp
íslenska liðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
HANDBOLTI Arnar Pétursson til
kynnti í gær æfingahóp vegna leikja
Íslands gegn Slóveníu í umspili um
laust sæti á HM 2021 sem fram fer
á Spáni 2.19. desember næstkom
andi. Athygli vekur að Anna Úrsúla
Guðmundsdóttir tekur fram lands
liðsskóna á ný eftir að hafa snúið
aftur inn á handboltavöllinn á dög
unum.
Heilbrigðisráðuneytið er búið
að samþykkja undanþágubeiðni
HSÍ til þess að liðið geti æft saman
á næstu dögum í aðdraganda leikj
anna gegn Slóveníu um miðjan
mánuðinn.
Steinunn Björnsdóttir, leik
maður Fram, er fjarverandi eftir að
staðfest var í vikunni að hún hefði
slitið krossband í leik Íslands gegn
NorðurMakedóníu á dögunum í
undankeppni HM. – hó
Anna Úrsúla
aftur í landsliðið
FÓTBOLTI Íslenska U21 árs liðið
tapaði lokaleik liðsins í milliriðli
Evrópumótsins í gærkvöld 02 gegn
Frökkum. Ísland lauk því keppni í
milliriðlinum án stiga en Danir og
Frakkar fara áfram upp úr riðlinum.
Davíð Snorri Jónsson, þjálfari
liðsins, reyndi nýja leikaðferð í gær
með þriggja manna varnarlínu eftir
að hafa misst fjóra leikmenn frá
síðasta leik í verkefni Alandsliðsins
gegn Liechtenstein í gærkvöld.
Íslenska liðið reyndi því að
leika þéttan varnarleik en líkt og í
leiknum gegn Dönum á dögunum
tókst Frakklandi að finna glufur á
vörninni snemma leiks í gær. Frakk
arnir gerðu þannig út um leikinn
með tveimur mörkum frá Matteo
Guendouzi og Odsonne Edouard í
fyrri hálfleik. – kpt
Frakkar númeri
of sterkir í gær
FÓTBOLTI Strákarnir okkar í karla
landsliðinu í knattspyrnu nældu
í fyrstu stigin í undankeppni HM
2022 í gærkvöld þegar Ísland vann
41 sigur á Liechtenstein. Með því
tókst Íslandi að ná í þrjú stig af níu
í þessu landsleikjahléi en næstu
fimm leikir liðsins eru á heimavelli.
Þar ræðst hvort Ísland blandar sér
í baráttuna um sæti í umspili fyrir
lokakeppni HM.
Getumunur liðanna var skýr frá
fyrstu mínútu og réðu Íslendingar
umferðinni frá upphafssparki.
Fyrsta mark leiksins kom tiltölu
lega snemma en úr óvæntri átt
þegar Birkir Már Sævarsson stang
aði fyrirgjöf Harðar Björgvins
Magnússonar í netið. Þriðja mark
Birkis fyrir landsliðið staðreynd en
fyrsta mark hans fyrir Ísland kom
einmitt gegn sömu andstæðingum
árið 2016.
Yfirburðir Íslands héldu áfram
og bætti Birkir Bjarnason við marki
fyrir lok fyrri hálfleiks. Guðlaugur
Victor Pálsson innsiglaði sigur
Íslands um miðbik seinni hálfleiks
með fyrsta marki sínu fyrir lands
liðið en þjálfarateymið nýtti tæki
færið og yfirburði íslenska liðsins
til að dreifa álaginu í seinni hálfleik.
Liechtenstein tókst að minnka
muninn með einni af fáum sóknum
sínum í leiknum þegar hornspyrna
sigldi yfir Rúnar Alex í mark Íslands
en það kom ekki að sök. – kpt
Aftur á beinu brautina með auðveldum sigri í Vaduz
Birkir Már braut ísinn með þriðja marki sínu fyrir Ísland. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Birkir Bjarnason jafnaði
Ríkharð Daðason og Arnór
Guðjohnsen í 6-8. sæti yfir
markahæstu leikmenn
karlalandsliðsins með
fjórtán mörk.