Fréttablaðið - 01.04.2021, Blaðsíða 30
alltaf langt fram á kvöld. Ég var
lengi að taka myndir og notaði ekki
f lass og var alltaf með þrífót. Eftir
tvö ár ákvað ég að fara aftur í skóla.
Ég sótti um hjá nokkrum skólum og
lét fylgja með sýnishorn af verkum
mínum og fékk stundum svarið:
Þú kannt þetta, af hverju viltu fara
í skóla? Einn af skólunum var í
Hollandi og þar þóttu myndirnar
mínar ekkert sérstakar. Ég valdi
þann skóla og útskrifaðist þaðan
eftir eitt ár. Síðan hef ég unnið við
ljósmyndun og yfirleitt gert það sem
ég vil.“
Fallegur hráleiki
Myndir Spessa eru hráar, þar er
sannarlega ekki verið að fótósjoppa.
Af hverju velur hann raunsæið? „Ég
vil segja sannleikann, sýna hlutina
eins og þeir eru. Hráleikinn er fal-
legur í sjálfum sér. Stundum kem ég
inn á einhvern stað, finn stemningu
og tek myndir þar sem ég reyni að
fanga andrúmsloftið.“
Má ekki segja að það sé sterk sam-
félagsrýni í myndum þínum? spyr
blaðamaður og fær svarið: „Ég var
einu sinni spurður að því hvort ég
væri pólitískur ljósmyndari. Ég
sagði nei og svo sagði ég já. Þegar
ég sagði nei áttaði ég mig á því að ég
væri í eðli mínu pólitískur. Það er út
af uppruna mínum. Ég ólst upp hjá
afa og ömmu sem voru fátækt verka-
fólk á Ísafirði. Ég skynjaði óréttlætið
strax sem krakki og fór að rífa kjaft
út af því. Síðan hef ég verið upp-
reisnarmaður í mér.“
Á sýningunni er fjölbreytt úrval
af myndum Spessa. Þar á meðal
eru portrettmyndir af Degi Sig-
urðarsyni, Yoko Ono, Thor Vil-
hjálmssyni, Rósku, Megasi og fjöl-
mörgum öðrum. Myndaröð er af
sjómönnunum sem voru að hætta
á sjónum, sumir eftir hálfrar aldar
sjómennsku, og önnur af konum á
Ísafirði. Enn ein myndaröð sýnir
áhöld sem notuð voru í búsáhalda-
byltingunni.
COVID-myndaröð
Nýjasta ljósmyndaverkefni Spessa er
COVID-myndaröð en þar sjást por-
trett af fólki fyrir vestan sem veiktist
af COVID. „Ég fór vestur á Ísafjörð og
var þá búinn að þaulhugsa verkefnið.
Fyrsta COVID-bylgjan fyrir vestan
var harkaleg og mig langaði til að
taka myndir af fólkinu sem hafði
veikst. Ég ákvað að hafa bakgrunn-
inn fölljósbláan, eins og liturinn er
á einnota grímunum. Þessi mynda-
röð er köld skrásetning. Þarna er alls
konar fólk, á öllum aldri, en það eina
sem það á sameiginlegt er að hafa
veikst af COVID.“
Spessi segist ekki stilla fólki upp
við myndatöku. „Þegar maður segir
fólki ekki hvernig það eigi að vera í
myndatökunni þá brýst út hjá því
ákveðið óöryggi sem mér finnst
mjög spennandi að fanga á mynd.
Þetta er dálítið eins og að leiða fólk
út á svell á skautum og sleppa síðan
af því hendinni. Þá kemur karak t-
erinn í ljós.“
ÉG VAR EINU SINNI
SPURÐUR AÐ ÞVÍ
HVORT ÉG VÆRI PÓLITÍSKUR
LJÓSMYNDARI. ÉG SAGÐI NEI OG
SVO SAGÐI ÉG JÁ.
Hráleikinn
er fallegur í
sjálfum sér,
segir Spessi.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Portrett af fólki fyrir vestan sem veiktist af COVID er nýjasta ljósmyndaverkefni Spessa.
Myndaröð af áhöldum sem voru notuð í búsáhaldabyltingunni.
Spessi 1990-2020 er yfir-litssýning á verkum ljós-myndarans Spessa, Sigur-þórs Hallbjörnssonar, sem nú stendur yfir í Mynda-sal Þjóðminjasafnsins.
Í tilefni sýningarinnar kemur út
vegleg bók um langan og farsælan
feril hans.
Spessi fæddist á Ísafirði árið 1956.
„Tólf ára gamall var ég farinn að
taka myndir á kassavél. Svo týndi ég
myndavélinni og tók ekki myndir í
mörg ár. Það var ekki fyrr en ég var
í Kaupmannahöfn fyrir 40 árum að
ég keypti mér góða notaða mynda-
vél og fór aftur að taka myndir. Tíu
árum síðar fór ég í hollenskan skóla
þar sem lögð var áhersla á að ekki
skipti máli hvort mynd væri falleg
eða ljót, hugmyndin á bak við hana
skipti öllu máli.
Eftir eitt ár í skólanum kom ég
heim og fékk vinnu á Pressunni og
var eini ljósmyndarinn á blaðinu.
Það er hröð vinna á blöðum, ég var
ekki vanur þannig vinnu og vann
Ég vil sýna hlutina
eins og þeir eru
Yfirlitssýning á verkum ljósmyndarans
Spessa stendur yfir í Myndasal Þjóð-
minjasafnsins. Bók um hann er komin út.
Nýjasta verkefnið er COVID-myndaröð.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
1 . A P R Í L 2 0 2 1 F I M M T U D A G U R24 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING