Fréttablaðið - 01.04.2021, Page 36
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Fréttakonan Sunna Karen Sigurþórsdóttir hefur sjálf dregið í efa að hún verðskuldi nafnbótina Sa k a má la-Su nna en hverfandi líkur eru þó
á því að hún losni við hana í bráð,
þar sem hún fylgir nú þáttunum
Ummerki eftir með nýrri sex þátta
röð sem nefnist Ofsóknir og þar
beinir hún sjónum sínum að elti-
hrellum.
Sunna Karen hefur á áralöngum
blaðamannsferli fjallað heilmikið
um dóms- og lögreglumál en segir
aðspurð að þrátt fyrir það hafi
komið henni á óvart hversu algengt
vandamál eltihrellar eru. „Ekki
síst með sívaxandi notkun á sam-
félagsmiðlum, þar sem fólk getur
auðveldlega hrellt aðra til dæmis í
skjóli nafnleyndar.
Ummerki um ofsóknir
Það kom líka á óvart að sjá hversu
algengar ofsóknir eru í nánum
samböndum, að einstaklingar séu
að ofsækja og hrella eigin maka. Sá
hópur, auk fyrrverandi maka, er
stærsti og hættulegasti hópur elti-
hrella,“ segir Sunna og bætir við að
þessir rati þó síður upp á yfirborðið.
„Því fólk veigrar sér við því að segja
frá, líkt og með annað heimilisof-
beldi, sem þó hefur hægt og rólega
verið að breytast.“
Sunna fjallaði um raunveruleg
íslensk sakamál í Ummerkjum í
vetur og hún er tilnefnd til Eddu-
verðlaunanna fyrir handrit þeirra
auk þess sem þættirnir fengu til-
nefningu sem frétta- og viðtals-
þáttur síðasta árs. „Það var heldur
betur ánægjulegt. Og óvænt,“ segir
Sunna um tilnefningarnar tvær.
„Við lögðum gríðarlega vinnu í að
gera þættina áhugaverða en fyrst
og fremst vandaða, enda um afar
viðkvæm málefni að ræða, og þess
vegna gleðilegt að sjá að það hefur
komist til skila,“ segir Sunna, en það
var einmitt síðla sumars við gerð
Ummerkja sem Lúðvík Páll, fram-
leiðandi þáttanna, bar hugmyndina
að Ofsóknum undir Sunnu.
Gríðarlegt áreiti
„Hann gerði það þegar hann tók
eftir því að ég var að verða fyrir
gríðarlegu áreiti af hálfu ókunnugs
manns, sem hringdi viðstöðulaust
á nær öllum tímum sólarhrings,“
segir Sunna, sem spurðist fyrir um
eltihrelli sinn og komst að því að
hann glímdi við veikindi en væri
meinlaus.
„Ég hafði þess vegna engar sér-
stakar áhyggjur af þessu. Þótt
maður þurfi vissulega að hafa
varann á. Þetta var fyrst og fremst
pirrandi og farið að trufla okkur í
vinnunni, en þegar ég leitaði ráða
um hvernig ég ætti að bregðast við
þessu var fátt um svör.“
Sunna segir að þau hafi að vissu
leyti mótað hugmyndina að þátt-
unum út frá þessu. „Því fólk sem
verður fyrir ofsóknum getur illa
brugðist við þeim, enda hafa engin
lög verið til í kringum of beldi af
þessum toga.
Ekki eins og í bíó
Eltihrellar eru oft bara venjulegt
fólk sem mætir í vinnu á morgnana
og eldar mat ofan í börnin á kvöld-
in. Það er engin sérstök staðalímynd
af eltihrellum og þetta eru ekkert
endilega vinalausir „lónerar“ eins
og við sjáum í bíómyndunum.“
Talandi um bíómyndir þá segir
Sunna sumt sem fram kemur í þátt-
unum eiginlega vera lyginni líkast.
„Við heyrum ótrúlegar og sláandi
sögur af einhverju sem maður sér
almennt bara í bíómyndum.
Til dæmis er rætt við prest í þjóð-
kirkjunni sem hefur þurft að þola
gríðarlegar ofsóknir af hendi fyrr-
verandi maka. Hann fór til dæmis
með hana til útlanda, tók af henni
síma og kort og læsti hana inni í
íbúðinni, svo aðeins fáein atriði
séu nefnd.“
Aldrei aftur
Sunna Karen segir þennan við-
mælanda sinn ekki hafa getað lifað
venjulegu lífi árum saman. „Og þótt
hún sé laus í dag, fimmtán árum
eftir að hún kynntist honum, fylgist
hann alltaf með lífi hennar.
Þessi kona er algjörlega mögnuð
og það er ótrúlegt að heyra hvernig
hún hefur náð að koma lífi sínu á
strik, að upplifa jákvæðni hennar
og bjartsýni og hvernig hún ætlar
aldrei aftur að leyfa manninum að
ná yfirhöndinni yfir sér. Hún hefur
loks náð að taka völdin og ætlar
aldrei að missa þau aftur.“
Fyrsti þáttur Ofsókna er sýndur á
Stöð 2 klukkan 20.00 að kvöldi ann-
ars dags páska. toti@frettabladid.is
Eltihrellir vakti áhuga
Sunnu á ofsóknum
Þjóðkirkjuprestur segir Sunnu Karen sláandi sögur af eltihrelli, í
þáttunum Ofsóknir. Sjálf ákvað Sakamála-Sunna að ráðast í gerð
þáttanna eftir að hafa mátt þola þrálátt áreiti ókunnugs manns.
Ofsóknir byggja á sögum fólks sem hefur lent í klóm eltihrella en Sunna Karen segir ekki rætt við gerendur að
þessu sinni. “En ef það verður framhald á þáttunum þá má vissulega skoða það.” FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
HANN TÓK EFTIR ÞVÍ
AÐ ÉG VAR AÐ VERÐA
FYRIR GRÍÐARLEGU ÁREITI AF
HÁLFU ÓKUNNUGS MANNS, SEM
HRINGDI VIÐSTÖÐULAUST Á
NÆR ÖLLUM TÍMUM SÓLAR-
HRINGS.
EKKI MISSA AF
NÝJASTA DV!
Þú færð DV á
eftirtöldum sölustöðum:
Nettó – N1 – Hagkaup – Olís – Bónus –
Samkaup – Penninn – 10-11 – Fjarðarkaup
– Kvikk – Extra – Kjöthöllin – Melabúðin –
Mosfellsbakarí
512 7000
www.dv.is/askrift
askrift@dv.is
Tryggðu þér áskrift að DV
MYND/VALLI
1. apríl 2021 | 13. tbl. | 112. árg. | Verð 995 kr.
Vill meira frelsi í frjósemismálum
Hildur Sverrisdóttir lögfræðingur hefur kynnst því af eigin raun að það er ekki sjálfgefið að eignast barn. Hún bendir á mikilvægi þess að konur séu upplýstar um frjósemi og að kerfið eigi að styðja fólk sem langar að eignast börn.
– sjá síðu 10
Uppskriftir að páskabröns
36
Kulnun og bjargráð
16
Aðeins 995 kr.!
Gleðilega páska!
✉
1 . A P R Í L 2 0 2 1 F I M M T U D A G U R30 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð