Fréttablaðið - 08.04.2021, Qupperneq 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —6 8 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 8 . A P R Í L 2 0 2 1
Krónan
mælir með!
bestur núna!
Mmm ...
ananas
FERÐAÞJÓNUSTA Að óbreyttu mega
Íslendingar eiga von á að sjá eitthvað
af skemmtiferðaskipum í sumar
ólíkt síðasta sumri. Afbókanir hafa
verið færri en í fyrra og í auknum
mæli gera skipafélögin kröfu um
bólusetningarvottorð.
„Það koma skip en þetta verður
ekki stórt sumar,“ segir Pétur Ólafs-
son, hafnarstjóri hjá Hafnarsam-
lagi Norðurlands. Sumarið 2020
kom ekkert skip til Akureyrar og
aðeins eitt kom við í smærri höfnum
Norðurlands. Pétur segir það hafa
verið hroðalegt áfall fyrir rekstur
samlagsins og valdið tekjufalli upp
á 450 milljónir króna. Skipafélögin
panta vanalega pláss með tveggja
eða þriggja ára fyrirvara. Að sögn
Péturs hafa flestar afbókanir vegna
sumarsins verið snemmsumars en
flest skemmtiferðaskipin koma frá
miðjum júní fram í miðjan ágúst.
„Nokkur skipafélög hafa þegar gefið
út að þau ætli að sigla hingað með
bólusetta farþega,“ segir hann.
Bókaðar skipakomur hjá Faxa-
f lóahöfnum eru 138 og farþegar
tæplega 150 þúsund. Erna Kristjáns-
dóttir markaðsstjóri segist gera ráð
fyrir afbókunum á komandi mán-
uðum en óljóst sé hversu margar
þær verði. Nokkur skipafélög hafi
hins vegar fullan hug á að sigla með
farþega sem koma í gegnum Leifs-
stöð og fari í sýnatöku bæði þar og
um borð í skipunum.
Um borð í skipunum séu læknar
og hjúkrunarfræðingar, ásamt því
að sýnatökur eru framkvæmdar. Sér-
stakur griðastaður er skilgreindur
um borð ef einhver veikist. „Staðan
núna hjá flestum skipafélögunum
er sú að farþegar farþegaskipa mega
ekki ferðast innanlands á eigin
vegum, heldur verða þeir að ferðast
um í ákveðinni búbblu þannig að
auðveldara sé að halda utan um
hópinn,“ segir hún.
Í fyrra komu aðeins sjö skip með
rúmlega 1.300 farþega í Faxaflóa-
hafnir. Tekjufallið var um 600 millj-
ónir króna. – khg
Skemmtiferðaskip til landsins
í sumar með bólusetta farþega
Alls er nú áætlað að skemmtiferðaskip komi 138 sinnum til Reykjavíkur næsta sumar með tæplega 150
þúsund farþega. Þótt gert sé ráð fyrir afbókunum segir markaðsstjóri Faxaflóahafna sum skipafélög ætla
að fljúga með farþega til Íslands sem verði skimaðir í Leifsstöð. Aukin krafa er um bólusetningarvottorð.
Það koma skip en
þetta
verður ekki
stórt sumar.
Pétur Ólafsson
hafnarstjóri
Vetrarlegt var um að litast á Sæbrautinni í gær er talsvert snjóaði í höfuðborginni. Veðurstofan gerir ráð fyrir frosti þar til á laugardaginn að örlítið slaknar á klónni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VIÐSKIPTI Reynir Grétarsson, stofn-
andi Creditinfo, er kominn í hóp
um þrjátíu stærstu hluthafa Arion
banka eftir að hafa keypt drjúgan
skerf, eða sem nemur um milljarði
króna, af þeim tæplega tíu prósenta
hlut sem bandaríski vogunarsjóð-
urinn Taconic Capital seldi í bank-
anum undir lok síðasta mánaðar.
Eignarhaldsfélög og ýmsir fjár-
sterkir einstaklingar keyptu meiri-
hluta bréfanna af Taconic, einkum
í gegnum framvirka samninga
hjá bönkunum, samkvæmt lista
yfir alla hluthafa Arion í gær, sem
Markaðurinn hefur séð. Íslenskir
lífeyrissjóðir, meðal annars LSR og
Lífeyrissjóður verzlunarmanna, og
verðbréfasjóðir bættu hins vegar
við sig um þriggja prósenta hlut.
Hlutur erlendra fjárfesta í Arion
hefur hríðfallið en í ársbyrjun 2020
nam samanlagður hlutur þeirra um
50 prósentum. Í dag eiga þeir undir
5 prósentum. – hae / sjá Markaðinn
Reynir kaupir
í Arion banka
fyrir milljarð