Fréttablaðið - 08.04.2021, Page 2

Fréttablaðið - 08.04.2021, Page 2
Parkinsonsamtökin fengu veglegan styrk Bjarni Haf þór Helgason af henti í gær Parkinsonsamtökunum sex milljóna króna styrk sem er afrakstur listsýningarinnar Fuglar hugans. Á sýningunni var að finna málverk eftir Ingvar Þór Gylfason sem voru innblásin af tónlist Bjarna Haf þórs. Við hlið málverkanna eru myndbönd sem Kristján Kristjánsson framleiddi þar sem sjá má dansa Kötu Vignisdóttur. Fjárhæðin rennur í uppbyggingu Parkinsonseturs. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR www.lyfsalinn.is OPIÐ 9.00 - 18.00 virka daga Verið hjartanlega velkomin GLÆSILEGT APÓTEK Í ORKUHÚSINU URÐARHVARFI 8 FERÐAÞJÓNUSTA „Margar ferða­ skrifstofur sem við erum í samstarfi við erlendis voru að leita leiða til að halda viðskiptavinum spenntum fyrir þeim ferðum sem þurfti að setja á ís og upp úr því spratt þessi hugmynd,“ segir Dagný Björg Stef­ ánsdóttir, forstjóri ferðaþjónustu­ fyrirtækisins Hidden Ice land. Ferðaþjónustufyrirtækið mun bjóða upp á sýndarmenntunar­ námskeið um eldgosið á Reykjanesi. Um er að ræða fyrirlestur á netinu svo fólk um heim allan geti fræðst um eldgosið. Stuðst verður við myndir og myndbönd af eldgosinu og að fyrirlestrinum loknum býðst þátttakendum að spyrja spurninga. Meginástæðu fyrirlestrarins segir Dagný vera þá að kveikja neist­ ann hjá tilvonandi ferðalöngum fyrir ferðalögum til Íslands þegar aðstæður leyfa. „Þó svo að ferðalög til útlanda séu ekki í boði fyrir alla þá þýðir það ekki að það sé ekki hægt að byrja að skipuleggja og hafa eitthvað til að hlakka til,“ segir hún. Dagný segir að eftir að eldgosið hófst á Reykjanesi þann 19. mars síðastliðinn hafi hún fundið fyrir miklum áhuga að utan. „Til dæmis hafa þeir sem eru með ferðir bókaðar með okkur í vor haft samband til að athuga hvort hægt sé að bæta göngu að gossvæðinu í ferð­ ina þeirra,“ segir hún. „Við bjóðum upp á dagsferð um Reykjanes og áhuginn á þeirri ferð hefur einn­ ig aukist í kjölfar gossins,“ bætir Dagný við. Frá því að kórónaveirufaraldur­ inn hófst hér á landi hefur ferða­ þjónusta að mestu leyti legið niðri og segir Dagný að þegar faraldurinn stóð sem hæst hafi starfsemi fyrir­ tækisins í rauninni legið í dvala. Hún segir mörg tækifæri felast í eldgosinu og þá hafi breyttar reglur á landamærunum einnig breytt miklu, en þær tóku gildi í fyrradag og heimila farþegum utan Scheng­ en að ferðast til Íslands án þess að fara í sóttkví, hafi þeir vottorð um bólusetningu eða staðfestingu um COVID­19 sýkingu. „Þessar fregnir voru kærkomnar fréttir fyrir okkar starfsemi þar sem okkar stærsti viðskiptavinur kemur frá Bandaríkjunum. Þessi breytta reglugerð veitir okkur meiri fyrir­ sjáanleika út árið og viðskiptavinir geta bókað með meira öryggi ef þeir hafa verið bólusettir,“ segir Dagný. Hvað gosið varðar felast í því tækifæri til að koma Íslandi í sviðs­ ljósið að nýju að sögn Dagnýjar. „Við vonum að gosið í Geldinga­ dölum hafi svipuð áhrif þegar við komum út úr heimsfaraldrinum og gosið í Eyjafjallajökli árið 2010,“ segir Dagný. Mikilvægt sé fyrir ferðaþjónustuna að finna nýjar leiðir til að kynna Ísland, sýndar­ veruleikanámskeiðið sé þáttur í því. „Þessi tækni hefur verið mjög mikilvægt tól fyrir okkur þegar ferðalög hafa ekki verið möguleg fyrir marga,“ segir Dagný. birnadrofn@frettabladid.is Eldgosið hefur skapað fyrirtækjum tækifæri Dagný Björg Stefánsdóttir, forstjóri Hidden Iceland, segir áhuga að utan hafa aukist eftir að eldgos hófst á Reykjanesi. Mikilvægt sé að finna nýjar leiðir til að kynna Ísland. Hennar leið er að bjóða upp á sýndarmenntunarnámskeið. Ný sprunga myndaðist nýlega á gossvæðinu á Reykjanesi. Dagný segir áhuga að utan hafa aukist mikið eftir að gosið hófst. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Við vonum að gosið í Geldingadölum hafi svipuð áhrif þegar við komum út úr heimsfaraldr- inum og gosið í Eyjafjalla- jökli árið 2010. Dagný Björg Stefánsdóttir, forstjóri Hidden Iceland COVID-19 „Okkur var brugðið við að heyra þessi tíðindi þar sem þetta er fyrsta samfélagssmitið í bænum,“ segir Þorbjörg Gísladóttir, sveitar­ stjóri Mýrdalshrepps, en hópsmit greindist á vinnustað í grennd við Vík í gær. „Við vorum hrædd um að smitið hefði dreift sér um bæinn en svo virðist ekki vera eins og sakir standa alla vega. Ég átti gott spjall við Björn Inga Jónsson, verkefnastjóra almanna­ varna á Suðurlandi, sem sagði mér að smitrakningu væri lokið og svo virtist sem um einangrað hópsmit væri að ræða,“ ítrekar Þorbjörg. „Þetta sýnir okkur það að þótt það hafi gengið vel hingað til í baráttunni við veiruna þá megum við ekki sofna á verðinum. Það er hins vegar gott að vita af því að smitið hafi ekki dreift sér meira. Nú þurfum við bara að gæta að sótt­ vörnum,“ segir Þorbjörg um fram­ haldið. – hó Hópsmit virðist vera einangrað COVID-19 Yfirvöld virðast hætt við að skylda þá sem búa á Íslandi í sóttkví á sóttvarnahótelum eftir að Landsréttur vísaði í gær frá kæru vegna úrskurðar Héraðs­ dóms Reykjavíkur um ólögmæti reglugerðar heilbrigðisráðherra þess efnis. Í staðinn á að ef la eftirlit með fólki í heimasóttkví. „Það er einmitt eitt af því sem við erum að skoða þessa dagana; hvaða fletir eru á því að auka eftirlitið,“ segir Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögreglu­ þjónn hjá Almannavörnum. Aðspurður segir Rögnvaldur of snemmt að segja til um hvaða aðferðir séu til skoðunar. „Þetta er vinna sem er bara nýlega byrjuð og við eigum eftir að finna leiðir sem okkur finnast heppi­ legar,“ segir hann. „Það er í sjálfu sér allt til skoðunar og við erum opin fyrir öllu.“ Svandís Svavarsdóttir heilbrigð­ isráðherra sagði við Fréttablaðið í gærkvöld að gefa eigi út nýja reglu­ gerð, byggða á núverandi lögum. Gera má ráð fyrir því hún feli í sér að ferðamenn og þeir sem ekki búa hér fari áfram á sóttvarnahótel. „Ég úti loka það ekki að við gætum lagt til að það yrði að fara fram ein hvers konar breyting á sótt­ varna lögum en fyrst um sinn ætlum að við að fara þessa leið í gegnum reglu gerð og fram kvæmdina,“ sagði ráðherra. Rögnvaldur ítrekar að sá leki sem yfirvöld hafi ætlað að setja fyrir með ráðstöfunum á landamær­ unum og sóttvarnahótelinu snúist ekki aðeins um ferðamennina. „Það er náttúrlega líka fólk sem býr hér og starfar og er með lög­ heimili á Íslandi sem við höfum verið í vandræðum með,“ segir Rögnvaldur. Vandinn sé því ekki leystur með því að skikka eingöngu ferðamenn á sóttvarnahótel. Rögnvaldur segir að ekki hafi verið settur tímarammi fyrir lausn málsins. „Það væri ágætt að vera kominn með einhverja hugmynd fyrir helgi eða um helgina.“ – gar Hert eftirlit með sóttkví í heimahúsi Það er í sjálfu sér allt til skoðunar og við erum opin fyrir öllu. Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlög- regluþjónn hjá Almannavörnum 8 . A P R Í L 2 0 2 1 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.