Fréttablaðið - 08.04.2021, Síða 12

Fréttablaðið - 08.04.2021, Síða 12
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Náttúran ætlar ekki að taka þeim átroðningi þegjandi og sýnir ofsa- fengin viðbrögð. Í hnotskurn snýst munurinn um sérak- reinar eða forgangsak- reinar og fjölda stoppa. Dag hvern þylja fréttastofur víða um heim upp COVID-tölur dagsins og í þær er rýnt af stakri nákvæmni af alls kyns sérfræðingum. Aðrar fréttir falla að mestu í skuggann, meira að segja fréttir sem eiga afar brýnt erindi við allt mannkyn. Þannig hefur baráttunni gegn lofts- lagsbreytingum verið ýtt til hliðar. Henni er víst ætlað að bíða enn um sinn. Flestum ætti þó að vera ljóst að þjóðir heims hafa ekki efni á að sýna viðbragðs- og skeytingarleysi í loftslagsmálum. Þar er mannkynið að falla á tíma. Ein og ein frétt birtist vissulega um loftslagsvána, en ekki fyrr en búið er að fara vel og vandlega yfir COVID-ástandið. Fyrir ekki löngu síðan birtist frétt á BBC um að hið gríðarlega magn af andlitsgrímum sem notaðar eru um allan heim sé alvarlegt bakslag í baráttunni gegn mengun. Þessi frétt var endurflutt nokkrum sinnum af áhyggjufullum fréttaþul en hvarf svo því nýrri og „mikilvægari“ fréttir þurftu að komast að. Svipuð örlög hlaut hrollvekjandi frétt um skelfi- lega skógareyðingu víða um heim, bæði skóga sem menn ryðja af fullkomnu miskunnarleysi og skóga sem eyðast af völdum loftslagsbreytinga. Frétt um að sjö milljónir manns, að minnsta kosti, deyi árlega vegna loftmengunar er ógnvænleg en týnist innan um tölur um dauðsföll vegna COVID. Skelfilega dapurleg- ar eru einnig fréttir um hrun í fjölbreytni lífríkisins. Ekki er þó talið mögulegt að bregðast snöfurmannlega við þessum illu tíðindum. COVID skyggir á allt annað, meira að segja hræðilegar fréttir eins og þessar. Loftslagsbreytingar eru að kalla hörmungar yfir mannkynið. Æ erfiðara verður að snúa þeirri þróun við. Hugsanlega er það einfaldlega orðið of seint og þar getur mannkynið engum um kennt nema sjálfu sér. Það er þó enn mögulegt að draga úr þessari þróun og minnka skaðann, en það er kapphlaup við tímann. Þegar markmiðin eru síðan sett við ár sem eru óra- fjarri, eins og 2050 og 2070, þá er auðvelt að fyllast vonleysi og hugsa sem svo að baráttan sé töpuð. Allir einstaklingar hljóta að þekkja það að hafa ein- hvern tímann staðið frammi fyrir vandamáli og óskað þess að það myndi hreinlega hverfa. Óskhyggjan sem læðist inn í heilabúið er: „Þetta er óþægilegt mál sem ég vil ekki taka á. Ef ég læt eins og það sé ekki til þá hverfur það kannski.“ Hin nöturlega staðreynd er sú að ef þessi leið er farin þá vefur vandamálið upp á sig og belgist út. Rétta leiðin var aldrei að hlaupa í felur. Það sama á við í umhverfismálum, það að fresta því að taka á vandanum er ávísun á enn frekari hörmungar – og eru þær þó nægar fyrir. Mannkynið hefur lagt umhverfið undir sig í þeirri trú að það sé drottnari jarðarinnar og náttúran sé þögul og auðsveip og það geti gert við hana það sem því sýnist. Náttúran ætlar ekki að taka þeim átroðn- ingi þegjandi og sýnir ofsafengin viðbrögð. Hún and- mælir og berst af krafti í miðri eyðingu. Þótt ekki væri nema sjálfs sín vegna ætti mannkynið að taka mark á þeim viðbrögðum. Að falla á tíma Áhugasamir hafa eflaust ekki farið varhluta af deilunum um Borgarlínu og Lite-BRT útgáfuna sem nefnd hefur verið Léttlína. Í hnotskurn snýst munurinn um sérakreinar eða forgangsakreinar og fjölda stoppa. Borgarlínan (Full Service BRT) setur lágmarksferðatíma í forgang með því að hafa langt á milli stoppa eftir langri leið sérakreina. Léttlína setur áhersluna á háa ferðatíðni með blöndu af sér- og for- gangsakreinum og snjallljósastýringu til að stytta ferðatíma og fleiri vögnum með stutt á milli stoppa á útbreiddara leiðaneti. En markmiðið er það sama: bæta þjónustu almenningssamgangna og fjölga farþegum, bráðnauðsynlegt verkefni, þó veðmálið sé ólíkt. Þeir sem veðja á Borgarlínu veðja líka á að ferðatím- inn skipti tilvonandi farþega mestu máli, þeir sem veðja á Léttlínu veðja á að aðgengi (fjöldi stoppa) og tíðni skipti mestu máli. Í borgum þar sem báðar útgáfurnar má finna hafa rannsóknir sýnt að farþegar telja þetta jafngóða kosti en að ferðatíðnin skipti farþega mestu máli og næst fjöldi stoppa, þó stuttur ferðatími sé líka mikilvægur. Nýleg rannsókn á forspárnákvæmi BRT verkefna í Bandaríkjunum sýndi að þó kostnaðarspár reyndust sæmilega nákvæmar, þjáðust notkunarspár af mikilli bjartsýnisskekkju. Önnur rannsókn sýndi að notkun BRT í borgum í Norður-Ameríku af sambæri- legri stærð og höfuðborgarsvæðið, var einungis um 2-5% en flakkaði frá 2-17% þegar þjónustusvæðið náði rúmlega tveimur milljónum manna. Sú borg sem sýndi besta árangurinn miðað við höfðatölu hafði brugðið af sporinu með því að hafa ekki meira en 400 metra milli stoppa, þá á kostnað ferðatímans, ólíkt hefðbundnum BRT leiðarkerfum og Borgarlínu. Fyrir vikið er erfitt að slá Léttlínu út af borðinu enda tekur það 3-4 sinnum styttri tíma og minna fé að byggja og reka Léttlínu en Borgarlínu þó hún skili sama árangri fyrir upplifun farþega. En ljóst er að árangur þessa verkefnis mun ráðast af því hvort markmiðið sé að hugur farþega stýri ákvarðanatökunni eða að ákvarðanatakan byggi á því að stýra hugum farþega. Ákvarðanir stýrist af farþegum, ekki öfugt Ragnhildur Alda M. Vilhjálmsdóttir varaborgarfull- trúi Sjálfstæð- isflokksins í Reykjavík af lesendum dagblaða* á höfuðborgarsvæðinu á aldursbilinu 18–49 ára lesa Fréttablaðið daglega. 88,4% *Fréttablaðið og Morgunblaðið. Heimild : Prentmiðlamæling Gallup okt. - des 2020 Logandi þinghelgi Twitter-viðbrögð fólks við ferð vinstri grænu og jarð- fræðimenntuðu þingsetanna Ara Trausta Guðmundssonar og Steingríms J. Sigfússonar á gosstöðvarnar í fyrradag sýndu að með henni komu þeir við kvikuna í mörgum. Sóley Tómas- dóttir bar í tísti vísindaferð þingmannanna saman við innlit ráðherra á meinta sölusýningu. Óskar Steinn Ómarsson velti því upp hvort 40 ára gamlar BA- gráður í jarðfræði dygðu til þess að skilja hafrana frá sauðunum og Stjörnu-Sævar sagði fullkom- lega óþolandi að svæðið væri lokað sumum en ekki öðrum. Að gefnu tilefni Ari Trausti greip til varna á Facebook enda hefði sím- skeytastíll Twitter með sín 280 slög hrokkið skammt þar sem varnarfærslan „Af gefnu tilefni“ lagði sig á 1.790 slög með bilum en þar þótti honum f ljótfærnin grass era auk þess sem skilningur fólks á störfum hans gengur víst stundum fram af honum. „Í vísindaskyni“ þurfi ekki eingöngu að tákna mælingar og beinar rannsóknir og hann hafi verið að af la gagna fyrir bók sem er í vinnslu og að skoða „vettvanginn með augum vísindamannsins“ til þess að geta fylgt eftir þingsályktun. Svo rétt aðeins sé tæpt á fjölmörgum erindum Ara Trausta við Fagra- dalsfjall. toti@frettabladid.is 8 . A P R Í L 2 0 2 1 F I M M T U D A G U R12 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.