Fréttablaðið - 08.04.2021, Page 18
Bjartir tímar
framundan
Vorum að taka upp glæsilega sendingu
frá meistara RUNDHOLZ
Vel hannaður fatnaður,
öðruvísi og alltaf töff.
KÍKTU VIÐ HJÁ OKKUR Á ÓÐINSGÖTU 1, 101 REYKJAVÍK
Sími 8341809 BOEL boelisland
Opið virka daga 12-18 laugardaga 12-16
www.boel.is
Það hefur ekki farið framhjá
neinum að faraldur hefur skekið
heimsbyggðina alla og neytt fólk
úr öllum stéttum samfélagsins
heim í einangrun, sóttkví og
jogginggalla.
johannamaria@frettabladid.is
Tískan undanfarna mánuði
hefur litast af þessum aðstæðum
og tískupallarnir endurspeglað
yfirlýsta ást mannkynsins alls á
mjúkum víðum buxum,
hettupeysum og hlýlegum mún-
deríngum.
Okkur þyrstir í eitthvað fallegt
En eitt er víst að eftir mánaðalanga
heimasetu er marga tískuklóna
farið að þyrsta í eitthvað fallegt og
flæðandi, eitthvað úr hrynjandi
silki, með rómantískri blúndu og
tjulli, eitthvað ævintýralega guð-
dómlegt og vel sniðið.
Djúpt í ævintýraskóginum
Þar kemur vor- og sumartískan til
bjargar enda hafa fjölmörg tísku-
merki orðið vör við þessa þörf
fólks, að lífga upp á hversdaginn,
klæða sig upp og taka vel á móti
grísku gyðjunni innra með sér.
Tískusýningin hjá Fendi í Kína í
mars fyrir vor/sumar 2021 var til
dæmis ævintýri líkust og fyrir-
sæturnar svifu um pallana eins og
hábornir álfar úr ævintýraskógi.
Aðrir leiddu áhorfendur dýpra
inn í dimman ævintýraskóginn og
sýndu dekkri hliðar ævintýranna
eins og sjá má hjá Yohji Yamamoto
í tískuvikunni í París í október
2020.
Tíska ævintýri líkust
Chanel fór rómantískar leiðir í hvítri blúndu með klassískum sniðum og kvenlegum hringabrynjum í París í fyrra.
Í öllum ævintýrum er að finna ill öfl.
Hér er vonda nornin holdi klædd og
hefur aldrei verið glæsilegri. Tísku-
vikan í París í október 2020.
Hringabrynjan var þema hjá mörgum, hvort sem um
var að ræða málmkennd jakkaföt, útskorið leður eða
samsettar pallíettur með hlekkjum og skrautsteinum
eins og sjá má hér á riddaralegri ævintýraprinsessu úr
smiðju Pacos Rabanne á tískuvikunni í París í október.
Rómantík, ævintýri, prinsessur í
kastalaturni, dragdrottningar og
margt fleira kom til hugar á tísku-
sýningu Paul & Joe Ready í október
í París. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY.
Samsettar
pallíettur geta
líka verið róman-
tískar eins og sjá má
hjá Louis Vuitton í
október 2020 á
tískuvikunni í
París.
Tískupallur-
inn hjá Fendi var
eins og ævintýra-
skógur og völundar-
hús á tískuvikunni í
Shanghai í mars.
6 kynningarblað A L LT 8. apríl 2021 FIMMTUDAGUR