Fréttablaðið - 08.04.2021, Side 21
Evrópusambandið er ein
merkilegasta tilraun á síðari
tímum til þess að auka hag-
sæld og tryggja frið með
víðtækri samvinnu.
AF KÖGUNARHÓLI
Þorsteinn
Pálsson
Helsta ástæðan fyrir efasemdum og andstöðu margra við fulla aðild
Íslands að Evrópusambandinu er
ótti við að miðin fyllist aftur af
erlendum fiskiskipum. Ef þessi
ótti væri byggður á rökum ætti ég
heima í liði efasemdarmanna.
Samkvæmt reglum Evrópusam
bandsins á engin þjóð rétt til veiði
í landhelgi annarrar nema að baki
liggi nýleg veiðireynsla. Hún er
ekki fyrir hendi. Ísland þarf því
ekki undanþágu til þess að halda
erlendum veiðiskipum utan lög
sögunnar.
Miðjan í skrúfstykki
Þeir sem eru lengst til vinstri lýsa
Evrópusambandinu sem háborg
óhefts kapítalisma. Hinir, sem eru
lengst til hægri, draga upp mynd
af endurborinni sósíalískri ráð
stjórn.
Rangar staðhæfingar og öfga
sjónarmið af þessu tagi á ystu
vængjum stjórnmálanna hefta
markvissa rökræðu um þessi
efni. Miðjusjónarmiðin hafa ein
faldlega verið föst í skrúfstykki
öfganna.
Nýjar aðstæður kalla á að við
losum umræðuna úr þessari
þvinguðu stöðu.
Þörfin er nú meiri en áður að
koma ár okkar fyrir borð í fjöl
þjóðasamvinnu og nýta öll tæki
færi til að gæta hagsmuna lands
ins. Þar ráðast möguleikarnir á
fjölþættari verðmætasköpun.
Að sitja við borðið
Helstu hagsmunir okkar í fjöl
þjóðasamstarfi snúast annars
vegar um varnir og öryggi og hins
vegar um efnahag og viðskipti.
Í Atlantshafsbandalaginu
á Ísland sæti við borðið. Vita
skuld ráða stærri ríki mestu.
En reynslan hefur samt sýnt að
þannig gætum við best hagsmuna
þjóðarinnar á þessu sviði.
Ísland á aðild að innri markaði
Evrópusambandsins í gegnum
EES. Í því felst að ríki með fulla
aðild ráða nær allri löggjöf á sviði
viðskipta, fjármála, samkeppni,
margvíslegra félagslegra réttinda
á vinnumarkaði, eftirliti með heil
brigði og hollustu, neytendavernd
og á ýmsum öðrum sviðum.
Samt er sú spurning ekki á dag
skrá hvort hagsmunagæslan yrði
ekki sterkari á þeim vettvangi
með því að sitja við borðið eins og
í Atlantshafsbandalaginu.
Á komandi árum þurfum við
með margvíslegu móti að auð
velda atvinnulífinu að hlaupa
hraðar. Full aðild opnar nýjar
leiðir til þess um leið og hún auð
veldar okkur mikilvæga hags
munagæslu.
Versta leiðin til að gæta
íslenskra hagsmuna er að standa
utan gátta hvort sem við sækjum
á eða andmælum.
Endurnýjun miðjustjórnmála
Evrópusambandið er ein merki
legasta tilraun á síðari tímum til
þess að auka hagsæld og tryggja
frið með víðtækri samvinnu. Í
raun og veru má segja að Evrópu
sambandið sé eins konar Kaup
félag þjóðanna.
Samvinnufélög voru áhrifamik
Kaupfélagið
il á síðustu öld hér á landi, bæði í
innf lutningi og útf lutningi. Þau
voru fjarri því að vera gallalaus og
leystu ekki allan vanda. Einka
fyrirtækin skákuðu þeim gjarnan.
En það sem dró bændur og útf lytj
endur sjávarafurða inn í sam
vinnufélög var sú grundvallar
regla að réttur þeirra minnstu var
tryggður.
Halldór Ásgrímsson var fram
sýnn utanríkisráðherra. Hann
náði að tengja hugmyndafræði
samvinnufélaga við þau tækifæri,
sem Ísland á í Evrópusamvinnu.
Hann vildi endurnýja miðju
pólitíkina með því að setja þau
mál á dagskrá.
Þörfin fyrir þá endurnýjun
blasti við fyrir tveimur áratugum.
Hún er enn óleyst verkefni.
Dagskrármál
Auðvitað réðu þeir stærstu mestu
í samvinnufélögunum á sínum
tíma. En þeir minni voru nokkuð
öruggir um að ekki var troðið á
rétti þeirra. Minni ríki í Evrópu
hafa einmitt sótt í Evrópusam
bandið af sömu ástæðu. Þau hafa
styrkt efnahag sinn og um leið
tryggt stöðugleika og öryggi í við
skiptum.
Evrópusambandið er mála
miðlun. Það hafnar óheftum
markaðsbúskap og einhliða
félagslegum lausnum. Þess vegna
eru f lokkar yst til hægri og vinstri
gjarnan í andstöðu við samvinnu
af þessu tagi.
Miðjumoð þykir ekki alltaf
skemmtilegt. En þegar upp er
staðið skiptir þó mestu máli að
það sem sagt er og gert leiði til
farsældar.
Samvinna á grundvelli mála
miðlana hefur reynst öðrum
minni þjóðum í Evrópu hag
felld. Það er andstætt íslenskum
hagsmunum að blása þá leið út af
borðinu. Við þurfum að nálgast
viðfangsefnið með öðrum hætti
en fyrir tólf eða tuttugu árum. En
það á að fara á dagskrá.
Netapótek Lyavers
Frí heimsending um land allt!*
Í Netapóteki Lyavers
getur þú fundið þína
lyfseðla, valið samheitalyf
og séð lyaverðið þitt.
Nýttu þér lágt lya- og
vöruverð á lyaver.is
lyaver.is
Suðurlandsbraut 22
Afhendum
samdægur
s
á höfuðbo
rgarsvæðin
u
mán–lau e
f pantað
er fyrir kl. 1
3:00.
Opna lyagáttina
Apótekið
heim til þín
*Frí heimsending ef pantaðir eru tveir lyfseðlar
eða verslað er fyrir meira en 9.900 krónur.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 13F I M M T U D A G U R 8 . A P R Í L 2 0 2 1