Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.04.2021, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 08.04.2021, Qupperneq 32
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 550 5000 Thomasar Möller BAKÞANKAR COVID-kreppan hefur leikið íslenskt efnahagslíf grátt á mörgum sviðum. Vandinn er alvarlegur enda er samdráttur hagkerfisins mikill og er atvinnu- leysi, sveif lur gjaldmiðilsins og verðbólga töluvert meiri en hjá nágrannalöndum okkar. Það eru margar leiðir út úr kreppunni. Heyrst hefur slagorðið „hlaupum hraðar“ frá stjórn- völdum og Samtökum iðnaðarins. Einnig erum við hvött til að „skapa meiri verðmæti“. En sköpum við verðmæti með því að hlaupa hraðar? Stöldrum aðeins við þá kenningu. Í stjórnunarfræðum er talað um að hlutverk leiðtoga er gera réttu hlutina en stjórnendur gera hlutina rétt. Þeir marka þannig stefnuna og finna réttu leiðina. Svo tekur starfsfólkið við og framkvæmir stefnuna. Hraði skiptir ekki máli, aðeins að allir rói í sömu átt. Þess vegna ættum við að einblína á stefnuna sem við tökum út úr COVID og finna réttu leiðirnar. Leiðirnar eru þær að mínu mati að virkja markaðsöf lin betur og auka viðskiptafrelsi en stjórnvöld eru að halda aftur af atvinnulífinu með ýmsum fjötrum. Það þarf að bæta samkeppnishæfni lands- ins okkar. Við þurfum að fjölga störfum í nýsköpun með menntun og stuðningi við frumkvöðla. Það getur vel verið að góðir sprett- hlauparar séu meðal þeirra en mikilvægast er þó að mínu mati að þeir hlaupi í rétta átt. Þú vinnur aldrei kapphlaup með því að hlaupa hratt í vitlausa átt. Minn uppáhalds málsháttur er „Meira vinnur vit en strit“. Við getum hæglega náð meiri árangri með minni hraða ef stefnan er rétt. Tökum því rétt skref í rétta átt úr kreppunni. Meira vinnur vit en strit D-vítamínbætt Léttmjólk – eins og hollur sólargeisli 5G er mætt með meiri hraða, nýjum tækifærum og endalausum ævintýrum. Dansgólð er uppfært og klárt fyrir þig að dansa á. Vertu með í gleðinni á stærsta skemmtistað í heimi. nova.is Hvað ætlar þú að gera í því? 5G er mætt hjá Nova

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.