Fréttablaðið - 13.04.2021, Side 3
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —7 1 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R Þ R I Ð J U D A G U R 1 3 . A P R Í L 2 0 2 1
Reglubundin þjónustuskoðun tryggir
betri endingu og viðheldur ábyrgð
Veldu þekkingu og reynslu
HEKLA · Laugavegur 170 · Sími 590 5000 · www.hekla.is
Pantaðu tíma á
www.hekla.is/timabokanir
Viðurkenndur þjónustuaðili
COVID-19 Íslendingar er nú í 13. sæti
yfir þjóðir heimsins þar sem hlut-
fall bólusettra er hæst og það hæsta
á Norðurlöndum. 9,4 prósent eru
fullbólusett og fjórða bóluefnið, frá
Jansen, er væntanlegt.
Ingileif Jónsdóttir, prófessor í
ónæmisfræði, telur árangurinn
skýrast af samstarfi við Evrópusam-
bandið. Það hafi verið eina leiðin.
„Við sem lítil þjóð hefðum aldrei
getað samið við öll þessi fyrirtæki
upp á eigin spýtur, vitandi ekkert
um hvað yrði viðurkennt, hraða og
framleiðslugetu þegar samningar
hófust,“ segir Ingileif.
Stjórnvöld hafa rætt við fyrirtæk-
in fyrir utan samstarfið en Ingileif
efast um að árangurinn væri jafn
mikill utan Evrópusamstarfsins.
Samkvæmt greiningu Financial
Times er Ísrael sem fyrr með hæsta
bólusetningarhlutfall heims. Þar
eru 55 prósent fullbólusett. Þar á
eftir koma Síle, Barein og Banda-
ríkin með rúmlega 20 prósent.
Í Bretlandi hafa 60 prósent fengið
fyrstu sprautu. Þar sem aðallega er
notað AstraZeneca, sem þarf þrjá
mánuði milli sprauta, hafa aðeins
11 prósent lokið bólusetningu.
Í Evrópusambandinu hafa 6 pró-
sent verið fullbólusett en í löndum á
borð við Japan, Suður-Kóreu, Nýja-
Sjáland, Suður-Afríku og Indland
er hlutfallið innan við eitt prósent.
Fáir sem engir eru fullbólusettir
í Ástralíu, Kína, Sádi-Arabíu og
mörgum ríkjum þriðja heimsins.
Hátt hlutfall fullbólusettra á
Íslandi skýrist að mestu leyti af því
hversu mikið hefur borist af bólu-
efni Pfizer, þar sem aðeins tvær
vikur þurfa að líða milli sprauta.
Mjög lítið hefur borist hingað af
bóluefni Moderna, aðeins um sex
þúsund skammtar.
„Moderna hefur reynt að auka
framleiðslugetuna en hefur veitt
mjög stórum hluta til Bandaríkj-
anna þar sem það var fjármagnað
af bandarísku heilbrigðismála-
stofnuninni,“ segir Ingileif.
Fleiri bóluefni eru á áætlun, svo
sem hið þýska Curevac, franska
Sanofi og rússneska Spútnik. Cure-
vac og Sputnik eru komin í áfanga-
mat hjá Lyfjastofnun Evrópu.
Ingileif segir að samþykki gæti
legið fyrir í lok apríl eða maí.
Spurningarmerki sé þó við afhend-
ingargetuna. Reiknað sé með hjarð-
ónæmi í sumar og gætu þessi bólu-
efni verið komin fyrir þann tíma.
Ingileif segir eina stærstu spurn-
inguna núna hvort börn verði bólu-
sett. Á Íslandi eru á áttunda tug þús-
unda barna. Ný rannsókn frá Pfizer
gefi góða niðurstöðu.
„Ef það kemur grænt ljós á bólu-
setningar barna fljótlega vona ég að
stjórnvöld hér heimili það einnig,“
segir Ingileif. – khg
Árangurinn
verið lakari án
ESB-samstarfs
Nærri tíu prósent Íslendinga hafa verið bólusett
við COVID-19. Í mörgum ríkjum, vestrænum
og öðrum, eru bólusetningar afar skammt á veg
komnar. Prófessor í ónæmisfræði efast um að ár-
angurinn væri jafn góður án Evrópusamstarfsins.
Ef það kemur grænt
ljós á bólusetningar
barna fljótlega vona ég að
stjórnvöld hér heimili það
einnig.
Ingileif
Jónsdóttir,
prófessor í
ónæmisfræði
Fjöldi fólks var saman kominn á Austurvelli í gær til að mótmæla brottvísun flóttafólks til Grikklands. Skipuleggj-
endur mótmælanna hafa búið á Íslandi í tíu mánuði og segjast þreyttir, bæði andlega og líkamlega. Þeir biðja um
mannúðlega meðferð og að Grikkland verði skilgreint sem óöruggt ríki fyrir flóttafólk. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
LÍFRÍKI Mikill fjöldi spendýra sem
drukkna í veiðarfærum við Ísland
veldur áhyggjum.
„Við höfum áhyggjur af meðafla
í grásleppuveiðum, sérstaklega
selum,“ segir Guðjón Már Sigurðs-
son sjávarlíffræðingur.
Til stóð að loka á útf lutning
íslenskra fiskafurða til Banda-
ríkjanna um næstu áramót þar sem
Íslendingar stóðust ekki kröfur
um fjölda spendýra sem meðafla.
Ársfrestur fékkst vegna heims-
faraldursins. Náist ekki að draga
úr drápinu verður endurskoðun á
útflutningsbanni ekki möguleg fyrr
en fjórum árum eftir að bann tæki
gildi í byrjun árs 2023. – kdi / sjá síðu 4
Selir drepast í netum í þúsundatali