Fréttablaðið - 13.04.2021, Síða 4

Fréttablaðið - 13.04.2021, Síða 4
Ævintýri á fjöllum og í fjörðum Farþegar og áhöfn á skútunni Auroru sigldu um Jökulfirði á Vestfjörðum um helgina, skutu út léttabáti og gengu hér og þar á land og upp á nálæg fjöll og skíðuðu svo niður sem leið lá ofan í firðina aftur. Á meðfylgjandi mynd sést hluti leiðangursmanna ganga upp fjallið Töf lu í Veiðileysufirði á meðan Aurora liggur við akkeri. Bæði farþegar og áhöfn gistu um borð í skútunni þá fjóra daga sem ferðalagið varði. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI ÆTTFRÆÐI Friðrik Skúlason hafði veg og vanda af gerð ættfræðifor- ritsins Espólíns. Forritið var grunn- ur að gagnagrunninum Íslendinga- bók, sem unninn var í samstarfi við Íslenska erfðagreiningu. Friðrik biður fólk um að leggja hönd á plóg við að sjá til þess að upplýsingar um hverjir séu á göml- um ljósmyndum fari ekki í súginn. „Það er mjög áhugavert fyrir fólk að sjá hvernig ættingjar þeirra litu út og núna eru þeir einstaklingar sem hafa vitneskju um hverjir eru á myndum af fólki fæddu í kringum 1900 komnir á háan aldur,“ segir Friðrik. Að sögn Friðriks er mikilvægt fyrir menningararfinn að halda skrá um upplýsingar af þessu tagi. „Því ætti fólk sem hefur kunn- áttuna að setja myndir inn á próf- íla á Íslendingabók. Þeir sem setja gamlar ljósmyndir inn á samfélags- miðla mega líka endilega merkja hverjir eru á henni,“ segir Friðrik. Þeir sem kunna ekki á þetta segir Friðrik ættu að leita aðstoðar. „Ég hef fundið fyrir viðbrögðum við þessari hvatningu minni og það er jákvætt. Betur má hins vegar ef duga skal. Áhugi á ættfræði kvikn- ar vanalega í kringum fimmtugt en fólk yngra en það getur aðstoðað með tæknikunnáttu sinni,“ segir Friðrik. „Ég hef heyrt af því að fólk sé að finna gamlar ljósmyndir þegar það erfir myndaalbúm og þar séu myndir af fólki sem það hefur ekki hugmynd um hvert er. Mér áskotnaðist til að mynda ljós- mynd af langafa eiginkonu minnar á bryggjunni við Eyrarbakka og hún var ekki merkt á neinn hátt. Af þeim sökum hef ég ekki hug- mynd um hverjir eru með honum á myndinni sem er bagalegt,“ segir ættfræðigrúskarinn. Íslendingabók er vel lesin. „Á venjulegum degi eru um það bil fimm hundruð að skoða vefinn á hverjum tíma og nokkur þúsund á hverjum degi. Svo finnum við fyrir því þegar fólk er í kastljósi fjölmiðla út af einhverju að f lett- ingar aukast á þeim einstaklingi,“ rekur Friðrik. Einnig segir Friðrik aukningu í kringum ættarmót á sumrin og fyrir jól þegar fólk sé að skrifa jóla- kortin. Þá er fólk að af la sér réttra upplýsinga til að setja í kortin. „Þessa stundina er ég að verja frítíma mínum í að uppfæra hliðar- skrár Íslendingabókar með því að bæta við upplýsingum úr bænda- tölum frá 18. öld,“ segir Friðrik spurður hvað hann sé sýsla. hjorvaro@frettabladid.is Vantar gamlar myndir fyrir Íslendingabók Ættfræðiáhugamaðurinn Friðrik Skúlason hvetur fólk til þess að setja myndir af formæðrum, forfeðrum og ættingjum sínum inn á Íslendingabók. Sérlega af fólki sem fætt er fyrir 1900. Mikilvæg menningarverðmæti gætu ella glatast. Þessa stundina er ég að verja frítíma mínum í að uppfæra hliðar- skrár Íslendingabókar með því að bæta við upplýsing- um úr bænda- tölum frá 18. öld. Friðrik Skúlason, áhugamaður um ættfræði Mynd af bekkjarfélögum í MA árið 1931 er á vefnum með nöfnum nemenda merktum inn á. Á myndina vantar meðal annarra þá Sigurbjörn Einarsson biskup og dr. Benjamín J. Eiríksson hagfræðing. MYND/ÁGÚST ÞORGEIRSSON ALÞINGI Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, segir að gott sé að sjá hvað mikil samstaða sé komin á Alþingi um afglæpavæðingu fíkniefnaneyslu. Miklar umræður áttu sér stað á þinginu í gær vegna frumvarps heilbrigðisráðherra um afglæpavæðingu neysluskammta. „Þetta var róttæk hugmynd 2013, þótti jafnvel galin og stórhættu- leg, en í gegnum árin hefur mikil umræða og heiðarleg sannleiksleit annarra flokka gert það að verkum að þetta er í sjálfu sér ekki mjög umdeilt mál lengur,“ segir Helgi í samtali við Fréttablaðið. „Fólk áttar sig nú á því að það er ekkert vit í því að refsa fíkniefnaneytendum og það er mikið af gögnum því til stuðnings. Þetta er góður dagur fyrir Ísland og okkur öll.“ Helgi segir þó að málflutningur þingmanna Miðflokksins hafi eilítið skyggt á áfangann. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Mið- f lokksins, lýsti mikilli furðu yfir frumvarpinu sem gæti haft áhrif á þann mikla fælingarmátt sem hann telur felast í refsilöggjöfinni. „Ég hef aldrei séð eiturlyf, herra for- seti, eða þeirra neytt vegna þess að þau hafa verið ólögleg og menn hafa ekki verið að flíka þeim,“ sagði Sig- mundur á þinginu í gær. „Rökstuðningur þeirra er svo af leitur að ég einfaldlega trúi því ekki að þeim sé alvara í öllum til- fellum,“ segir Helgi. „Málf lutning- ur þeirra virðist einkennast af því að þeir reyni hvað harðast að vera á móti málum sem koma úr öðrum áttum en sínum eigin.“ – atv / sjá síðu 4 Fagnar samstöðu innan Alþingis Fólk áttar sig nú á því að það er ekkert vit í því að refsa fíkniefna- neytendum og það er mikið af gögnum því til stuðnings. Þetta er góður dagur fyrir Ísland og okkur öll. Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata Ég hef aldrei séð eiturlyf, herra forseti, eða þeirra neytt vegna þess að þau hafa verið ólögleg og menn hafa ekki verið að flíka þeim. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Mið- flokksins DÓMSMÁL Hálffimmtugur maður var í gær dæmdur í níu mánaða fang- elsi fyrir að skjóta úr skammbyssu út um glugga að tveimur mönnum við heimili hans í Reykjavík í mars 2019. „Kvaðst hann hafa miðað að vegg neðan við húsið, neitaði alfarið að hafa miðað vopninu að mönnunum og kvaðst alls ekki hafa ætlað sér að valda neinum skaða. Hann hefði ein- ungis ætlað að fæla þá í burt,“ segir í dómnum um vitnisburð mannsins. Maðurinn hefur frá 1994 átta sinnum brotið refsilög að því er segir í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. „Það sem hér skiptir einkum máli er að ákærði var með dómi Hæsta- réttar 3. nóvember 2011 dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir ólög- mæta nauð- ung, hótanir og tilraun til fjárkúg- unar,“ segir í dómnum. – gar Fangelsisdómur fyrir byssuskot Skammbyssa af Rugergerð. 1 3 . A P R Í L 2 0 2 1 Þ R I Ð J U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.