Fréttablaðið - 13.04.2021, Síða 16

Fréttablaðið - 13.04.2021, Síða 16
Nýr GR86 verður 35 hestöflum afl- meiri en GT86 og er 1,1 sekúndu fljótari í hundraðið. Minnkandi sala fjölskyldubíla af stærri gerðinni kemur til vegna ásóknar kaup- endahópa í flokk jepplinga. GMC hefur sent frá sér meiri upplýsingar um Hummer-raf- jeppann sem væntanlegur er á markað árið 2024. Áætlað er að forsala á honum í Norður-Amer- íku hefjist seinna á þessu ári. Rafjeppinn verður í grunninn mjög svipaður pallbílnum en er byggður á styttri útgáfu undir- vagnsins sem notar rafhlöðuna sem burðarbita. Bíllinn er 508 mm styttri en pallbíllinn og þar af leiðandi er hjólhafið 220 mm styttra. Fyrir vikið verður jeppinn betri í akstri og viðráðanlegri í torfærum að sögn GMC. Að- og frá- fallshorn hans er líka betra eða 49 gráður og undirvagnshorn hans er 34,4 gráður svo að hann mun geta ráðið við ansi gróft undirlag. Sami tæknibúnaður verður í Hummer- jeppanum og verða 22 tommu felgur staðalbúnaður eins og í pallbílnum. Loftpúðafjöðrun mun geta lyft bílnum um allt að 152 mm og staðalbúnaður verður fjórhjóla- stýring og Crabwalk-skriðgír sem leyfir bílnum að skríða til hliðanna eins og krabbi. Þar sem jeppinn er aðeins minni en pallbíllinn mun hann nota aðeins aflminni rafmótora svo að heildarafköst verða 819 hestöfl í stað 1.000. Togið verður þó það sama og í pallbílnum svo að upptakið verður allgott eða 3,5 sekúndur í hundraðið. Rafhlaðan verður einu númeri minni svo að drægið minnkar um 80 km og verður 480 kílómetrar. Hann mun nota sama 800 volta rafkerfi og því geta hlaðið 160 km af drægi á 10 mínútum. Ekki er talið líklegt að hann verði boðinn í Evrópu, alla- vega til að byrja með. GMC með meiri tækniupplýsingar um Hummer- rafjeppann Ein af kynningarmyndum Hummer-rafjeppans sýnir hann í mjög svo ís- lensku landslagi en torfærugeta hans verður umtalsverð. Toyota hefur kynnt til sögunnar arftaka GT86 og heitir hann einfaldlega GR86 í takt við GR- sportlínu merkisins. Aðalfrétt- irnar eru þó þær að bíllinn verður boðinn í Evrópu í kringum næstu áramót ólíkt systurbílnum Subaru BRZ. Bílarnir nota báðir sama undirvagn og vél, sem er 2,4 lítra boxervél. Toyota hefur gefið út tækniupp- lýsingar fyrir bílinn sem verður á Japansmarkaði en hann verður 232 hestöfl og mun skila 250 Nm togi. Það er 35 hestöflum meira en GT86 skilaði enda er GR86 mun fljótari af stað. Hann verður 1,1 sekúndu fljótari í hundraðið sem hann nær á 6,3 sekúndum. Hvort þær tölur verði þær sömu fyrir Evrópu á þó eftir að koma í ljós. Vélin verður með sex gíra beinskiptingu og sex þrepa sjálfskiptingu sem auka- búnaði. Toyota hefur gert það mögu- legt að framleiða GR-línu aflmeiri bíla á meðan aðrir framleiðendur hafa dregið úr slíku. Ástæðan er einfaldlega sú að Toyota hefur staðið sig vel í að halda sig innan mengunarmarka Evrópusam- bandsins með háu hlutfalli tvinn- bíla. Von er á meiru frá Toyota því nú berast fréttir af því að von sé á nýrri skammstöfun frá merkinu. BZ verður heitið á 100% rafbílum Toyota og er fyrsta bílsins að vænta á árinu sem verður jepplingur í svipaðri stærð og RAV4. Toyota GR86 kemur til Evrópu Toyota GR86 er væntanlegur í sýningarsali um næstu áramót. Ford-bílaframleiðandinn hefur ákveðið að hætta framleiðslu á Mondeo-fjölskyldubílnum. Hann hefur verið í framleiðslu síðan 1993 og unnið til ótal verðlauna en allt hefur sinn vitjunartíma. Ástæðan er einfaldlega sú að þeir sem keyptu fjölskyldubíla af stærri gerðinni eins og fjölskyldur og þeir sem kaupa fyrirtækisbíla, hafa flutt sig yfir í jepplingaflokk. Þeir sem keyptu áður Mondeo kaupa nú Ford Kuga. Það er þó ekki eina ástæðan því að það hentar líka hagsmunum bílaframleiðenda þar sem jepplingar bjóða upp á meira rými fyrir sífellt fyrirferðarmeiri rafhlöður. Hætt er við að á næstu misserum munu fleiri bílar í þessum stærðar- flokki fylgja í kjölfarið og við höfum líka séð bíla eins og Honda Accord hverfa af sjónarsviðinu. Við erum þegar farin að sjá þess merki hér á Íslandi þar sem umboðin eru einfaldlega hætt að bjóða bíla eins og BMW 3-línu, Mercedes-Benz C- línu, Audi A4 og Renault Talisman svo eitthvað sé nefnt. Kostir jepplingaflokksins eru margir í augum Íslendinga, og þeir hafa meiri veghæð sem gerir þá betri í snjó og þægilegri í umgengni. Sumir eiga þó eflaust eftir að sakna þeirrar aksturs- ánægju sem kraftmikill og vel hannaður fjölskyldubíll veitti, en allt er breytingum háð. Hvað ætli verði svo til að velta jepplingnum úr sessi? Ford kveður Mondeo-fjölskyldubílinn Ford Mondeo fjölskyldubíllinn hefur nú verið við lýði í næstum þrjá áratugi en verður ekki framleiddur frá og með næsta ári. Mercedes-Benz mun frumsýna næstu S-línu á fimmtudaginn og hefur þegar látið frá sér tækniupplýsingar um bílinn sem setja mun ný viðmið í heimi raf- drifinna fólksbíla. njall@frettabladid.is Ný S-lína mun koma á nýjum undirvagni sem kallast EVA og strax frá frumsýningu kemur hann í tveimur útfærslum. Grunngerðin mun kallast EQS 450+ og verður með einum rafmótor á afturdrifi sem skilar 329 hestöflum og 568 Nm togi. EQS 580 4MATIC bætir rafmótor á framöxul og fer þá hestaflatalan í 516 og togið í 855 Nm. Báðir bílar verða með tak- markaðan hámarkshraða við 210 km á klst. Tvær rafhlöður verða í boði, sú minni 90 kWst og sú stærri hvorki meira né minna en 107,8 kWst sem dugar honum fyrir 770 km drægi. Ekki hafa verið gefnar upp tækniupplýsingar fyrir aðrar gerðir. Bíllinn er búinn 400 volta rafkerfi sem við 200 kW hleðslu- stöð hleður bílinn í 300 km drægi á aðeins 15 mínútum. Að sögn hönnuða Mercedes næst gott drægi ekki síst fyrir þá staðreynd að bíllinn klýfur loftið vel. Hann er með litla loftmótstöðu og margt í ytri hönnun hans gert til að minnka hana enn frekar. Undirvagninn er rennisléttur, fremsti hluti bílsins er lækkaður mikið og loftinntök lokast þegar þau eru ekki í notkun. Fyrir vikið er loftmótstaðan aðeins 0,20 Cd sem er það minnsta sem í boði er á framleiðslubíl. Eins og fram hefur komið er innanrýmið hönnunar- stúdía út af fyrir sig og er sam- byggður háskerpuskjárinn í mæla- borði bílsins alls 55,5 tommur á breidd. Hann liggur í boga allt yfir til farþegans við hlið bílstjórans sem hefur sinn eigin skjá til að horfa á. Að sögn Jónas Kára Eiríks- sonar hjá Öskju er S-lína væntan- leg hingað til lands síðsumars. Ný Mercedes-Benz S-lína setur ný viðmið með 770 kílómetra drægi Mercedes hefur forsýnt myndir af nýrri S-línu í léttu dulargervi en bíllinn verður frumsýndur á fimmtudaginn. Háskerpuskjárinn í mælaborðinu er alls 55,5 tommur á breidd. 2 kynningarblað 13. apríl 2021 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.