Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.04.2021, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 13.04.2021, Qupperneq 18
Þrátt fyrir að Tesla hafi sótt um leyfi fyrir verksmiðjunni fyrir 16 mánuðum er ekkert svar komið ennþá“ Á 12 volta rafhlaða bílsins það á hættu að tæmast á meðan að bíllinn er hlaðinn. Aflvélar ehf. • Vesturhrauni 3 • 210 Garðabær Sími: 480 0000 • www.aflvelar.is • sala@aflvelar.is Demparar fyr i r þá kröfuhörðu! Demparar á lager í margar gerði r ökutækja m.a. Fólksbí la - Jeppa - Vörubí la - F lutningabí la - Rútur C5 X-blendingsbíllinn er nýtt flaggskip franska merkisins og verður boðinn bæði sem tengil- tvinnbíll og með bensínvélum þegar hann kemur á markað á næsta ári. njall@frettabladid.is Segja má að C5 X sé tilraun Citroen til að blanda saman skutbíl og jepplingi í lúxusútgáfu. Upphaf- lega var C5 stór fjölskyldubíll og við höfum líka séð C5 Aircross, en C5 X er einmitt byggður á sama EMP2-undirvagni og hann. Bíllinn er 4.805 mm að lengd svo að hann er aðeins lengri en Peugeot 508 SW til að mynda. Lögð er áhersla á gott rými í farþegarými og bíllinn mun geta tekið 545 lítra í farangurs- rými. Lögð er áhersla á þægindi með sérhönnuðum sætum og nýrri fjöðrun sem kallast Active Com- fort og er fyrst kynnt í þessum bíl. Bíllinn verður búinn 12 tommu upplýsingaskjá sem er ný hönnun frá Citroen og uppfærist þráðlaust. Sami tengiltvinnbúnaður og í C5 Aircross verður í bílnum, en sá er 222 hestöfl og með rafhlöðu sem kemur honum 50 km á hleðslunni. Von er á útgáfu með stærri raf- hlöðu á seinni stigum. Bíllinn kemur í sölu í Frakklandi í lok árs og því er hans ekki að vænta hingað til lands fyrr en einhvern tímann á næsta ári. Citroen C5 X frumsýndur Snertiskjárinn í bílnum er nýr 12 tommu skjár og útlitið líkist einna helst C4-e. Citroen C5 X er tilraun merkisins til að blanda saman útliti langbaks og jepplings. Toyota mun frumsýna nýjan rafbíl á Bílasýningunni í Sjanghæ þann 19. apríl næstkomandi og hefur af því tilefni birt mynd af framenda bílsins í myrkvuðum bílskúr. Að sögn Toyota er rafbíllinn jeppling- ur sem er sérhannaður að þörfum evrópska markaðsins, en hann verður smíðaður í kolefnishlut- lausri verksmiðju Toyota í Japan. Eins og sjá má af myndinni er nýtt útlit á ferðinni enda um fyrsta alvöru rafbíl merkisins að ræða. Bíllinn er sá fyrsti af sex sem nota munu e-TNGA-rafbílaundirvagn- inn sem hannaður var í samstarfi við Subaru. Næstu bílar verða meðal annars minni rafjepplingur sem hannaður er í samstarfi við Suzuki, stærri jepplingur, stall- bakur og fjölnotabíll svo eitthvað sé nefnt. Toyota frumsýnir rafbíl í næstu viku Það eru fleiri framleiðendur raf- bíla en Volkswagen að lenda í vandræðum með hugbúnað bíla sinna. Fyrstu notendur Mustang Mach-E hafa lent í vandamáli sem felst í því að bílarnir fara ekki í gang eftir hleðslu. Kemur þetta fram í sameiginlegri tilkynningu frá Ford og NHTSA-öryggismála- stofnuninni í Bandaríkjunum. Segir Ford meðal annars í til- kynningunni að hugbúnaðarvilla valdi því að 12 volta rafhlaða bílsins eigi það á hættu að tæmast á meðan stóra rafhlaðan er hlaðin. Það var The Verge sem sagði fyrst frá vandamálinu síðastliðinn þriðjudag, en Ford segir að aðeins lítill hluti bíla framleiddra fyrir 3. febrúar hafi lent í þessu vanda- máli. Munu umboðsaðilar uppfæra hugbúnað bílanna eigendum þeirra að kostnaðarlausu. Ford hefur alls framleitt 6.614 Mustang Mach-E á fyrsta fjórðungi ársins. Hugbúnaðarvilla í Mustang Mach-E Skrifræðið í Þýskalandi er greini- lega farið að fara í taugarnar á bíla- framleiðandanum Tesla ef marka má fréttir í Frankfurt Allgemeine Zeitung. Tímaritið flutti fréttir af því að Tesla hefði sent bréf til þýskra stjórnvalda fyrr í mánuð- inum. Þar kom meðal annars fram að framleiðandanum þætti sérstaklega pirrandi að ekkert svar væri komið við því hvenær áætluð verksmiðja Tesla í nágrenni Berlínar yrði samþykkt. Liðnir eru 16 mánuðir síðan Tesla sótti um leyfi fyrir verksmiðjunni svo að pirringurinn er skiljanlegur. Náttúruverndarsinnar hafa lagt stein í götu Tesla með því að stöðva frekara skógarhögg á verksmiðju- svæðinu, þar sem það gæti sett snáka í vetrarhíði í hættu. Tafir á verksmiðjunni hafa seinkað fram- leiðsluáætlunum fyrir Tesla Model Y, en áætlað er að verksmiðjan í Berlín geti framleitt 500.000 slíka bíla árlega þegar hún er komin í fulla virkni. Hérlendis er Tesla Model Y ekki einu sinni kominn á það stig að hægt sé að panta bílinn. Tesla gagnrýnir þýsk stjórnvöld Tafir á byggingu verksmiðju Tesla í Berlín hafa seinkað framleiðsluáætl- unum Model Y-rafjepplingsins. MYND/REUTERS Aðeins hluti bíla framleiddir fyrir 3. febrúar eru með hugbúnaðarvilluna. Nýr rafjepplingur frá Toyota mun verða í svipaðri stærð og RAV4. 4 kynningarblað 13. apríl 2021 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.