Fréttablaðið - 13.04.2021, Síða 20
Hestöfl: 190
Tog: 375 Nm
Eyðsla: 17,5 kWst/100 km
Rafhlaða: 66,5 kWst
Drægi: 426 km
Hröðun: 0-100 km: 8,5 sek.
L/B/H: 4.463/1.834/2.020 mm
Hjólhaf: 2.729 mm
Eigin þyngd: 2.040 kg
Farangursrými: 340 lítrar
Dráttargeta: 750 kg
Grunnverð: 6.790.000 kr.
Mercedes-Benz EQA
KOSTIR
n Hljóðlátur
n Liggur vel
GALLAR
n Fótapláss í aftirsætum
n Farangursrými
Njáll
Gunnlaugsson
njall
@frettabladid.is
Reynsluakstur
Mercedes hefur frumsýnt EQA-
rafjepplinginn meðframdrifi og
skilar sú útgáfa 190 hestöflum.
Von er svo á fjórhjóladrifinni
útgáfu áður en langt um líður
sem hefur allt að 515 km drægi.
Askja frumsýndi í síðasta mánuði
Mercedes-Benz EQA-rafjepp-
linginn en fyrsta útgáfa bílsins
hérlendis er GLA 250. Talan 250
er tilvísun í það að bíllinn er álíka
kraftmikill og 250 bensínútgáfa
GLA, sem EQA byggir á. Raf-
mótorinn er 190 hestöfl og drífur
áfram framhjólin. Rafhlaðan er
66,5 kWst og gefur bílnum allt
að 426 km drægi með 18 tommu
felgustærð.
Vantar upp á fótarými
Að innan er EQA eins og aðrir
nýir Benz-bílar með fráganginn
í fyrirrúmi og gott efnisval í inn-
réttingu. Takkarnir eru færri með
nýja MBUX-kerfinu og er það vel,
sem og sú staðreynd að skjárinn er
af stærri gerðinni. Þegar kemur að
plássi í bílnum er það nokkuð gott
að f lestu leyti, alla vega er gott
pláss í framsætum og höfuðrými
er nokkuð gott líka.
Helsti ókostur bílsins er þó
sú staðreynd af rafhlaðan tekur
pláss frá fótarými í aftursætum
og einnig farangursrými. Þegar
fullorðinn situr í aftursæti finnst
vel hversu hátt hnén eru sem
þýðir meira álag á sitjandann sem
eflaust er óþægilegt á langferðum.
Rafhlaðan tekur líka sitt pláss frá
farangursrýminu og er gólfið þar
í hærri kantinum. Aðeins er rými
fyrir 340 lítra af farangri undir
hillunni sem er satt best að segja
of lítið.
Hljóðlátur og mjúkur í akstri
Bíllinn er ljúfur í akstri og bæði
inngjöf og stýri gefa góða til-
finningu fyrir akstrinum. Hann
virkar ekki eins þungur í akstri
eins og margir rafjepplingar af
þessari stærð og hagar sér vel á
reykvískum hraðahindrunum,
þökk sér fjölliða fjöðrun að aftan.
Fyrir vikið er hann líka stöðugur
í akstri þegar kemur að því að
leggja hann í beygjur og þar er það
ekki bara vel útfærð skrikvörn
sem er að hjálpa honum.
Hann er líka einstaklega
hljóðlátur, jafnvel fyrir raf bíl, og
hljóðið sem varar fótgangandi við
honum á lægri hraða heyrist varla
inni í bílnum. Upptakið er viðun-
andi í þessari útfærslu en ekkert
meira en það, en bíllinn er 8,9
sekúndur í hundraðið. Hámarks-
hraði er takmarkaður við 160 km
Fullkominn að flestu leyti
EQA 250 er góður akstursbíll en mætti vera aflmeiri en það er stutt í fjórhjóladrifsútgáfuna. MYNDIR/TRYGGVI ÞORMÓÐSSON
Rafmótorinn er við framhjólin og hjálpar það til við aksturseiginleikana.
6 kynningarblað 13. apríl 2021 ÞRIÐJUDAGUR