Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.04.2021, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 13.04.2021, Qupperneq 30
MG-rafbílamerkið hefur frum- sýnt marga rafbíla að undan- förnu og sá nýjasti er tilraunaút- gáfa MG-sportbíls sem sækir í arfleifð hins opna, tveggja sæta bíls sem merkið var frægt fyrir. njall@frettabladid.is Bíllinn kallast MG Cyberster og er í raun og veru önnur útgáfa slíks bíls frá merkinu. Fyrri bíllinn var E-Motion Coupe tilraunabíllinn sem MG frumsýndi árið 2017. Cyberster verður frumsýndur á bílasýningunni í Sjanghæ í næsta mánuði sem allar líkur benda til að verði nú að veruleika. Að sögn MG er bíllinn tilraun merkisins til að sjá hvernig sportbíll fram- tíðarinnar muni líta út og þykir sú yfirlýsing benda sterklega til þess að hann fari í framleiðslu. Bíllinn er auðsjáanlega til- raunabíll eins og sést til dæmis á ljósabúnaði hans, en díóðuljósa- línur eru áberandi í hönnuninni. Um nokkurs konar Speedster er að ræða þar sem ekkert þak er á til- raunabílnum. Afturendinn er eins og skorinn af og endar í oddi sem að MG segir að bæti til muna loft- flæði bílsins, eitthvað sem skiptir miklu máli í rafbílum. Innanrými bílsins er enn framúrstefnulegra en ytra útlit hans, en því er skipt í tvennt af stórum miðjustokki sem meðal annars inniheldur mjóan upplýsingaskjá. Stýrishjólið minnir meira á stjórntæki leikja- tölvu en bíl og mælaborðið virðist vera í þrívídd. MG hefur látið frá sér eitthvað af tækniupplýsingum eins og að bíll- inn hafi 800 km drægi og að hann verði undir þremur sekúndum í hundraðið. Gaman verður því að sjá hvort bíllinn fari í framleiðslu. Fyrstu myndir af MG-sportbílnum Fjórða kynslóð Mini-smábílsins er væntanleg 2023 en nýlega náðust njósnamyndir af bílnum við prófanir í snjó. Þegar nýr Mini kemur á markað mun hann líkt og Peugeot 208 verða boðinn með annað hvort bensínvél eða rafmótor. Það er þó ekki það eina því að von er á bílnum í þriggja dyra útgáfu aftur. Raf bílaútgáfan verður smíðuð í Kína á nýjum undirvagni sem er í þróun hjá BMW og Great Wall-bílaframleiðandanum. Bensínútgáfan verður eins í öllum málum en byggð á undirvagni frá BMW og sett saman í verksmiðju merkisins í Oxford. Eins og sjá má á myndinni er þriggja dyra útgáfan nógu lítil til að geta keppt við smábíl eins og Fiat 500. Þó að bíllinn virðist vera nokkuð tilbúinn að sjá er dulbúningurinn góður og hlutir eins og ljós og loftinntök í raun og veru sett utan á dulbúninginn til að villa um fyrir þeim sem horfir. Auk þess vantar sílsana á bílinn og rétt útlit grillsins. Þrátt fyrir það sést að axlarlínan er hærri en áður Njósnamyndir af nýjum Mini Munro Mark 1 er fyrsta afurð All Terrain All Electric (ATAE) fyrir- tækisins sem áætlar að koma þessum bíl á markað áður en langt um líður. Hugmyndin er að fylla upp í það gat sem gamli Land Rover Defen- der-jeppinn skildi eftir sig. Það er auðsjáanlegt þegar horft er á kloss- að útlit Munro-jeppans. Bíllinn er byggður á einfaldri stigagrind og eru fram- og afturöxlar hans sjálfstæðir. Fjórhjóladrifið er alltaf til staðar gegnum 212 hestafla raf- mótor og rafhlaðan er 52 kWst sem gefur honum drægi upp á 240 km. Að sögn ATAE er drægið þó meira við akstur í lágum gír, en bíllinn er búinn tveimur gangstigum og læsingum á mismunadrifi. Hönnuðir ATAE fóru þá leið að nota fjöðrun og bremsukerfi frá íhlutaframleiðendum frekar en að hanna sinn eigin búnað. Sama má segja um yfirbyggingu sem er smíðuð hjá Ibex Automotive í Yorkshire. Að sögn þeirra vinnst margt með því, eins og að auðveld- ara verður að nálgast varahluti. Auk þess verður kolefnisfótspor bílsins minna fyrir vikið sem farið er að skipta máli hjá framleið- endum rafbíla. Að innan verður einfaldleikinn allsráðandi en hægt verður að fá upplýsingaskjá sem aukabúnað. Burðargetan verður eitt tonn og farangursrými tekur 1.250 lítra. Frumgerð verður tilbúin seinna á árinu sem fer þá í árs prófun, svo að búast má við bílnum í sölu árið 2022. Rafbúið torfærutröll frá Skotlandi Útlit bílsins er enn þá útlit tilraunabíls með áberandi ljósabúnaði og ýktum línum. Margt er gert til að leyna nýju útliti, til dæmis með ljósum af eldri gerðum. og gluggarnir mjórri sem gefur til kynna bíl með lága loftmótstöðu. Hjólin eru líka utar sem þýðir að hjólhafið verður jafnvel það sama og áður. Að innan verður mælaborðið í bogadregnum skjá fyrir ofan stýrið. Líkindi Munro Mark 1 og fyrri kynslóðar Land Rover Defender eru augljós. DRÁTTARBEISLI Hágæða beisli, föst eða losanleg, fyrir flestar gerðir fólksbíla og jeppa. Upplýsingar um verð og afgreiðslutíma hjá Bílanaust. www.bilanaust.is STÓRVERSLUN DVERGSHÖFÐA 2 Dalshrauni 17 220 Hafnarfirði 110 Reykjavík S. 535 9000 S. 555 4800 Vatnagörðum 12 104 Reykjavík S. 535 9000 Furuvöllum 15 600 Akureyri Hafnargötu 52 260 Reykjanesbæ Hrísmýri 7 800 Selfossi Sólvangi 5 700 Egilsstöðum S. 421 7510 S. 482 4200 S. 535 9085 S. 471 1244 8 kynningarblað 13. apríl 2021 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.