Fréttablaðið - 13.04.2021, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 13.04.2021, Blaðsíða 44
TILGANGURINN MEÐ ÞESSU ÖLLU SAMAN ER AÐ FRÆÐA FÓLK HÉR HEIMA MEÐ ÁHERSLU Á AÐ HRÆÐAST ÞAÐ EKKI AÐ TAKA AF SKARIÐ OG ELTA DRAUMA SÍNA Í ÖÐRU LANDI. AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid. is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is + + + = 19.990 kr. A L LT ÓTA K M A R K A Ð Fjölskyldupakkinn: Vinkonu r nar Edda Þórunn Þórarins-dóttir og Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir eru á þriðja ári í læknis-fræði í Martin í Sló- vakíu. Þar sem þær hafa verið fastar á Klakanum í fjarnámi undanfarið ár vegna heimsfaraldursins sættu þær færis og byrjuðu með hlað- varpið Læknaspjallið sem segja má að sé beintengt Instagram-síðunni Íslenskir læknanemar sem Edda Þórunn byrjaði með fyrir tveimur árum. „Ég stofnaði Instagramið upp- runalega til þess að fræða fólk hér heima, sem hefði áhuga á læknis- fræði, um ótal valmöguleika um nám annars staðar í heiminum,“ segir Edda Þórunn. Þegar Edda Þórunn hóf námið í Slóvakíu áttaði hún sig á því hversu lítið hún vissi í raun um læknanám þar í landi eða annars staðar í ver- öldinni. „Ég hugsaði með mér að það væru örugglega margir í sömu stöðu og væru hræddir við að taka af skarið. Þess vegna stofnaði ég Instagramið, til þess að reyna að fræða krakka sem hafa áhuga á læknisfræði og bara fólk sem hefur áhuga á læknisfræði almennt.“ Mannlegi þátturinn Edda Þórunn segir Instagramið heldur betur hafa slegið í gegn á þessum tveimur árum en fylgjend- urnir eru um 5.600 og fer stöðugt fjölgandi. Hún segir að góðar undir- tektirnar hafi orðið til þess að hún ákvað að taka hugmyndina skrefinu lengra og fá sérfræðinga, kandídata og sérnámslækna til þess að fóstra síðuna af og til, tvo daga í senn, og kynna sjálfa sig, sérsvið sín og nám. „Tilgangurinn með þessu öllu saman er að fræða fólk hér heima með áherslu á að hræðast það ekki að taka af skarið og elta drauma sína í öðru landi,“ segir Edda Þórunn og bendir á að Instagramið sé einnig hugsað til þess að sýna almenningi „mannlegu hliðina“ á sérfræðingum með því að veita innsýn í líf þeirra og þau ótalmörgu svið sem læknis- fræðin hefur upp á að bjóða. Hlaðvarpið slær í gegn Vinsældir Íslenskra læknanema urðu til þess að Eddu Þórunni datt í hug að byrja með hlaðvarpsþætti í tengslum við síðuna og fékk Ólöfu Kristínu Þorsteinsdóttur, vinkonu sína og skólasystur, til liðs við sig. „Hún var til í að vera með mér í þessu og við ákváðum að henda í þetta saman,“ segir Edda Þórunn. „Þetta var þá búið að krauma í hausnum á mér en það var einhvern veginn aldrei góður tími til þess að byrja vegna þess að við vorum alltaf úti.“ Vinkonurnar ákváðu síðan loks að sæta færis þar sem þær hafa verið Úr líkskurði í Slóvakíu í læknahlaðvarp Læknaneminn Edda Þórunn er á þriðja ári í Slóvakíu. Á Instagram-síðunni Íslenskir læknanemar og í hlaðvarpinu Lækna- spjallið boðar hún, ásamt skólasystur sinni Ólöfu Kristínu, fagnaðarerindið um að láta læknisdrauminn rætast erlendis. Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir og Edda Þórunn Þórarinsdóttir hafa notað tímann í fjarnáminu hérna heima til þess að ýta hlaðvarpinu Læknaspjallinu í gang. Þegar náminu úti lýkur horfir Ólöf til barnalækninga en ófrjósemis-, kvensjúkdóma- og fæðingarlækningar heilla Eddu helst. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK í fjarnámi frá Íslandi síðasta árið vegna heimsfaraldursins. „Hlað- varpið hefur heldur betur slegið í gegn og við höfum fengið frábærar undirtektir en tilgangurinn með því er einnig að fræða almenning um læknisfræðina almennt,“ segir Edda Þórunn um Læknaspjallið. „Þetta gengur rosalega vel. Þætt- irnir koma út aðra hverja viku vegna þess að við erum náttúrlega í fullu námi líka.“ Alma Möller landlæknir var gestur þeirra Ólafar Kristínar í fyrsta þætti en síðan þá hafa bæst við þættir með Snorra Einarssyni, ófrjósemislækni og yfirlækni Livio, og Elvari Úlfarssyni, heila-, tauga- og mænuskurðlækni. Beint í líkskurð „Þar sem það er svakalega erfitt að komast inn hér heima og margir reyna kannski þrisvar til fimm sinn- um áður en þeir komast inn fannst mér alger nauðsyn að efla fræðslu um nám erlendis,“ segir Edda Þór- unn um grunnhugsjónina að baki bæði Instagraminu og hlaðvarpinu. Edda Þórunn segir að þótt háskólabærinn Martin í Slóvakíu sé mjög lítill hafi þó myndast þar þétt samfélag íslenskra læknanema sem fari stöðugt stækkandi. „Við erum rosalega mörg. Samanlagt erum við örugglega um 200 og þetta er bara að aukast. Ég veit ekki hvort það er út af Instagraminu eða einhverju öðru,“ segir Edda Þórunn á léttu nótunum. Þrátt fyrir þennan mikla fjölda segir Edda Þórunn aðspurð að námið í Slóvakíu sé síður en svo auð- veldara en í Háskóla Íslands. „Nei, alls ekki. Námið úti er allt öðruvísi en heima upp á það að gera að hérna heima byrja þau ekkert í verklegu námi fyrr en eftir þriðja árið en við kryfjum lík á fyrsta ári og við erum alltaf í verklegum tímum. Á þriðja ári byrjum við í skurð- lækningum og ly f lækningum þannig að ef að við værum úti núna værum við uppi á spítala að tala við sjúklinga, hérna heima byrjarðu ekki á því fyrr en á fjórða ári.“ toti@frettabladid.is 1 3 . A P R Í L 2 0 2 1 Þ R I Ð J U D A G U R18 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.