Fréttablaðið - 13.04.2021, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 13.04.2021, Blaðsíða 46
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 550 5000 Hauks Arnar Birgissonar BAKÞANKAR Fyrir sléttu ári var fólk hvatt til þess að ferðast ekki um páskana, ekki einu sinni innanlands. Flestir hlýddu kallinu enda var veiran ný af nálinni og óvissan mikil. Enginn vildi stuðla að auknum smitum eða hætta á að smita þá sem viðkvæmastir voru. Á hverjum degi greindust tugir nýrra smita og alls voru þúsund Íslendingar með virk smit, margir hverjir í öndunarvélum. Sem betur fer hefur staðan gjörbreyst og í dag eru ný smit talin á fingrum annarrar handar. Enginn er á spít- ala. Enginn! Þannig hefur ástandið verið um nokkurra mánaða skeið og viðkvæmustu hóparnir hafa nú verið bólusettir. Af þessum sökum er fólk farið að leyfa sér aukið svigrúm í sínu daglega lífi, aukin lífsgæði. Ekki veitir af. Sumir heimsækja bústað- inn á meðan aðrir fara utan. Ferðalög til og frá Íslandi eru ekki ólögleg og Íslendingum er frjálst að ferðast. Á þessu ætti enginn vafi að leika. Engu að síður er það svo að þeir sem út fyrir landstein- ana fara, fara huldu höfði fyrir og eftir ferðalög sín af ótta við aftöku á samfélagsmiðlum. Ferðaskömm hefur gripið landann. Engu er líkara en að ferða- skrifstofur, sem freista okkar með gylltum sólarströndum og iðjagrænum golfvöllum, hafi tekið að sér hlutverk fíkniefna- sala á meðan neytendurnir ganga um Leifsstöð með bréfpoka yfir hausnum af ótta við að þekkjast. Fjölmiðlar taka svo þátt í vit- leysunni og f lytja fréttir af frægum sem sést hafa með ferðatösku á Suðurnesjum. Ferðalangar eru nafngreindir í fjölmiðlum eins og þeir hafi gerst sekir um lög- brot. Trítilóður múgurinn krefst skýringa á ferðalögunum – eins og honum komi þau eitthvað við. Ferðaskömm GERIÐ GÆÐA & VERÐSAMANBURÐ NÝ NÁTTÚRULEG HEILSUDÝNA Á KYNNINGARVERÐI MARGAR STÆRÐIR Í BOÐI MIÐGARÐUR KODDA OG LÍN SPREY MIKIÐ ÚRVAL AF GÓÐUM ILMVÖRUM UM FJÓRÐUNGUR LANDS- MANNA SEFUR Á DÝNU FRÁ SVEFN & HEILSU* *Samkvæmt könnun frá Gallup. Góð hvíld 10 0% SV EFN – 100% HEILSA 100% SVEFN – 100% HE IL SA EITT MESTA ÚRVAL LANDSINS AF HEILSUDÝNUM NÝTT Allt fyrir góðan svefn og betri heilsu LISTHÚSINU LAUGARDAL s. 581 2233 BALDURSNESI 6, AKUREYRI s. 461 1150 UMBOÐSAÐILAR Húsgagnaval, Höfn í Hornafirði og Bara snilld, Egilsstöðum | svefnogheilsa.isBALDURSNES 6 – AKUREYRI LISTHÚSIÐ – REYKJAVÍK LISTHÚSIÐ – REYKJAVÍK af lesendum dagblaða* á höfuðborgarsvæðinu á aldursbilinu 18–49 ára lesa Fréttablaðið daglega. Lesa bara FBL Lesa bæði FBL OG MBL Lesa bara MBL 62,6% 11,6% 25,8% 88,4% *Fréttablaðið og Morgunblaðið. Heimild : Prentmiðlamæling Gallup okt. - des 2020 MEST LESNA DAGBLAÐ LANDSINS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.