Börn og menning - 2016, Blaðsíða 4

Börn og menning - 2016, Blaðsíða 4
Fjögra ára telpa í leikskóla bað um að fá að hlusta á Pétur og úlfinn. Hún hlustaði á söguna og tónverk- ið með leikskólakennaranum sínum og nokkrum öðrum börnum á deildinni. Þau sátu saman á sögu- teppinu og á meðan á flutningnum stóð leyndi sér ekki að hún var spennt og svolítið hrædd. Hún dró að sér fæturna, vafði handleggjunum um þá og réri fram og aftur. Á eftir sagði hún svo við leikskóla- kennarann: „Mér finnst svo gaman að vera svona hrædd!“ Börn njóta þess að upplifa spennu og að verða hrædd í öruggum aðstæðum. Það er mikill munur á því eða þeirri hræðslu og angist sem skapast við raunverulegar aðstæður, til dæmis í slysum og náttúruhamförum, við ofbeldi eða í stríði. Sama á við um hræðslu sem full- orðnir framkölluðu hjá börnum fyrr á tíð með hótun- um um að tilteknar hræðsluvættir kæmu og tækju þau, misþyrmdu þeim og jafnvel ætu, ef þau hegðuðu sér ekki eins og fullorðna fólkið vildi. Hræðsluáróður í barnauppeldi Í bók sinni Íslenskt vættatal (2010) segir Árni Björnsson að vættir séu verur af yfirnáttúrulegum toga, óháðar mönnum, til dæmis tröll, álfar og sæbúar. Hann flokkar líka drauga með vættum, þótt hann bendi á að deila megi um hve yfirnáttúrulegir þeir séu (bls. 22). Sumar vættir voru hollvættir en aðrar voru hættulegar, það er meinvættir og óvinveittar mönnum og því rík ástæða til að óttast þær. Meinvættir gegndu í einhverjum mæli því hlutverki í uppeldi barna fyrr á tíð að hræða þau til hlýðni eða til þess að halda þeim frá hættulegum stöð- um í umhverfi heimilisins þar sem þau gátu farið sér að voða. Til að hræða börn til hlýðni voru mest not- aðar vættir af tröllakyni sem sagðar voru sólgnar í börn og átu þau eða misþyrmdu þeim. Þar má nefna Grýlu og Bola, Kuldabola og Ókindina. Þekkt efni í þessum flokki er mest vísur og kvæði. Eðli slíkra hræðsluvætta er takmarkalaus illska. Þær eru óhamdar, siðlausar og dýrslegar. Þær eru sagðar nema börn á brott og misþyrma þeim, jafnvel fyrir engar sakir eins og segir í kvæðinu um Ókindina sem er, fyrir utan Grýlu, ein voðalegasta íslenska barnafælan sem um getur: Ókindarkvæði Það var barn í dalnum, sem datt ofan í gat, en þar fyrir neðan Ókindin sat. En þar fyrir neðan sat Ókindin ljót. „Mér finnst svo gaman að vera svona hrædd!“ Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.