Börn og menning - 2016, Side 17

Börn og menning - 2016, Side 17
 17Hver er hræddur við drauga? Ekki hin fjögur fræknu! unum um þau. Um flokkinn gildir það sama og ýmsar framhaldssögur: með tíð og tíma verða þær endurtekn- ingasamar og mesta ást hefur lesandinn á þeim bókum sem hann las fyrst. Höfundar Hinna fjögurra fræknu voru Frakkinn Ge- orges Chaulet (1931-2012) og Belginn François Craen- hals (1926-2004). Í upphafi hafði Chaulet samið sex unglingabækur um hin fjögur fræknu sem út komu 1957–1962 en síðan hugkvæmdist honum að færa sig yfir í teiknimyndasagnaformið og hóf samstarf við Craenhals. Alls urðu teiknimyndasögurnar um hin fjögur fræknu (Les 4 As á frummálinu) fleiri en 40, frá 1964 til 2007. Craenhals vann samhliða þeim að öðr- um myndasögum sem hann samdi sjálfur og Chaulet hélt áfram að skrifa textabækur sem nutu ekki síðri vin- sælda í heimalandinu en Hin fjögur fræknu, þar á meðal mikinn sagnaflokk um Fantômette, alls 52 bækur, sem stundum er talin fyrsta kvenkyns ofurhetjan í frönskum bókmenntum. Hin fjögur fræknu eru fjögur ungmenni sem virð- ast lifa alveg óháð fullorðnum eða forráðamönnum. Þau eru fullkomnar staðalmyndir og var ætlað að gera grín að algengum manngerðum í afþreyingarbókum ætluðum unglingum á eftirstríðsárunum. Fremstur fer hetjan Lastik sem er dæmigerður franskur gaur (mec á frönsku), dökkur yfirlitum, íþróttamannslega vaxinn og grannur. Honum svipar svolítið til kvikmyndastjörn- unnar Alain Delon sem var mjög áberandi um það leyti sem hin fjögur fræknu urðu til í myndheimum. Aðeins ein stúlka er í hópnum, Dína, og er hún afar upptekin af útlitinu, fötum og öðrum „kvenleg- um áhugamálum“. Milli þeirra Lastiks er fremur væg kynferðisleg spenna sem iðulega kemur fram í kíti milli þeirra. Ef sögurnar væru ekki uppfullar af kímni og íróníu mætti velta fyrir sér hvers konar fyrirmynd Dína er en sannarlega skortir hana hvorki styrk né áræði á stundu neyðar. Með þeim eru svo Doktor eða Doksi, dæmigerður bókabéus, og Búffi eða Buffi, feitlaginn holdgerving- ur matgræðginnar sem lifir fyrir að borða. Doksi var líklega góð fyrirmynd fyrir börn sem lifðu fyrir bæk- ur. Hann er nokkuð kotroskinn, húmor hans stundum fullorðinslegur og skrítinn, og honum hættir til að setja á langar tölur sem hinir félagarnir leiða hjá sér. Ef Doksi er þannig eins konar fulltrúi súperegósins fær ídið útrás í Búffa (en nafn hans beygist raunar stundum eins og kaffi) sem iðulega gleymir sér á mikilvægum augnablik- um sakir átfíknar sinnar. Það hefur þau áhrif að hinir alvarlegu atburðir sögunnar verða hlægilegri og viðráð- anlegri úr því Búffi getur ekki tekið þá jafn alvarlega og næstu máltíð. Þau eru fullkomnar staðalmyndir og var ætlað að gera grín að algengum manngerðum í afþreyingarbókum ætluðum unglingum á eftirstríðsárunum.

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.