Börn og menning - 2016, Side 19
Hver er hræddur við drauga? Ekki hin fjögur fræknu! 19
Hin fjögur fræknu lifa í heimi sem sannarlega var ekki
gamaldags árið 1977 og þannig koma bílar og mynda-
vélar mjög við sögu í fyrstu bókinni. Þau eru nútíma-
leg ungmenni, fullkomlega sjálfstæð og búa þannig öll
saman í eigin húsi í sögubyrj-
un þar sem þau virðast leika
lausum hala án þess að gegna
neinum skyldum í skóla eða á
vinnumarkaðnum. Engar skýr-
ingar eru heldur veittar á því
í upphafi hvernig leiðir þeirra
hafa legið saman; hinir ungu
lesendur eru einfaldlega kynnt-
ir fyrir draumatilveru sem minnir ekki lítið á heim ung-
lingsins þar sem vinir og félagar eru aðalatriðið en best
að leiða fjölskyldu og fullorðna alveg hjá sér.
Sagan hefst þó á ákveðnu syndafalli og lokum hins
áhyggjulausa lífs. Vegna misheppnaðra vísindatilrauna
Lastiks og Doksa verður hús hinna fjögurra fræknu
fyrir skemmdum þannig að þau eru tilneydd að leita
út á vinnumarkaðinn til að afla fjár til viðgerða. Fyrsti
þátturinn í sögunni er síðan farsakennd atburðarás sem
af því leiðir þar sem þau ramba hvert fyrir sig á kol-
rangt starf: Lastik fer að vinna á safni, Búffi í tískubúð,
Dína við bensínafgreiðslu en Doksi í eldhúsi. Þeim
tekst hverju og einu að klúðra starfinu rækilega á drep-
fyndinn hátt og eru öll rekin úr vinnunni með skömm
en sem betur fer uppgötva þau í kjölfarið að martröð
eins getur verið draumur annars og þegar Doksi er
kominn á safnið, Lastik á bensínstöðina, Búffi í eldhús-
ið og Dína í tískuverslunina fara þau öll að blómstra.
Farsinn verður þannig ágæt kynning á persónunum þar
sem styrkur og veikleikar hverrar og einnar eru dregnar
rækilega fram.
Í kjölfarið hefst spennusagan sem er haganlega flétt-
uð saman við vinnu ungmennanna. Í kjólabúðinni
hittir Dína tvær aldraðar systur
sem búa í húsinu Blómavöll-
um og eiga við draugagang að
etja. Dína lofar þeim stuðn-
ingi hinna fjögurra fræknu
með orðunum: „Við erum
ekki hrædd við neitt“. Þetta
reynist ef til vill ofmælt en þó
ekki: það er lykilatriði í heimi
hinna fjögurra fræknu að þar er engin ástæða til ótta.
Hin fjögur fræknu munu ævinlega hafa betur í öllum
aðstæðum. En vegna þess að sagan er farsi komast þau
aldrei úr neinum leik án þess að detta eða blotna.
Þetta sama kvöld fara vinirnir og heimsækja systurnar
og þá nær spennan í sögunni hámarki, einkum í fyrstu
þegar ekkert hefur gerst annað en að þau bíða eftir
draugnum. Óttinn skín af þeim öllum á myndunum
en hetjan Lastik er þó tilbúinn með byssu að skjóta á
drauginn þegar hann birtist að lokum í dyragættinni.
Nú er ekki óalgengt að persónur í draugasögu hlaupi
frá draugum fremur en í átt til þeirra en öðru máli
gegnir um hinar nútímalegu söguhetjur okkar. Þau elta
drauginn en þessa nótt sleppur hann frá þeim á dular-
fullan hátt.
Þau gefast hins vegar ekki upp því að hin fjögur
fræknu eru full af vísindalegum eldmóði og sannfærð
um að þau geti leyst hvern vanda með réttu græjunum,
í þessu tilviki með gildru og myndavél. Þar sem þau
Sagan hefst þó á ákveðnu
syndafalli og lokum hins
áhyggjulausa lífs.