Börn og menning - 2016, Síða 23

Börn og menning - 2016, Síða 23
 23Hryllingur og húmor sín getur snúist upp í andhverfu sína og leitt til inn- ilokunar og einangrunar. Það er meira að segja kafli í Kvikmyndinni þar sem Zach heldur að Stine sé að beita dóttur sína ofbeldi, hann heyrir „[v]ein sem gaf til kynna að verið væri að myrða einhvern með risa- stórum hnífi“ en ennfremur er það vein sem „hljómaði eins og það kæmi frá Hönnu“. (K:26) Í framhaldinu heyrir hann gler brotna og viðarbresti áður en þögnin tekur við. Það er þó ekki unnið frekar úr þessum ógn- vekjandi möguleika því skrímslin sleppa úr prísundum sínum stuttu síðar og eltingaleikurinn við þau verður meginviðfangsefni sögunnar. Það má sjá greinilegan stöðumun í samskiptum barn- anna og hinna fullorðnu í Hrollsbókunum. Unga fólkið upplifir töfrana og hryllinginn en hinir fullorðnu trúa þeim ekki þegar þau segja frá, að Stine undanskildum. Í Sá hlær best - sem síðast hlær og Hefnd garðdverganna halda hinir fullorðnu að óþægindin sem hljótast af skrímslunum séu óþekkt og hrekkir af hendi barnanna, algerlega blind á hið yfirnáttúrulega. Þrátt fyrir að vera hrollvekjur einkennast Hrolls- bækurnar ekki síður af húmor og stríðni. Í Hefnd garð- dverganna eru söguhetjurnar systkinin Jói og Mindý og standa spjótin sérstaklega á föður þeirra þegar kemur að gríni og húmor. Faðirinn ræktar grænmeti í garði fjöl- skyldunnar og er í harðri samkeppni við nágrannann á því sviði. En „[p]abbi er jafn sjúkur í garðskraut og hann er í garðvinnu“ (HG:29) og af þeim sökum er garður fjölskyldunnar einkar skrautlegur. Í upphafi sögunnar fara systkinin með pabba sínum í uppáhalds verslunina hans, sem einungis selur garðskraut, til að finna félagsskap fyrir dádýrið Dálilju. Það fer hinsvegar verr en á horfist því í staðinn fyrir að kaupa annað dá- dýr fjárfestir pabbinn í tveimur garðdvergum sem fá nöfnin Kátur og Skari en þeir reynast ekki allir þar sem þeir eru séðir. Það er markvert að árásargirni barnanna í Hefnd garð- dverganna byrjar áður en dvergarnir hefja skemmdar- verk sín á grænmetisgörðum fjölskyldnanna tveggja og öðrum eignum þeirra. Það eru Jói og Mosi vinur hans sem leika sér að því að þykjast lúskra á garðdvergunum. Faðir Mosa líkist í flestu föður systkinanna enda keppa þeir hvor við annan í grænmetisræktuninni. Mindý tekur að sér hlutverk hinnar ábyrgu eldri systur, biður strákana að hætta fíflaganginum og passa sig að brjóta ekki dvergana. (HG:41) Í ljósi þess ástfósturs sem faðir- inn hefur á garðskrautinu er freistandi að líta á útrásina sem strákarnir fá á dvergunum sem útrás fyrir gremju gagnvart föðurímyndinni. Í Sá hlær best - sem síðast hlær eru aðalpersónurnar tví- burasysturnar Krista og Linda. Byggt er á togstreitunni í sambandi systkina sem er sérstaklega áberandi þegar kemur að tvíburum sem eiga svo margt sameiginlegt en eru þó ólíkar persónur. Þegar Linda eignast búk- talaradúkku verður Krista afbrýðisöm og Linda skip- ar henni á móti að finna sér annað áhugamál og leyfa henni að vera búktalari. (SHB:22) Á einum tímapunkti spyr Krista sjálfa sig: „Hvernig getur ein tvíburasyst- ir gert svona ótrúlega margt pirrandi.“ (SHB:39) Náin Í ljósi þess ástfósturs sem faðirinn hefur á garðskrautinu er freistandi að líta á útrásina sem strákarnir fá á dvergunum sem útrás fyrir gremju gagn- vart föðurímyndinni.

x

Börn og menning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.