Börn og menning - 2016, Qupperneq 27

Börn og menning - 2016, Qupperneq 27
 27Að henda reiður á heiminum eftir ítrekuð átök við óáreiðanlegt umhverfi stefna Pi- etro og félagar hans enn og aftur út í óvissuna í sögulok. Pietro reynir þó alltaf að kortleggja umhverfið, oft með ágætis árangri, og segja má að mikið af sögunni snúist um að rata einhverja leið. Það á augljóslega við um mörg af leynigöngunum en líka ýmislegt fleira. Framarlega í bókinni reynir Pietro t.d. að sleppa und- an mönnum sem sitja fyrir honum og tekst það með óvæntri leið sem liggur ekki um göturnar. Mennirnir halda að Pietro sé í sjálfheldu en hann sleppur eftir vegg sem reynist „samsíða stígnum og lá yfir að næsta garð- vegg og svo þarnæsta og þannig koll af kolli meðfram allri götunni og yfir í aðra garða í öðrum götum“. Annars konar leið sem reynist áhrifavaldur í sögunni snýst um sjúkdóma og smit. Í sögubyrjun er Pietro smitaður af plágunni sem hefur að líkindum tortímt nánustu fjölskyldu hans og fjölmörgum öðrum íbúum í staurahverfinu. Plágan er ástæðan fyrir því að borgarbú- ar brenna hverfið til grunna í byrjun sögunnar og Pietro lendir á flótta en flóttaleiðin verður jafnframt smitleið þar sem Pietro flytur pláguna inn í borgina. Meðvitaðri útgáfa af leiðarvali kemur til sögunnar þegar Pietro og félagar hans leggja af stað í háborgina því að þau hafa kort undir höndum þótt það gagnist ekki fyllilega. Ég er sérlega veik fyrir landakortum, jafnt í bókum sem annars staðar, og vildi óska að kortið fylgdi sögunni. Það hefði kórónað annars fallegan frá- gang bókarinnar að birta borgarkortið á saurblöðunum. Vel hugsuð heimsmynd Öll frásögnin ber með sér að söguheimurinn er gríðar- vel hugsaður og oftast er honum miðlað haganlega til lesenda á óbeinan hátt. Upphafið er æsispennandi þar sem lesandinn veit fátt um hvar hann er staddur eða hvað er að gerast og fær að átta sig á því smám saman hver Pietro er, hvernig á því stendur að það blæðir úr augunum á honum og af hverju dularfullir menn með grímur eru að kveikja í húsunum nálægt honum. Nokkru síðar hlerar Pietro vel gert samtal sem er ekki síður upplýsandi fyrir lesendur en hann sjálfan. Enn aðrar skýringar birtast óbeint í lýsingum á umhverfinu eða útliti persóna og lesandinn fær sjálfur að raða saman púsluspilinu. Það er oftast kostur á bókinni að lesandinn er ekki mataður með teskeið á útskýringum og ýmsir endar eru óhnýttir sem skapar heilmikið svigrúm fyrir lesendur til að velta hlutunum fyrir sér. Einnig er fagnaðarefni hversu margbrotnar persónurnar eru og að auðveldlega er hægt að sveiflast í afstöðunni til flestra þeirra. Bókin snertir líka á ýmsum mikilvægum umfjöllunarefnum, t.d. er tekist á við stéttskiptingu og ýmiss konar misrétti á kraftmikinn hátt. Aftur á móti geta ákveðin atriði í söguþræðinum virst ruglingsleg, allavega í fyrstu. Við fyrsta lestur fannst mér t.d. fjölskyldutengsl Pietro við nornina sem er haldið fanginni í háborginni ekki nógu vel undirbyggð og ekki unnið úr þeim til hlítar. Við annan lestur kom hins vegar í ljós að ég hafði einfald- lega ekki tekið nógu vel eftir því framan af frásögninni birtast glefsur af frásagnarþráðum sem tengdust þess- um efnisþætti og þeir eru ofnir vandlega gegnum alla söguna. Aðrir taka kannski eftir öllu þessu við fyrsta lestur en missa hugsanlega af öðru því að sögusviðið er svo ítarlega unnið að það getur stundum yfirgnæft persónurnar og plottið. Það er samt ekki endilega galli. Heimsmyndin í Koparborginni er aðdáunarvel hugsuð og gerð. Hún hefur því heilmikið sjálfstætt gildi og hvað söguþráðinn varðar getur meira að segja verið gaman að týnast stundum og fá að móta eigin hugmyndir um lausa enda eða óljósa rangala. Þar sem heimsmynd sögunnar er margþætt og safarík hefur bókin líka þá jákvæðu hlið að vera líkleg til að þola ítrekaðan lestur vel þar sem í henni er hægt að uppgötva svo ótalmargt. Höfundur er íslenskufræðingur.

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.