Börn og menning - 2016, Page 38

Börn og menning - 2016, Page 38
Brennandi hugsjónir IBBY fréttir Í september árið 2000 lagði undirrituð, þá stjórnarkona IBBY á Íslandi, í langferð til strandbæjarins Cartagena í Kólumbíu í því skyni að bjóða sig fram til setu í stjórn IBBY-samtakanna og taka þátt í heimsþingi IBBY sem haldið er annað hvert ár á mismunandi stöðum í heim- inum. Í Cartagena hófst tveggja ára seta mín í stjórn IBBY-samtakanna og þar heyrði ég fyrst minnst á Jellu Lepman. Nafn hennar átti ég eftir að heyra margoft, bæði á stjórnarfundum og IBBY-þingum, enda er það samofið sögu samtakanna frá upphafi. Konan sem byggði brýr Jella Lepman (1891–1970) var af Gyðingaættum og fæddist í Stuttgart í Þýskalandi. Hún ólst upp á frjáls- lyndu heimili og giftist hálfbandarískum manni sem lést þegar hún var aðeins 31 árs gömul. Jella fór þá í nám í blaðamennsku til að sjá sér og tveimur börnum sínum farborða. Þegar Hitler komst til valda missti hún vinnu sína hjá þýska lýðræðisflokknum og flúði með börnin til Bretlands árið 1936. Í Bretlandi starfaði hún meðal annars fyrir BBC en gekk árið 1941 til liðs við bandaríska útvarpsstöð sem var með útsendingar í Evrópu í seinni heimsstyrjöldinni. Við stríðslok 1945 sneri Jella aftur til Þýskalands sem ráðgjafi Bandaríkja- hers í málefnum sem lutu að námsþörfum kvenna og barna í þeim hluta landsins sem hernumið var af Bandaríkjamönnum. Eftir hörmungar stríðsáranna tók við endurreisn- arstarf í Þýskalandi og Jella Lepman var sannfærð um að vonin um betri heim byggi í ungu kynslóðinni. Sömuleiðis var það bjargföst trú hennar að vandaðar barna- og unglingabækur væru besta leiðin til að inn- ræta ungu fólki sjálfsvirðingu, fordómaleysi, umburðar- lyndi og ást á friði. Hún talaði gjarnan um að barna- bókin gæti orðið eins konar „brú“ milli þjóða heims. Í sjálfsævisögu Jellu Lepman, A bridge of children’s books, má finna frásagnir af kynnum hennar af ungum fórnarlömbum stríðsins sem höfðu upplifað ólýsan- legar þrautir, voru á vergangi og liðu skort. Þessi kynni styrktu þá skoðun Jellu að börnunum væri ekki síður nauðsynlegt að fá andlega næringu úr bókum en fæði, lyf, klæði og húsaskjól. Hún lagði sérstaka áherslu á að börn þyrftu að fá aðgang að bókum frá öðrum lönd- um til þess að geta sett sig í spor þeirra sem hafa ólíka reynslu, tilfinningar, þarfir og menningu en þau sjálf. Með þessa hugsjón að leiðarljósi ákvað Jella Lepman að efna til alþjóðlegrar sýningar á barnabókum og myndskreytingum úr barnabókum. Hún sendi beiðn- ir um bækur til 20 landa, þar á meðal nokkurra sem höfðu barist gegn Þýskalandi í stríðinu, en fékk einungis eitt neikvætt svar. Þrátt fyrir að Jella hefði ekki fengið neinn fjárhagslegan stuðning var sýn- ingin haldin í München árið 1946. Í kjölfar hennar hlaut Jella Lepman styrk frá Rockefeller-stofnuninni árið 1949 til þess að koma á fót alþjóðlegu bókasafni, Internationales Jugend bibliothek, sem hún stýrði sjálf til ársins 1957. Starfsemi bókasafnsins stendur enn í blóma og hefur það alla tíð verið í góðu samstarfi við IBBY-samtökin. Stofnun IBBY Sannfæring Jellu Lepman um mikilvægi barnabóka til að stuðla að friði og skilningi á milli þjóða fékk vax- andi hljómgrunn á árunum rétt eftir stríð. Fram komu þau sjónarmið að börn alls staðar í heiminum þyrftu að hafa aðgengi að vönduðum bókum sem kveiktu lestrar- löngun og gerðu þau að upplýstum lesendum. Þetta varð Jellu Lepman hvatning til að skipuleggja ráðstefnu í München árið 1952 undir yfirskriftinni International understanding through children’s books. Hana sóttu fjölmargir evrópskir höfundar, útgefendur, kennarar og heimspekingar og var þar sett á fót nefnd um stofnun International Board on books for young people – IBBY. Ári síðar, 1953, voru IBBY-samtökin formlega stofn- uð og sex eftirfarandi markmið samtakanna sett fram: Guðlaug Richter

x

Börn og menning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.