Fréttabréf Ættfræðifélagsins - sep. 2020, Side 5
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í september 2020
http://www.ætt.is aett@aett.is5
eftir móður minni sáluðu. Hún er hvað duglegust til
búskapar. – Sú þriðja er Elínborg, óráðinn ungling-
ur. Guðrún hefði átt kost á að giftast presti eða ríkum
bóndamanni. En sitthvað hefur okkur þótt að því og
ekki gefið þess kost.
Það fór svo að Páll gekk að eiga Elínborgu, hinn
óráðna ungling, aðeins rúmu ári eftir að bréfið hér
að ofan var skrifað, þann 8. október 1853. Því ber að
túlka þann ráðahag þannig að unga fólkinu hafi litist
býsna vel hvoru á annað. Þegar brúðkaupið var gert
var Páll 26 ára og Elínborg tvítug og settust þau að í
Víðidalstungu.
Í þessu bréfi er vísað í að dóttir Jóns Thorarensen
sé nú þegar gift Jóni Sigurðssyni á Breiðabólsstað og
er það Ragnheiður sem vísað er í.
Þó nokkru áður, eða árið 1846, hafði Ragnheiður
systir Páls verið gefin Jóni Sigurðssyni presti og
guðfræðingi. Þá var hún var aðeins 22 ára gömul og
Jón 32 ára. Það er lítill vafi á því að undanfari þessa
hjónabands hefur verið á svipaðan hátt og bróður
hennar. Feður hafa hist eða skrifast á, eitthvað hef-
ur farið á milli þeirra um gæfu og gjörvileika barna
sinna og að lokum hefur samist um gjaforðið. Þegar
unga fólkið hefur svo hist og þeim litist vel hvoru á
annað hafa feðurnir ugglaust skálað yfir góðum lykt-
um og ákveðið brullaupsdaginn.
Jón Sigurðsson, maður Ragnheiðar, fædd-
ist á Hellnahóli, Holtssókn undir Eyjafjöllum,
Rangárvöllum (f. 25. maí 1814, d. 17. ágúst 1859 í
Breiðabólsstaðarsókn í Vesturhópi). Hann var sonur
hjónanna Sigurðar Jónssonar (1776-1862), og konu
hans Valgerðar Tómasdóttur (1786-1826).
Búskaparár Ragnheiðar og Jóns
Það var sumarið 1846 sem Ragnheiður gekk í
hjónaband með Jóni Sigurðsyni, barnakennara og
presti. Hófu þau búskap sinn á Breiðabólsstað full
bjartsýni og gleði á þessum einum þekktasta bæ í
Vesturhópinu. Breiðabólsstaður, sem er vestan við
sunnanvert Vesturhópsvatnið, er kirkjustaður og áður
prestssetur þar sem sátu afar margir, merkir prest-
ar. Eitt af því sem Breiðabólsstaður er hvað þekkt-
astur fyrir er að þar hófst ritöld fyrst á Íslandi með
skrásetningu laga veturinn 1117-1118 og um 1540 var
þar fyrsta prentsmiðja landsins.
Fyrsta árið eftir að þau Ragnheiður og Jón gengu í
hjónaband var tíðinni lýst þannig að vorið var oft gott
og hlýtt, grasvöxtur góður sem og nýting. Var sum-
arið eitt hið besta og var heyjað langt fram á vetur.
Elstu menn töldu sig ekki muna svo góðan vetur né
hægviðrasaman sem þennan vetur.
Og enn kvað Gísli Konráðsson:
Veturinn unan ýtum vann,
einkunn hans svo það er,
að Eygóði heiti hann
héðan af alda rað er.
Ungu hjónunum hefur því trúlega liðið vel og ver-
ið full lotningar fyrir Breiðabólsstað þegar þau sett-
ust þar að og ekki að efa að Jón hefur notið sín í starfi
sem prestur og barnakennari og Ragnheiður verið
ánægð og glöð þegar hún bjó þeim þar heimili.
Börnin fæðast
Strax snemmsumars, árið eftir að þau setjast að á
Breiðabólsstað, berst mislingasótt, eða flekkusótt eins
og hún var kölluð, inn í sveitina. Fór fólk að finna
fyrir veikindum um alla sveit og lá það fyrir, ýmist
í nokkra daga og braggaðist síðan, eða lést af veik-
indum sínum. Í Húnvetningasögu eru nafngreindir á
annan tug manna sem önduðust úr þessum veikindum
árið 1846. Hafa veikindi þessi sett djúpt mark á fólkið
í sveitinni þó svo að fátítt væri að menn hafi kvartað
eða borið það utan á sér.
Ungu hjónin létu engan bilbug á sér finna og
árið 1848 fæddist þeim hjónum fyrsta barnið, Jón
Sigurður Vídalín. Dóttirin Kristín fæddist svo tveim-
ur árum seinna, árið 1850. Árið 1851 eignuðust þau
Valgerði Ingveldi en hún dó á fyrsta ári. Tveimur
árum síðar eignuðust þau svo yngsta barnið, Björn
Markús. Þau hjón tóku einnig að sér fósturdóttur,
Vigdísi Pálsdóttur f. 1851, en Vigdís var afabarn Páls
Sigurðssonar bróður Jóns. Þau voru því mjög fljótt
komin með stórt heimili, sex manna fjölskyldu ásamt
öðru heimilisfólki.
Ragnheiður hafði eina þjónustustúlku, Hólmfríði
Jónsdóttur 26 ára, sem aðstoðaði hana innanhúss.
Þess utan voru fjórir vinnumenn á prestssetrinu, all-
ir frekar ungir að árum. Páll Pálsson 23 ára, Sigurður
Guðmundsson 38 ára, Daníel Daníelsson 22 ára
og Hannes Árnason 35 ára. Vinnukonur voru tvær;
Hólmfríður Bjarnadóttir 21 árs og Ingibjörg Jósefsdóttir
18. ára. Einn léttadrengur, Jón Guðmundsson, er á
bænum 14 ára og loks er nefnt í manntali frá 1855,
tíu ára tökubarn að nafni Helga Sveinsdóttir. Það hef-
ur því verið annasamt heimili, nóg að gera innanhúss
Séra Friðrik Eggerz bóndi í
Akureyjum og víðar. Hann og
kona hans Arndís Pétursdóttir
voru tengdaforeldrar Páls, bróður
Ragnheiðar. Eftir að Ragnheiður
varð ekkja gerðist hún bústýra
hjá Friðriki Eggerz í Akureyjum á
Breiðafirði um nokkurra ára skeið.
Víðidalstunga í
Húnavatnssýslu.
Þar fæddist
Ragnheiður og
ólst þar upp.