Fréttabréf Ættfræðifélagsins - sept 2020, Qupperneq 15

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - sept 2020, Qupperneq 15
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í september 2020 http://www.ætt.is aett@aett.is15 barnið var drengur sem skírður var Jón. Hann átti eft- ir að lifa næstu sjötíu árin, fyrst á Seljum og síðar í Hólmakoti, en þangað flutti fjölskyldan fyrir miðja tuttugustu öldina. Sjöunda barnið var Sigríður en það fór á sömu leið og hjá þeirri fyrri, þessi lifði í eitt og hálft ár. Áttunda barnið var drengur, sem skírður var Sigurður, gæti verið í höfuðið á Sigríði. Það fór betur því Sigurður þessi, langafi minn, lifði í rúm fimmtíu og fimm ár. Andrés og Andría Níunda barnið var drengur og enn vantaði Andrés. Andrés Illugi var hann skírður, en það fór á sömu leið og með hina fyrri, hann varð tveggja ára. Næsta barn var stúlka. Því ekki að reyna einu sinni enn? Hún var skírð Andría Ingibjörg, nú skyldi það ganga. Hún tórði í mánuð. Ellefta barnið var drengur. Hann var skírður Guðlaugur, en föðuramma Málfríðar hét Guðlaug. Guðlaugur varð allra karla elstur, bjó lengi að Seljum en síðast í Hólmakoti og varð ríflega níræður. Tólfta barnið var drengur og nú var komið að Andrési Bjarna. Hann fékk níu mánuði á jörðinni. Þrettánda barnið var stúlka og enn var komið að Sigríði. Hún dó rétt fyrir fjögurra ára afmælið. Fjórtánda barnið var drengur og í fimmta sinn var það Andrés með aukanafnið Sigmundur. Hann náði rúm- um tveimur árum og lést í sömu vikunni og Sigríður systir hans. Ekki er mér kunnugt um að fleiri hafi skírt Andrés af þessari ætt og skyldi engan undra. Í stuttu máli, fimm Andrésar og ein Andría, sem öllum var skammtaður mun styttri tími á jörðinni en almennt gerðist. Eitt barna Sigurðar langafa var Friðjón Sigurðsson, skósmíðameistari í Reykjavík, móðurömmubróðir minn. Hans nafn varð til með því að slá saman Jóni og Málfríði. Þetta reyndist heillaráð því Friðjón ömmu- bróðir minn var mikill gæfumaður og heillavinur for- eldra minna. Þegar svo dóttir mín eignaðist dreng fyrir að verða þrettán árum, var hann skírður Gabríel. Einhver spurði mig að því hvort ég hafi ekki reiknað með að hann yrði skírður í höfuðið á afanum. Ég svaraði því til að mér finndist hún hafa gert það því hún hafi alltaf sagt að afinn væri algjör engill, Gabríel erkiengill. Vitjaði nafns Áður hefur verið minnst á Friðjón Sigurðsson. Sigurður langafi flutti ásamt eiginkonunni Halldóru Steindórsdóttur, með fjölskylduna vestur í Rif um aldamótin og þar ólust börnin upp. Ein dætranna var Guðbjörg Jónsdóttir var skírð eftir föður ömmu sinni Guðbjörgu. Hún lifði til 1932 og lést í Manitóba í Kanada. Hér er hún ásamt dóttur sinni í Kanada. Aðalsteinn Elíasson (1889 - 1923) og Helga Sigurðardóttir (1893 – 1961) kona hans. Þau voru afi og amma greinar- höfundar. Aðalsteinn drukknaði aðeins 34 ára. Hann vitjaði nafns og var stúlka skírð Aðalsteina eftir honum. Aðalsteina Sumarliðadóttir (1923 - 2013) og Guðríður Pétursdóttir (1892 – 1987) móðir hennar. Aðalsteina bar nafn sitt fyrst íslenskra kvenna.

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.