Rit Mógilsár - apr. 2002, Blaðsíða 10
10
2. Mynd/Fig 2. Aldur og hæð úrtakstrjáa/The variation of age and height
of the sample trees.
5 ÚRVINNSLA GAGNA
5.1 Almennt
Árhringirnir á sneiðunum sem teknar voru úr felldum trjám voru taldir og
fjöldi þeirra síðan dreginn frá lífaldri trésins. Sú tala segir til um aldur
trésins þegar það náði þeirri hæð sem sneiðin var tekin í.
5.2 Gerð hæðarvaxtarfalla
Fjölmargar rannsóknir hafa verið gerðar um hæðarvöxt skógarteiga
(Strand 1964, Assmann 1970, Sloboda 1971, Hägglund 1972, Franz et al.
1974). Í þessum rannsóknum hafa verið skoðuð ýmis stærðfræðiföll og
settar fram kröfur á þau til að hægt sé að nota þau við að lýsa
raunverulegum aðstæðum. Einkennandi fyrir fall sem lýsir hæðarvexti
trjáa er að það er eins og útdregið S í laginu. Til þess að hægt sé að nota
hæðarvaxtarföll við gróskuflokkun verða þau að uppfylla eftirtalin skilyrði:
0
2
4
6
8
10
12
14
16
18
0 10 20 30 40 50 60 70
Lífaldur - biological age
H
æ
ð
m
-
H
ei
gh
t,
m