Rit Mógilsár - apr. 2002, Side 13
13
Líkan 3/Model 3.
Í líkönum 2 og 3, sem eru ekki línuleg, eru stikarnir reiknaðir út með
ítrun (iteration process). Sloboda hefur skrifað tvö FORTRAN forrit
þar sem það er gert með stigulaðferð (gradient method) sem fylgir
reglum um minnstu tvíveldissummu (Stiefel 1961). Ef notað er líkan
númer 3 verður hæð við 100 ára aldur (H100) að vera þekkt eða
áætluð fyrir allar mælingarnar.
5.4 Val á líkani
Það líkan sem valið var og lýsti vexti meðalhæðarinnar best er líkan
númer 3, (H(T) = F(H100, T)). Niðurstaðan úr aðhvarfsgreiningunni af
líkani 1 sýndi að stikarnir uppfylltu ekki þær kröfur sem gerðar eru til
þess að líkanið væri nothæft. Það sama var að segja um líkan
númer 2. Heildilíkanið númer 3 myndar hæðarvaxtarföll sem eru
viðunandi út frá þeim gögnum sem safnað var. Við notkunina á líkani
númer 3 er þess krafist að rannsóknargögnin séu fyrirfram flokkuð í
H100 flokka. Í þessari tilraun voru gögnin flokkuð eftir gróðurhverfum,
í flokkana S1, S2a og S3 (sjá Ragnarsson og Steindórsson 1963).
Vegna þess hve skógurinn var ungur varð að áætla hæðina við 100
ára aldur og ítrunin reiknuð þangað til að hæðarvaxtarföllin féllu að
gögnunum sem safnað var.
6 NIÐURSTÖÐUR
Í 3 töflu eru sýndir stikarnir sem fengust við ítrunina í FORTRAN
forritinu sem Sloboda hefur gert. Fyrir hvert hæðarvaxtarfall voru
reiknaðir út stikar til þess að fá betri nálgun við gögnin.
Þróun meðalhæðarinnar er eins og sýnt var í 5. kafla og er:
Líkan 3/Model 3.
( )H T b H
b
e
d
T
d
100100
a a
= ⋅
−
( ) ( )H T F H , T100=