Hjálmur - 19.01.1967, Page 8

Hjálmur - 19.01.1967, Page 8
8 HJÁLMUR Helgi Signrðsson. sem „Hlíf“ hafði barizt fyrir um ára- bil. Var þá tekið upp í kaupsamninga ákvæði um það, að félagsmenn „Hlíf- ar“ skyldu hafa forgangsrétt til allr- ar verkamannavinnu á félagssvæðinu. Hafði þetta mikil og góð áhrif á alla starfshætti félagsins og styrkti að- stöðu þess mjög. Félagsmönnum fjölgaði stórlega, því að mikill fjöldi verkamanna hafði staðið utan við verkalýðssamtökin, er hlutu nú að ganga inn í raðir „Hlífar“. Árið 1916 hafði „Hlíf“ tekið upp þá nýbreytni, að gangast fyrir vöru- pötnunum til handa þeim félagsmönn- um, sem þess óskuðu. Voru samtök um slíkar vörupantanir meðal félags- manna nokkur Jnæstu árin,, og árið 1920 var opnuð sölubúð undir nafn- inu „Verzlunin Hlíf“. Verzlun þessi lenti brátt í erfiðleikum, og varð að hætta ári síðar. Lá nú starfsemi þessi niðri um hríð. En árið 1931 var pönt- unarstarfsemi hafin að nýju, og árið 1934 var gengið frá lögum fyrir pönt- unarfélag „Hlífar“. Gekk starfsemin allvel, og brátt opnaði pöntunarfélag- ið sölubúð í verkamannabústöðunum. Árið 1936 hóf það einnig verzlun með vefnaðarvörur í Gunnarssundi 5. — Pöntunarfélag „Hlífar“ sameinaðist árið 1937 nokkrum öðrum pöntunar- félögum í Reykjavík og á Suðurnesj- um, og mynduðu þau síðan nýtt verzl- unarfélag, „Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis“ (KRON). Árið 1940 skildi Hafnarfjarðadeildin við KRON og var þá stofnað sérstakt félag, „Kaupfélag Hafnfirðinga“. Er það Frá Hlífardeilunni 1939. Togarirtn Júní við bri/ggju. félag því í rauninni framhald af hinu gamla pöntunarfélagi „Hlífar“. Fyrri hluta þess tímabils, sem hér um ræðir, var stjórn „Hlífar“ og for- ysta að mestu leyti í höndum sömu manna og næsta skeið á undan. Kvað þar einna mest að þessum mönnum: Birni Jóhannessyni, Kjartani Ólafs- syni, Guðjóni Gunnarssyni, Gunn- laugi Kristmundssyni, Magnús Kjart- anssyni, Gísla Kristjánssyni og Frí- manni Eiríkssyni. Síðari hluta tíma- Stjórn Hlífar 1943—1945. — Sitjandi, talið frá vinstri: Sigurbjörn Guðmundsson, Hermann Guðmundsson, Olafur Jónsson. Standandi, talið frá vinstri: Sigurður T. Sigurðsson, Grímur Kr. Andrésson, Helgi Jónsson, Jens Runólfsson.

x

Hjálmur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hjálmur
https://timarit.is/publication/1567

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.