Af vettvangi - 01.02.1988, Blaðsíða 5
AF VETtVANGI S
úr atvinnulíFinu
AFGREIDSLUTÍMINN DEILUMÁL
w
Ikjarasamningi milli Vinnuveitendasam-
bands íslands og Verslunarmannafé-
lags Reykjavíkur eru ákvæði um leyfi-
legan opnunartíma verslana í Reykjavík.
Engin slík ákvæði eru í samningum við
önnur verslunarmannafélög og fer af-
greiðslutími verslana þar því eingöngu
eftir samþykktum sveitarstjóma á hverj-
um stað. Þessi ákvæði í samningi við VR
voru til skamms tíma samhljóða þeirri
samþykkt sem gilti um afgreiðslutíma
verslana í Reykjavík.
Borgarstjóm Reykjavíkur gerði hins
vegar í sumar nýja samþykkt um af-
greiðslutíma verslana í Reykjavík, sem
felur í sér verulega rýmkun á leyfilegum
afgreiðslutíma. Aðalreglan samkvæmt 2.
gr. hinnar nýju samþykktar er, að „af-
greiðslutími smásöluverslana í Reykjavík
skal vera frjáls“. Við það er þó almennt
miðað, að daglegur opnunartími virka
daga og á laugardögum sé frá kl. 7 til 22.
Nokkur verslunarfyrirtæki lengdu
strax opnunartíma sinn, einkum fram á
kvöld á virkum dögum. Þegar verslunar-
miðstöðin Kringlan tilkynnti hins vegar í
nóvember sl., að lengja ætti opnunar-
tíma í Kringlunni á laugardögum um eina
klukkustund mótmælti VR og tilkynnti,
að það myndi setja yfirvinnubann á allar
verslanir Hagkaupa í Reykjavík. Jafn-
framt höfðu félagar í VR frammi mót-
mæli í verslununum í Kringlunni.
Vinnuveitendasambandið hefur,
ásamt fulltrúum Kaupmannasamtak-
1 launaþróun
anna, átt tvo fundi með VR vegna þessa
máls og lagt þar fram tillögur sem eiga
að tryggja, að vinnutími verslunarfólks
muni ekki lengjast þótt afgreiðslutími sé
lengdur, nema það kjósi sjálft. Þessir
fundir hafa reynst árangurslausir vegna
þess að VR hefur ekki reynst tilbúið til
þess að breyta samningsbundnum
ákvæðum um opnunartíma verslana
nema með skilyrðum, sem í reynd þýða
að laun alls verslunarfólks á félagssvæði
VR myndu hækka um tugi prósenta.
Þessum kröfum var þegar í stað hafnað,
enda hafa kauptaxtar verslunarfólks ver-
ið þeir sömu um allt land, þótt heimildir
til yfirvinnu og þjónustu hafi aðeins verið
takmarkaðar á félagssvæði VR. Þess er
vænst að málið komi á ný á dagskrá í
tenglsum við gerð nýrra samninga nú í
upphafi árs.
í nóvembermánuði voru á ný teknar upp viðræður vinnuveitenda og VR um afgreiðslu-
tíma verslana. Myndin er frá fundi pessara aðila. F.V. Magnús E. Finnsson,
framkvstj. Kaupmannasamtakanna, Jón R. Pálsson VSÍ, Magnús Ólafsson Hag-
kaup, Þórarinn V. Þórarinsson VSÍ, MagnúsL. Sveinsson form. VR, Böðvar Péturs-
son VR, í stjórn VR og Baldvin Hafsteinsson, lögr. VR.
HÓPBÓNUSKERFID10FAR GODU
Fjögur frystihús á Vestfjörðum hafa
tekið upp hópbónuskerfi og mörg
frystihús víðs vegar um land hafa
sýnt mikinn áhuga á að feta í fótspor
þeirra. Sú reynsla sem komin er á hóp-
bónuskerfið lofar góðu að sögn Bolla
Ámasonar tæknifræðings hjá VSÍ. Það
má þegar merkja framleiðniaukningu í
fyrirtækjunum, sem skilar sér m.a. í
auknum bónusgreiðslum til starfsfólks-
ins.
Það var að frumkvæði aðalsamnings-
nefndar Vinnuveitendafélags Vestíjarða
og Alþýðusambands Vestfjarða að sett
var á fót nefnd til að vinna að tiUögum um
nýtt kaupaukakerfi, sem gæti komið í
stað gamla bónuskerfisins. Markmiðið
var að þróa bónuskerfi sem yrði einfald-
ara en hið eldra, gæfi betri nýtingu á
vinnutúna og jafnaði vinnuálagi milli
starfsfólks í vinnslurásinni.
Sú útfærsla sem varð fyrir valinu er,
að litið verður á frystihús sem einn hóp,
eða eina vinnslurás og borgað verði
ákveðinn krónufjöldi fyrir hveija fram-
leidda einingu. Heildarupphæðin deilist
síðan á starfsmenn eftir unnum tíma-
fiölda hvers og eins.
Vinnslurásin er skilgreind þannig, að
undir hana heyra öll störf frá því að hrá-
efni er sótt úr kæligeymslu þar til afurð-
imar em frágengnar í frystiklefa, þar
með talin öll þjónustustörf sem tilheyra
henni. Það að skilgreina vinnslurásina í
frystihúsinu sem eitt vinnusvæði gefur
þá möguleika að starfsfólk gangi óhindr-
að milli starfa. Stjómunarlega séð ætti
því að vera auðveldara að koma í veg
fyrir myndun flöskuhálsa í vinnslurásinni
og þar með stuðla að því að afköstin auk-
ist. Hópkerfið hefur einnig í för með sér
meiri launajöfnuð milli starfsfólks
vinnslurásarinnar. Allir fá sömu greiðsl-
ur fyrir unninn tíma, enda hafa allir lagt
sitt af mörkum til að leysa þau verkefni
er upp koma hveiju sinni.
Frystihúsin sem þegar em búin að
taka upp hópbónuskerfið em: Hjálmar
hf. Flateyri, sem varð fyrst til að taka
það upp, Hraðfrystihús Tálknafiarðar
hf., Norðurtangi hf. ísafirði og Frosti hf.
Súðavík.
í nýgerðum kjarasamningi ASV og
Vinnuveitendafélags Vestfiarða er við
það miðað, að áfram verði unnið eftir
þessu kerfi fram í maí, en þá endurskoð-
að í ljósi reynslunnar.