Af vettvangi - 01.02.1988, Síða 9
af erlendum vettvangi
AFVEmfANGI 9
SVEIGJANLEGUR VINNUTIMI
TALINN HAFA MIKLA KOSTI
r
vegum norrænu Vinnuveitenda-
sambandanna hefur farið fram sam-
eiginleg athugun á vinnutíma á
Norðurlöndunum. Niðurstöðurnar hafa
verið birtar í skýrslu sem nefnist
„Arbetstider í Norden“. Tekið er fram,
að vinnuveitendur á öllum Norður-
löndunum telji mikilvægt að vinnutíma-
ákvæði í lögum og kjarasamningum verði
sveigjanlegri, sérstaklega í kjölfar þeirr-
ar vinnutímastyttingar, sem þegar hefur
átt sér stað eða verið tekin ákvörðun
um. Hafa því komið upp á meðal þeirra
kröfur um að rofm verði tengsl milli
reglulegs vinnutíma starfsmanna og opn-
unar- eða rekstrartíma fyrirtækjanna, en
sveigjanlegur vinnutími er talinn hafa
mikla kosti og stuðla að betri nýtingu á
vinnutíma starfsmanna, lægri kostnaði
og aukinni samkeppnishæfni.
Fulltrúi Vinnuveitendasambands ís-
lands í nefndinni, sem vann að athugun-
inni var Hannes G. Sigurðsson, en hér á
eftir fara helstu niðurstöður hennar.
Fram kemur í skýrslunni að síðan
1970 hefur vikulegur vinnutími á
Norðurlöndum styst verulega og var frá
1976-1986 40 stundir nema á íslandi.
Hér hafði vinnutíminn í raun verið stytt-
ur í 37 stundir þegar 1972. í Danmörku
og Noregi hefur vinnutfminn nú verið
styttur og slík ákvörðun verið tekin í
Finnlandi. Vinnutíminn er 37,5 stundir í
Noregi, en 38,5 í Danmörku og styttist í
37 stundir 1990. Athyglisvert er, að þar
sem nú hefur verið gengið lengst í stytt-
ingu vinnutímans er styttingin fram-
kvæmd í efnahagslegum öldudal.
Orlofsrétturinn hefur á tímabilinu ver-
ið lengdur á öllum Norðurlöndunum en
mismikið. Lágmarksorlof er nú 5 vikur
nema í Noregi og á íslandi. Hér eru það
fjórar vikur, og fjórir dagar, en fjórar
vikur og einn dagur í Noregi og verður
lengt í 5 vikur þegar efnahagslegar fors-
endur eru fyrir hendi.
Samanburður á fjölda helgidaga var
einnig gerður og áttu íslendingar metið
með 11 helgidaga á móti 8 í Danmörku
og Noregi, 7 í Finnlandi og 10 í Svíþjóð.
Vinnutími á ári var borinn saman skv.
eftirfarandi formúlu:
Skýringar á miklum veikindafjarvist-
um í Noregi og Svíþjóð eru m.a. taldar
geta verið upphæð greiðslna í veikind-
um, greiðslufyrirkomulag þ.e. hvort
greiðslumar eru inntar af hendi af vinnu-
veitanda beint eða tryggingastofnun,
sjálfsáhætta vinnuveitandans og eftirlit
með fjarvistum.
Lög- og samningsbundinn vinnutími 1987 í klst.:
Danmörk Finnland ísland Noregur Svíþjóð
1.778 1.784 1.635 1.740 1.808
Raunverulegur vinnutími 1987
að teknu tilliti til fjarvista og yfirvinnu:
Vinnutími m.v. Danmörk Finnland ísland Noregur Svíþjóð
almanaksdaga 1.970 1.991 1.852 1.898 2.000
Orlof % 9,9 9,3 9,6 8,0 8,4
Veik. og slys % 4,1 6,0 4,6 8,8 10
Aðrar fjarv. % 2,1 3,6 0 2,2 7,7
Yfirvinna % Raunverulegur 2,1 2,5 17,4 4,1 2,5
vinnutími á ári 1.695 1.665 1.911 1.615 1.528
261 — Helgidagar — orlofsdagar x vinnutími á viku
5
FIMM PRÓSENT
FRÉTTABLAÐ VSÍ
1. tbl. 1. árg. febrúar 1988
Blaðið fór í prentun 1.2.88
Útgefandi: Vinnuveitendasamband
íslands
Garðastræti 41, 101 Reykjavík
Sími: (91) 2 54 55
Telefax: (91) 2 84 21
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Þórarinn V. Þórarinsson
Efnisstjóri: Jónína Björgvinsdóttir
Umsjón: Kynning og markaður —
KOM h.f.
Prentun: Svansprent h.f.
Fjölmiðlum er frjálst að nota efni úr AF
VETTVANGI í heild sinni eða að hluta,
en vinsamlegast getið heimildar í
slíkum tilfellum. Þeir sem vilja koma
efni í fréttablaðið eru beðnir að senda
það efnisstjóra.
Með þessu nýja fréttablaði Vinnu-
veitendasambands íslands, AF VETT-
VANGI, hefst nýr kafli í upplýsingamiðlun
og kynningarstarfssemi samtakanna. Til-
gangurinn með útgáfunni er að flytja félags-
mönnum VSf og öðrum þeim er hafa áhuga
á starfssemi samtakanna fréttir og upplýs-
ingar úr starfinu, auk þess annað það efni,
innlent sem erlent, er varðar vinnuveitend-
ur og launþega almennt.
AF VETTVANGI mun koma út annan
hvem mánuð fyrst í stað og er ritstjóri
blaðsins og ábyrgðarmaður, Þórarinn V.
Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ, en
efnisstjóri er Jónína Björgvinsdóttir. AF
VETTVANGI er dreift til allra félaga VSf,
auk þess til annara hagsmunasamtaka
vinnuveitenda og launþega, auk annara að-
ila sem fylgjast vilja með starfi
Vinnuveitendasambandsins. Þeir aðilar,
sem ekki fá blaðið sent nú, en vildu fá það
reglulega, em beðnir að hafa samband við
Jónínu í si'ma (91) 2 54 55.
SAMDRÁTTUR
Frh. af baksíðu
staðist, því skilyrði til framleiðsluaukn-
ingar eru mun betri í tiltölulega stöðugu
verðlagi í mikilli verðbólgu. í lok álits-
gerðar hagdeildar VSÍ segir: „Niður-
stöður þessara hugleiðinga fela það í sér,
að minni kaupmáttur sé óhjákvæmileg
afleiðing þeirrar efnahagsþróunar, sem
lýst er í þessari álitsgerð. Hvort það
gerist í skjóli mikillar verðbólgu eða með
skipulögðum og skynsamlegum hætti
ræðst af afstöðu stjómvalda og þeirra,
sem semja um kaup og kjör. Verði niður-
staðan sú að verðbólgan ráði framvindu
efnahags- og kjaramála, mun það í senn
rýra kosti launþega og fyrirtækja um-
fram það, sem óhjákvæmilegt er“.