Af vettvangi - 01.02.1988, Side 10
af félögum
AFVEIIVANGI lO
Vinnuveitendasambandið gekkst fyr-
ir níu kynningarfundum á síðustu
vikum liðins árs, um staðgreiðslu
opinberra gjalda til undirbúnings skatt-
kerfisbreytingunni. Fundimir voru mjög
vel sóttir og notfærðu rúmlega 600
manns sér þessa fræðslu. Fyrirlesarar
vom frá ríkisskattstjóraembættinu en
Vinnuveitendasambandið sá um skipu-
lagningu fundanna að öðm leyti.
Fyrsti fundurinn var á Akureyri þann
14. nóvember og sóttu hann um 50
manns frá VSÍ. Þrír fundir voru í Reykja-
vík, sá síðasti 8. desember og sóttu þá
samtals tæplega 400 manns. Vikuna frá
23. til 27. nóvember voru haldnir fundir
á Akranesi, Stykkishólmi, Egilsstöðum,
Vestmannaeyjum og ísafirði. Vora þeir
fjölsóttir, frá 40-70 á hverjum stað.
Á fundunum var gerð grein fyrir stað-
greiðslureglunum, hlutverki launa-
greiðanda, notkun persónuafsláttar og
skattkorta auk skilaskyldu launagreið-
enda, launahugtaki staðgreiðslulaganna
og útreikningi staðgreiðslu, reglum um
dagpeninga, bílastyrki og hlunnindi. Þá
voru menn hvattir til að snúa sér til
ríkisskattstjóraembættisins með spum-
ingar sínar.
Fyrirspumatímarnir vora yfirleitt jafn-
langir eða lengri en inngangserindin, en
gera má ráð fyrir að fyrirspumimar gefi
til kynna hvaða atriði það vora sem
menn höfðu áhyggjur af. Mest var spurt
um greiðslutímabil og skilgreiningu á
þeim, skiptingu á persónuafslætti, hvort
hann yrði millifæranlegur milli mánaða
og meðferð skattkorta. Fram kom, að
fundarmenn höfðu áhyggjur af því hvern-
ig staðið yrði að innheimtu þegar gjald-
Þessi mynd er frá fundinum á Akureyri, sem var mjög vel sóttur.
Á fundunum í Reykjavík var þétt setinn bekkurinn, eins og sjá má.
fallinna opinberra gjalda og ábyrgð launa-
greiðenda í því sambandi. VSÍ óskaði því
eftir fundi með fulltrúum fjármálaráðu-
neytisins um þessi mál og gaf ráðuneytið
fyrirheit um, að þeim tilmælum yrði
beint til innheimtumanna, að þeir sýndu
lipurð í samningum við launamenn varð-
andi greiðslu eldri skulda.
Launagreiðendur skyldu því hvetja
starfsmenn sína til að hafa samband við
Skúli Þórðarson frá embætti ríkisskatt-
stjóra í ræðustól.
viðkomandi gjaldheimtu til að semja um
skuldir sínar.
Þær lagabreytingar sem varða stað-
greiðsluna og vora samþykktar á Alþingi
nú fyrir jólin eru í meginatriðum eins og
við var búist. Breytingarnar eru aðallega
byggðar á tillögum milliþinganefndarinn-
ar en fulltrúi VSÍ í nefndinni var Ólafur
Nilsson. VSÍ mun liðsinna félagsmönn-
um við lausn þeirra vandamála sem upp
koma við framkvæmd staðgreiðslunnar.
Hrafnhildur Stefánsdóttir annast þessi
mál og er mönnum bent á að snúa sér til
hennar.
KYNNINGARFUNDIR UM SKATTKERFISBREYTINGUNA
RÚMLEGA 600 MANNS
Á NÍU FUNDUM