Bændablaðið - 11.02.2021, Side 12
Bændablaðið | Fimmtudagur 11. febrúar 202112
FRÉTTIR
Bændur í Flóanum með netverslunina Kaupland:
Gengur glimrandi vel
Kaupland er nafn á fyrirtæki á
bænum Mýrum í Flóahreppi þar
sem bændurnir á bænum, þau
Valsteinn Stefánsson, Kópavogs
búi og Auðbjörg Sigurðardóttir
búa, en hún er frá Vetleifsholti
í Ásahreppi. Fyrirtæki þeirra
hefur gengið glimrandi vel en þau
stofnuðu það í apríl 2018.
Led landbúnaðar- og iðnaðar-
lýsing er þeirra aðal söluvara, en
þau eru líka með „íþróttatape“ og
andlitsgrímur sem hafa selst mjög
vel.
„Við keyptum jörðina fyrir einu
ári og hér hafði ekki verið búið í
nokkur ár svo hér þarf ýmislegt
að gera, mikil girðingavinna fram
undan og byggja þarf hesthús
og tamningaraðstöðu. Við erum
aðeins byrjuð í hrossarækt og hér
hefur fæðst eitt folald frá því að við
fluttum og annað á leiðinni. Byggja
þarf nokkur lítil gistihús og svo er
hugmyndin að taka 20 til 30 hektara
í skógrækt og eitthvað í skjólbelta-
rækt. Ýmis matvælaræktun er fyrir-
huguð og við erum að skoða ræktun
á iðnaðarhampi eins og margir aðrir.
Við hjónin erum bæði að vinna
annars staðar, Auðbjörg í Flóaskóla
og ég hjá Landsneti,“ segir Valsteinn.
200% söluauking
Valsteinn segir að Kaupland hafi
gengið ótrúlega vel og miklu betur
en þau hjón þorðu að vona í upphafi.
„Já, viðtökurnar hafa satt best
að segja verið frábærar og erum við
hjónin mjög þakklát fyrir það traust
sem okkur er sýnt. Salan hefur aukist
um ca 200% á hverju ári. En það
besta við þessar frábæru móttökur er
að sama fólkið og sömu fyrirtækin
versla við Kaupland aftur og aftur.
Það er mjög góð tilfinning að finna
að við erum að gera eitthvað rétt.“
Valsteinn segir að Kaupland flytji
inn hágæðavörur. „Við erum með
mjög gott verð og mjög góða vöru
en til þess að það gangi þurfum við
að kaupa mjög mikið magn í einu og
flytja vörurnar heim í gámum sem
tekur oft og tíðum óþarflega langan
tíma, því miður. Álagningin hjá
okkur er eins lág og við komumst af
með en ekki eins há og við komumst
upp með. Hvatinn fyrir fólk að
skipta yfir í led lýsingu er í raun
rafmagnssparnaðurinn, því hann
borgar ljósið niður á skikkanlegum
tíma. Netverslunin er með tengingu
við póstinn þannig að varan fer
oftast með þeim en svo er hægt að
senda okkur tölvupóst og hringja í
okkur líka,“ segir Valsteinn.
Flóahreppur er besti staðurinn
Valsteinn er að lokum spurður
hvern ig sé að búa og vera með fyrir-
tæki í Flóahreppi?
„Þetta fyrsta ár okkar hér á
Mýrum í Flóahreppi hefur verið
okkur mjög gott, þó svo að
hlaðan hafi fokið viku eftir að við
keyptum jörðina, þá voru hér mættir
nágrannar okkar til að hjálpa um leið
og lægði. Ég held að Flóahreppur sé
besti staður sem við höfum búið á,
dásamlegt fólk allt í kringum okkur
sem hefur tekið mjög vel á móti
okkur og vonandi eigum við eftir að
verða samfélaginu hér til einhvers
gagns. Draumarnir um uppbyggingu
hér eru margir og miklir en hvað
okkur tekst að framkvæma af þeim
verður bara að koma í ljós.“ /MHH
Vésteinn og Auðbjörg, sem eiga og reka netverslunina Kaupland í Flóahreppi,
en þau búa á bænum Mýrum og una þar hag sínum mjög vel. Heimasíða
fyrirtækisins er www.kaupland.is fyrir áhugasama. Mynd / Einkasafn
Guðjón Kristjánsson sláturhússtjóri hjá Sláturhúsi Vesturlands, Helgi Rafn
Gunnarsson, framkvæmdastjóri Biobú, og Anna Dröfn Sigurjónsdóttir,
gæðastjóri Sláturhúss Vesturlands, fyrir utan sláturhúsið. Mynd / Áslaug Helgadóttir
Biobú ætlar að framleiða
lífrænt vottað nautakjöt
– Sláturhús Vesturlands komið með lífræna vottun
Biobú, sem hefur sérhæft sig
í vinnslu á lífrænt vottuðum
mjólkurafurðum, stefnir á
framleiðslu á lífrænt vottuðu
nautakjöti. Ef allt gengur upp,
varðandi umsóknarferlið um
vottun fyrir nautakjötið, standa
vonir til að kjötið verði komið í
verslanir í mars.
Helgi Rafn Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Biobú, segir að kjötið
verði markaðssett undir merkjum
Biobú sem hingað til hefur eingöngu
framleitt mjólkurvörur frá bæjunum
Neðra-Hálsi í Kjós og Búlandi í
Austur-Landeyjum. „Eigendur
Biobú fóru í stefnubreytingu á
síðasta ári og var til dæmis merkinu
breytt í þeim tilgangi að útvíkka
vöruframboðið,“ segir Helgi Rafn.
Í lok síðasta árs fékk Sláturhús
Vesturlands lífræna vottun og hefur
Biobú nýlega gert samning við
sláturhúsið um að þjónusta slátrun
gripa frá Neðra-Hálsi og Búlandi.
Helgi segir að sláturhúsið muni sjá
um slátrun og fullvinnslu á kjötinu
sem kemur frá bæjunum. /smh
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
DRIFSKÖFT
OG DRIFSKAFTAEFNI
Kjarnafæði selur 200 tonn af halal-
slátruðu lambakjöti til Noregs
Kjarnafæði hefur gert samning
við NoriDane Foods A/S um sölu
á 100 tonnum af halalslátruðu
lambakjöti til Noregs og líkur eru
á sölu á 100 tonnum til viðbótar.
Gunnlaugur Eiðsson, fram-
kvæmda stjóri hjá Kjarnafæði,
segir að búið sé að ganga frá sölu
á hundrað tonnum af lambakjöti til
alþjóðlegra sölusamtaka í Noregi
sem heita NoriDane Foods A/S og
að vonandi semjist um 100 tonn í
viðbót. „Það er enn í vinnslu en ég er
bjartsýnn á að salan gangi eftir en um
sölu á heilum skrokkum er að ræða.“
Halal-slátrun
„Kjarnafæði er búið að vera í
samstarfi við NoriDane, sem er í
50% eigu norsku bændasamtakanna
og svo ýmissa einstaklinga. Þeir
eru með söluskrifstofur á um 60
stöðum í heiminum og með þeim
stærri þegar kemur að verslun með
kjöt og kjötafurðir á heimsmarkaði.
NoriDane hafa í gegnum árin verið
stórir kaupendur hjá okkur af alls
konar aukaafurðum.“
Gunnlaugur segir að Kjarnafæði
hafi beitt halal-slátrun á Blönduósi
til fjölda ára, sem er tilkomið vegna
þess að þeir töldu sig vera komna
með sölusamning við Írak á sínum
tíma. „Við höfum beitt aðferðinni
síðan og þessi sala dettur inn á borð
til okkar vegna þess að fénu var
slátrað með þeirri aðferð og kjötið
því viðurkennt sem halal-kjöt.“
Fá betra verð en innanlands
Að sögn Gunnlaugs eru þeir að
fá verð sem er yfir verði á innan-
landsmarkaði fyrir kjötið. „Okkur
er afskaplega illa við að selja
kjöt á erlendan markað undir
kostnaðarverði og gerum það
einfaldlega ekki, þannig að við erum
að fá ásættanlegt verð fyrir kjötið.
Salan er mjög heppileg fyrir
okkur en sá hængur er á að þetta
er bara ein sala og ekkert fast í
hendi um framhaldið. Við fengum
svipaða sölu fyrir nokkrum árum og
stukkum á hana líkt og þessa sölu.“
/VH
Gunnlaugur Eiðsson, framkvæmda
stjóri hjá Kjarnafæði.
Úr sláturhúsinu á Blönduósi. Mynd / HKr.