Bændablaðið - 11.02.2021, Qupperneq 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 11. febrúar 202118
UTAN ÚR HEIMI
Heimsmarkaður með dráttarvélar lifir góðu lífi:
Víða góður gangur í dráttarvélasölu
í heiminum þrátt fyrir COVID-19
– Stærsti markaðurinn er á Indlandi, en spennandi markaður í Kína vegna tæknivæðingar landbúnaðarins
Samkvæmt gögnum Mobility
Foresights voru 23 dráttarvéla
tegundir tilgreindar á dráttar véla
markaði heimsins á síðasta ári.
Þá höfðu tær tegundir fallið út
af markaði. Þrátt fyrir COVID
19 mátti merkja aukna dráttar
vélasölu í mörgum löndum þó
samdráttur væri á öðrum stöðum.
Ljóst er að landbúnaður og aðrar
matvælaframleiðslugreinar geta ekki
skellt í lás þótt farsótt herji á heims
byggðina. Þar verða menn einfald
lega að reyna með öllum ráðum
að halda framleiðslunni gangandi,
jarðarbúar verða að fá sinn mat hvað
sem raular og tautar. Það þýðir að
bændur hætta ekkert að endurnýja
dráttarvélar og önnur tæki þó mögu
lega hægist eitthvað á. Tegundirnar
á dráttarvélamarkaðnum sem taldar
eru upp í markaðsyfirliti og horf
ur á markaði til 2025 hjá Mobility
Foresights eru:
Mahindra and Mahindra, Escorts,
FPT Industrial, John Deere, Massey
Ferguson, Kubota, International
Harvester, DeutzFahr, Yanmar,
Zetor, VST, Swaraj, Sonalika,
Armatrac, Branson, Fendt, Iseki,
JCB, TYM, TAFE, New Holland,
McCormik og Landini. Foton og
First Tractor, Company hafa dottið
út af listanum.
Stærsti dráttarvélamarkaður
heims er á Indlandi
Áætlað var að eftirspurn eftir dráttar
vélum í heiminum árið 2020 næmi
hátt í tveim milljónum véla. Stærsti
dráttarvélamarkaður í heimi er á
Indlandi. Þar voru seldar 700.000
dráttarvélar á árunum 20192020.
Dráttarvélamarkaðurinn hefur ekki
orðið fyrir verulegum áföllum á
Indlandi vegna COVID19. Hefur
markaðurinn í dreifbýlinu haldið
sölunni uppi meðan lokanir hafa
haft áhrif á kaupendur í þéttbýlinu.
Indverjar hafa verið að innleiða
strangari mengunarlöggjöf fyrir sína
bílaframleiðslu, eða það sem nefnt
er BS6 og er sambærilegt við Euro 6
staðalinn. Dráttarvélaframleiðendur
eru hins vegar aðeins á eftir og voru á
síðasta ári að innleiða BS TRTractor
EMEmission 4 (TREM4) staðalinn
fyrir dráttavélar með yfir 50 hestafla
mótorum. Mun staðallinn hafa áhrif
til hækkunar á verði vélanna enda
kostar þetta breytingar hjá fram
leiðendum upp á um 2 milljónir
dollara fyrir hverja gerð af mótor.
Þessi staðall verður síðan innleiddur
fyrir dráttarvélar með minni mótora
í október 2023.
Misjöfn staða í Evrópu
Í Evrópu var yfir 74% af dráttar
vélarsölunni vélar yfir 50 hestöflum.
Í þýskalandi jókst sala dráttar véla
um 2,6% á meðan 15% samdráttur
var í sölu í Bretlandi á milli áranna
2019 og 2020. Um þessar mundir
eru margar dráttarvélaverk smiðjur
að koma starfseminni í gang aftur
eftir langvarandi lokun vegna
COVID19. Einn stærsti markaður
fyrir dráttarvélar í Evrópu er nú í
Tyrk landi.
Í Bretlandi eru einungis tveir
dráttarvélarframleiðendur sem eitt
hvað kveður að með framleiðslu í
dag, en það eru CNH Industrial´s
sem er með verksmiðju í Essex þar
sem framleiddar eru New Holland
dráttarvélar. Þar er í raun byggt
á langri sögu og framleiðslu á
International Harvester dráttarvél
um og vinnuvélum í Bretlandi. Þá
er JCB’s Fastrac með verksmiðju
nálægt Cheadle í Staffordshire, en
JCB er mjög öflugt fjölskyldufyr
irtæki.
Góð sala í 4x4 vélum
í Bandaríkjunum
Í Bandaríkjunum jókst dráttarvéla
salan um 3,6% á árinu 2019 og fór
þá í 244.000 dráttarvélar. Í árs
byrjun 2002 jókst verulega salan á
fjórhjóladrifnum dráttarvélum þar
í landi og vélum með 100 hestafla
mótorum og stærri. Í maí á síðasta
ári hafði dráttarvélasalan á milli
áranna 2019 og 2020 aukist um
15,1%. Þá hélt sala á stórum vélum
að aukast þrátt fyrir COVID19. Þá
hafði faraldurinn greinilega þau
áhrif að eigendur stórra fasteigna
og smábændur eyddu auknum tíma
í viðhald á dráttarvélum og fjár
festingar því tengdu.
Mikil tekjurýrnun hjá
bændum í Bandaríkjunum
Sala á stórum uppskerutækjum dróst
heldur saman í Bandaríkjunum á síð
asta ári, einkum vegna óvissunnar
í markaðs efnahagsmálum land
búnað arins. Hefur landbúnað urinn
þar mátt þola minnkandi tekjur í sex
ár í röð. Þannig voru tekjur land
búnaðarins í Bandaríkjunum 2018
komin niður í 63 milljarða dollara
og höfðu þá rýrnað um nær helm
ing, eða úr 123 milljörðum dollara
árið 2013.
Vegna stirðra samskipta Banda
ríkjanna og Kína og deilna um tolla
mál, lokuðu Kínverjar fyrir kaup á
bandarískum land búnaðarafurðum
á þriðja árs fjórðungi 2019. Það
var gríðar legur skellur fyrir bænd
ur í Banda ríkjunum sem seldu
Kínverjum vörur fyrir 6 milljarða
dollara á árinu 2018, eða rúm
lega 9,5% af heildartekjum land
búnaðarins í Bandaríkjunum það
ár. Hafa bændur í Kína og öðrum
löndum notið góðs af þessu.
Gríðarlegur vöxtur í Kína
vegna tækniinnleiðingar
Dráttarvélamarkaðurinn í Kína
þykir spennandi vegna þess að
þar er vélvæðingin komin mun
skemmra á veg en á Vesturlöndum.
Á fyrsta ársfjórðungi 2020 var
búið að spá 69% aukningu í sölu
vegna vélvæðingar í landbúnaði.
Hefur þessari miklu innleiðingu
á véltækni í kínverskum landbún
aði að hluta verið mætt með not
uðum tækjabúnaði frá Evrópu og
Bandaríkjunum.
/HKr.
New Holland dráttarvél á vinnslulínu CNH Industrial´s í Bretlandi. JCB Fastrac 8000.
Ný dráttarvél á færibandinu hjá Deutz-Fahr.
Fyrsta sjálfstýrða vetnisknúna dráttarvél Kínverja
Kínverjar kynntu til sögunnar
glænýja sjálfstýrða vetnis og
rafhlöðuknúna dráttarvél um
miðjan júní 2020. Kynningin
fór fram á vegum kínversku
uppfinninga miðstöðvarinnar
CHIAIC (National Institude of
Agromachinery Innovation and
creation CHIAIC) í Luoyang í
Henan héraði.
Vélin heitir ET504 og notast við
5G fjarskiptabúnað fyrir stjórntæk
in. Vélin getur unnið sjálfstætt eins
og vélmenni, en einnig er hægt að
fjarstýra henni.
Þróun dráttarvélarinnar fór fram
hjá CHIAIC og hjá iðnfyrirtæk
inu R&D sem er hluti af Tianjing
rannsóknar stofnuninni í hátækni við
Tsinghua háskóla.
Dráttarvélin er búin rafmótor
sem staðsettur er í miðju vélarinn
ar og síðan eru í henni sjálfstæðir
mótorar fyrir lyftibúnað og stýri.
Vetnisefnarafall sér um að framleiða
raforku fyrir mótorana í allri venju
legri vinnu, en ef þörf er á aukaafli
kemur það frá Lithium rafhlöðum
sem í dráttarvélinni eru.
Með aðstoð 5G fjarskiptabúnaðar
ins getur ET504 dráttarvélin fylgst
með í rauntíma öllum stýr ingum
vélarinnar og metið allar umhverfis
aðstæður á vinnusvæði. Þannig á
vélin að vera mjög örugg í vinnu.
Zhao Chunjiang, vísindamaður
hjá kínversku verkfræðiakademí
unni og yfirmaður CHIAIC, segir
að þróun hátækni og skynvæddra
véla sé mjög mikilvæg fyrir frek
ari þróun sjálfvirkni í landbúnaði.
/HKr.
ET504 er vetnisknúin dráttarvél með gervigreind sem les umhverfi sitt og
heldur utan um allan stjórnbúnað.
ET504
ET504 er sannarlega ekkert leikfang.