Bændablaðið - 11.02.2021, Side 26

Bændablaðið - 11.02.2021, Side 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 11. febrúar 202126 LÍF&STARF Vigdís Häsler lögfræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands og tók hún til starfa um síðustu mánaðamót. Að hennar mati stendur íslenskur landbúnaður frammi fyrir mörg- um áskorunum um þessar mund- ir. Þar á meðal eru loftlags- og umhverfismál, tryggingarmál bænda og fæðuöryggi allra lands- manna. „Ég myndi skilgreina mig sem ósköp venjulega konu og fjöl­ skyldu konu. Ég er mjög ákveðin en samt tiltölulega létt í fasi og vinnu­ söm, þjónustulunduð og skipulögð. Ég hef þó fengið að heyra frá bæði móður minni og tengdamóður að ég sé full virk fyrir þeirra smekk. Samt þykir mér líka afskaplega gott að draga mig í hlé og finna afslöppun og hvíld í einhverju öðru en að setja fætur upp í loft, eins og að elda eða stunda útiveru. Í raun er ég þannig að ég þarf alltaf að hafa mikið fyrir stafni. Því þannig líður mér best.“ Fædd á Jövu Vigdís er fædd á eyjunni Jövu í Indónesíu og fékk nafnið Octaviane þegar hún kom í heiminn. Foreldrar hennar eru Sveinn Frímannsson tæknifræðingur, sem er ættaður úr Mosfellssveit, og Guðríður Sædís Vigfúsdóttir heitin, sem er Hornfirðingur. „Pabbi vann mikið þrekvirki þegar hann flaug heimshorna á milli og sótti mig til Indónesíu og kom ég til Íslands á sjálfan kvennafrí­ daginn, 24. október 1982, þá rúm­ lega þriggja vikna gömul. Ef til vill átti þessi dagur sinn þátt í nafna­ valinu hjá mömmu en það kom víst ekki annað til greina en að ég fengi nafnið Vigdís, í höfuðið á systur mömmu og forsetanum okkar.“ Í sumarbúðum fyrir norðan „Sem barn var ég send í sumarbúðir á Ástjörn norður í landi í allt að átta vikur á hverju sumri fram að ferm­ ingaraldri. Mér þótti það ósköp gott og eignaðist mikið af vinum þar og upplifði ýmis ævintýri með besta vini mínum, Sveini Biering, græn­ metisbónda og einum af eigendum Vaxa. Dvölin á Ástjörn stappaði svo sannarlega stálinu í okkur krakkana sem vorum þar, enda engir „þyrlu­ foreldrar“ á sveimi. Við fengum að hringja heim einu sinni í viku, en það kom sjaldan fyrir að maður nýtti sér það, og fljótt og örugglega lærði ég að sinna mér sjálf en vissulega með aðstoð þeirra sem störfuðu í þvottahúsinu. Í Reykjavík ólst ég upp í hverfi 104 og sótti stíft æskulýðsstarf í Áskirkju og tók þátt í margs konar íþróttum. Níu ára gömul fann ég mig í skautaíþróttinni í Laugardal og iðkaði hana þar til ég varð tvítug. Ég var í landsliðinu á skautum, keppti mikið á veturna og tók þátt í mörgum mótum, þar á meðal einu heimsmeistaramóti,“ segir Vigdís. Að lokinni grunnskólagöngu hóf hún nám við Fjölbrautaskólann í Ármúla og flutti úr foreldrahús­ um um svipað leyti þegar foreldrar hennar fluttu til Montreal í Kanada þar sem faðir hennar var með sér­ verkefni í tengslum við byggingu Alcoa Fjarðaáls. Stóð til að fara í guðfræði „Ég kynntist svo manninum mínum, Gerald Häsler, og við fluttum til Akureyrar þar sem ég hóf nám í lögfræði við Háskólann á Akureyri og hann í viðskipta­ fræði. En áður en lögfræðin varð fyrir valinu stóð alltaf til að fara í guðfræði. Mamma hafði nefni­ lega lengi látið sig dreyma um séra Vigdísi. Árið 2013 lauk ég LLM­prófi frá University of Sussex í Bretlandi. Eftir útskrift 2008 hóf ég störf á lögmannsstofunni Lögmönnum Höfðabakka, sem nú heitir MAGNA. Ég var þar í rúmlega sjö ár og fór þaðan til Sambands íslenskra sveitarfélaga með við­ komu í samgöngu­ og sveitar­ stjórnarráðuneytinu árið 2017 sem aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar. Ég hef síðan starfað á Alþingi sem aðstoðarmaður þingmanna fyrir þingflokk Sjálf stæðis flokksins. Að mínu mati er Alþingi stór­ skemmtilegur vinnustaður, lifandi og fjölbreyttur, en það skýrist meðal annars út af fjölbreyttri samsetningu starfsmannanna og svo allra kjörnu fulltrúanna sem þar sitja.“ Vigdís hefur setið í stjórnum félagasamtaka og í kjörstjórn Garða­ bæjar fyrir kosningar til alþingis­ og sveitarstjórnar og forseta kosningar. Umhverfismál og fæðuöryggi „Ég lít svo á að landbúnaður á Íslandi standi frammi fyrir mörgum og ólíkum áskorunum og má þar nefna stórmál eins og loftslags­ og umhverfismálin, fæðuöryggi lands­ manna og tryggingamál bænda, svo eitthvað sé nefnt. Við verðum að horfa til framtíðar og sjá fyrir okkur hvernig við viljum að íslenskur land­ búnaður verði að 10 til 15 árum liðnum. Vigdís Häsler, lögfræðingur og framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands. Mynd / HKr. Gerald og Vigdís Häsler ásamt dætrunum Alice Emilíu og Kamillu Marín. Vigdís ásamt Kamillu Marín við Skóga foss. Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands: Landbúnaður á Íslandi stendur frammi fyrir mörgum og ólíkum áskorunum

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.