Bændablaðið - 11.02.2021, Blaðsíða 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 11. febrúar 202126
LÍF&STARF
Vigdís Häsler lögfræðingur hefur
verið ráðinn framkvæmdastjóri
Bændasamtaka Íslands og tók hún
til starfa um síðustu mánaðamót.
Að hennar mati stendur íslenskur
landbúnaður frammi fyrir mörg-
um áskorunum um þessar mund-
ir. Þar á meðal eru loftlags- og
umhverfismál, tryggingarmál
bænda og fæðuöryggi allra lands-
manna.
„Ég myndi skilgreina mig sem
ósköp venjulega konu og fjöl
skyldu konu. Ég er mjög ákveðin en
samt tiltölulega létt í fasi og vinnu
söm, þjónustulunduð og skipulögð.
Ég hef þó fengið að heyra frá bæði
móður minni og tengdamóður að ég
sé full virk fyrir þeirra smekk. Samt
þykir mér líka afskaplega gott að
draga mig í hlé og finna afslöppun
og hvíld í einhverju öðru en að setja
fætur upp í loft, eins og að elda eða
stunda útiveru. Í raun er ég þannig
að ég þarf alltaf að hafa mikið fyrir
stafni. Því þannig líður mér best.“
Fædd á Jövu
Vigdís er fædd á eyjunni Jövu í
Indónesíu og fékk nafnið Octaviane
þegar hún kom í heiminn. Foreldrar
hennar eru Sveinn Frímannsson
tæknifræðingur, sem er ættaður
úr Mosfellssveit, og Guðríður
Sædís Vigfúsdóttir heitin, sem er
Hornfirðingur.
„Pabbi vann mikið þrekvirki
þegar hann flaug heimshorna á milli
og sótti mig til Indónesíu og kom
ég til Íslands á sjálfan kvennafrí
daginn, 24. október 1982, þá rúm
lega þriggja vikna gömul. Ef til vill
átti þessi dagur sinn þátt í nafna
valinu hjá mömmu en það kom víst
ekki annað til greina en að ég fengi
nafnið Vigdís, í höfuðið á systur
mömmu og forsetanum okkar.“
Í sumarbúðum fyrir norðan
„Sem barn var ég send í sumarbúðir
á Ástjörn norður í landi í allt að átta
vikur á hverju sumri fram að ferm
ingaraldri. Mér þótti það ósköp gott
og eignaðist mikið af vinum þar og
upplifði ýmis ævintýri með besta
vini mínum, Sveini Biering, græn
metisbónda og einum af eigendum
Vaxa. Dvölin á Ástjörn stappaði svo
sannarlega stálinu í okkur krakkana
sem vorum þar, enda engir „þyrlu
foreldrar“ á sveimi. Við fengum að
hringja heim einu sinni í viku, en
það kom sjaldan fyrir að maður nýtti
sér það, og fljótt og örugglega lærði
ég að sinna mér sjálf en vissulega
með aðstoð þeirra sem störfuðu í
þvottahúsinu.
Í Reykjavík ólst ég upp í hverfi
104 og sótti stíft æskulýðsstarf
í Áskirkju og tók þátt í margs
konar íþróttum. Níu ára gömul
fann ég mig í skautaíþróttinni í
Laugardal og iðkaði hana þar til
ég varð tvítug. Ég var í landsliðinu
á skautum, keppti mikið á veturna
og tók þátt í mörgum mótum, þar
á meðal einu heimsmeistaramóti,“
segir Vigdís.
Að lokinni grunnskólagöngu
hóf hún nám við Fjölbrautaskólann
í Ármúla og flutti úr foreldrahús
um um svipað leyti þegar foreldrar
hennar fluttu til Montreal í Kanada
þar sem faðir hennar var með sér
verkefni í tengslum við byggingu
Alcoa Fjarðaáls.
Stóð til að fara í guðfræði
„Ég kynntist svo manninum
mínum, Gerald Häsler, og við
fluttum til Akureyrar þar sem ég
hóf nám í lögfræði við Háskólann
á Akureyri og hann í viðskipta
fræði. En áður en lögfræðin varð
fyrir valinu stóð alltaf til að fara
í guðfræði. Mamma hafði nefni
lega lengi látið sig dreyma um
séra Vigdísi. Árið 2013 lauk ég
LLMprófi frá University of
Sussex í Bretlandi.
Eftir útskrift 2008 hóf ég störf
á lögmannsstofunni Lögmönnum
Höfðabakka, sem nú heitir
MAGNA. Ég var þar í rúmlega
sjö ár og fór þaðan til Sambands
íslenskra sveitarfélaga með við
komu í samgöngu og sveitar
stjórnarráðuneytinu árið 2017 sem
aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar.
Ég hef síðan starfað á Alþingi sem
aðstoðarmaður þingmanna fyrir
þingflokk Sjálf stæðis flokksins.
Að mínu mati er Alþingi stór
skemmtilegur vinnustaður, lifandi
og fjölbreyttur, en það skýrist
meðal annars út af fjölbreyttri
samsetningu starfsmannanna og
svo allra kjörnu fulltrúanna sem
þar sitja.“
Vigdís hefur setið í stjórnum
félagasamtaka og í kjörstjórn Garða
bæjar fyrir kosningar til alþingis og
sveitarstjórnar og forseta kosningar.
Umhverfismál og fæðuöryggi
„Ég lít svo á að landbúnaður á
Íslandi standi frammi fyrir mörgum
og ólíkum áskorunum og má þar
nefna stórmál eins og loftslags og
umhverfismálin, fæðuöryggi lands
manna og tryggingamál bænda, svo
eitthvað sé nefnt. Við verðum að
horfa til framtíðar og sjá fyrir okkur
hvernig við viljum að íslenskur land
búnaður verði að 10 til 15 árum
liðnum.
Vigdís Häsler, lögfræðingur og framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands. Mynd / HKr.
Gerald og Vigdís Häsler ásamt dætrunum Alice Emilíu og Kamillu Marín.
Vigdís ásamt Kamillu Marín við Skóga foss.
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands:
Landbúnaður á Íslandi stendur frammi
fyrir mörgum og ólíkum áskorunum